Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Page 52

Fréttatíminn - 13.03.2015, Page 52
52 matur & vín Helgin 13.-15. mars 2015 Vín vikunnar Þetta ítalska Primotivo er í reynslusölu í ÁTVR. Það er á góðu verði og er prýðis léttur Ítali með berjakeim og smá sætuvotti. Það er ágætt til söturs og hentar vel með öllum léttari mat sér- staklega léttari ítölskum mat sem kallar á rauðvín. Pasta og pitsur með tómatsósu eru gott dæmi, sérstaklega ef kjötmetið er ekki of yfirgnæfandi. Líkt og hið létt flippaða nafn þessa víns gefur til kynna þá siglir það undir örlítið fölsku flaggi. Það kallar sig game reserve en það getur varla átt við villibráð því þó að vínið sé dökkt og með dökkum ávexti þá myndi það ekki ráða vel við annað en ljóst kjöt og léttari mat. Því er hins vegar ekki að neita að verðið er gott. Hér er á ferðinni léttur merlot frá Chile á fínasta verði. Ágætt að eiga svona kassa þegar gesti ber að garði en passar líka með léttari mat, jafnvel salatréttum, t.d. með hráskinku eða ferskum pastaréttum. Vito Primotivo Gerð: Rauðvín Þrúga: Primotivo Uppruni: Ítalía Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúðunum: kr. 5.999 3L Santa Helena Merlot Gerð: Rauðvín Þrúga: Merlot Uppruni: Chile, 2013 Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúðunum: kr. 5.760 3L Zafrica Game Reserve Gerð: Rauðvín Uppruni: Suður-Afríka, 2013 Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúðunum: kr. 5.399 3L Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is Fæst þeirra vína sem við kaupum okkur eru ætluð til geymslu eða eru þeirrar náttúru að batna með aldrinum. Það er samt mikilvægt að huga að því hvernig við geymum vínin okkar. Það er t.d. ekki góð hugmynd að geyma þau inni í eld- húsi, sérstaklega ekki fyrir ofan ísskápinn eða við ofninn þar sem hita- breytingar eru miklar. Þá skemmast þau bara. Hér eru nokkur ráð til að ráða bót á þessu. Hvernig er best að geyma vín? 1. Hæfilega kalt er gott Hiti er óvinur númer eitt í víngeymsl- unni. Vínin eldast hraðar og verða flöt við stofu- hita. Það borgar sig að geyma vín við 10- 14 gráður. 2. Of kalt er ekki gott Lausnin er ekki að skutla vín- unum inn í ísskáp. Það er allt í lagi til að kæla hvít- vínið fyrir neyslu en ekki geyma neina tegund af víni í ísskáp nema það sér sér- stakur vín- skápur. Og í guðanna bænum ekki geyma vínin í óupp- hituðum skúr eða geymslu þar sem það gæti jafnvel frosið. 3. Forðast hitasveifl- ur Vín kunna ekki að meta miklar hitasveiflur. Þær fara líka sér- staklega illa í kork- tappa. 4. Slökktu ljósin Vín elska myrkur og hata sólar- ljós sem er enn ein ástæðan til að forða því úr eld- húsinu eða stofunni. Best að vera í köldu glugga- lausu rými. 5. Hliðarlega er æskileg Það er viturlegt að geyma vínflöskur á hlið. Aðal- lega af því að það spar- ar pláss. Ef flöskurnar eru með korktappa er ólíklegra að hann þorni upp. Bragð Frakklands á Gallery Restaurant F yrir ári síðan vildi Marc Bo-uteiller, þáverandi sendi-herra Frakklands, búa til viðburð hér á Íslandi tengdan matar- gerð. Í sameiningu skipulögðum við tveggja daga matreiðslukeppni sem fékk nafnið Goût de France. Keppn- in fór fram hér á Hótel Holti og end- aði á galadinner sem heppnaðist mjög vel, eins og keppnin öll,“ segir Friðgeir Ingi. Hráefnið var fyrst og fremst franskt og sá sendiherrann um að flytja inn allt það besta beint frá Frakklandi. „Bouteiller fór svo á fund í París með öllum helstu matreiðslumönnum Frakklands, þar á meðal Alain Ducasse, einum þekktasta matreiðslumanni heims, og þeir komu á fót alheimsviðburði sem felst í að upphefja franska mat- reiðslu. Þá kom upp hugmynd að nefna viðburðinn Goût de France. Þá hló sendiherrann auðvitað og sagði að það væri hið besta mál því nafnið væri nú þegar til,“ segir Frið- geir og hlær. Gallery Restaurant á Hótel Holti hefur því verið tengdur við viðburðinn allt frá upphafi. Yfir þúsund matreiðslumenn frá fimm heimsálfum „Sendiherrann bað mig um að taka frá 19. mars, sem ég gerði. Hann lét mig svo vita þegar opnað var fyrir umsóknir og ég sótti um og fékk þátttökurétt,“ segir Friðgeir Ingi. Viðburðurinn fer fram næstkom- andi fimmtudag og verður um allan heim, en alls munu 1300 matreiðslu- menn frá fimm heimsálfum taka þátt í að skapa einstakan málsverð til heiðurs franskri eldamennsku. Alls taka um 1000 veitingastaðir þátt í viðburðinum og mun aðalvið- burðurinn fara fram í Versalahöll- inni í Frakklandi. Bragð Frakklands með ís- lensku og frönsku hráefni Á Íslandi fer viðburðurinn fram á Gallery Restaurant á Hótel Holti og hefur Friðgeir Ingi hannað sérstak- an matseðil í takt við hátíðina. „Mér finnst skipta miklu máli að bjóða upp á íslenskan humar og krækling, íslenskan þorsk og að sjálfsögðu ís- lenskt lamb,“ segir Friðgeir Ingi. 5% af allri sölu matseðilsins þetta kvöld munu renna til Landsbjargar. Borð- apantanir fara fram í síma 552 5700 og á gallery@holt.is. France Media Monde mun sýna frá viðburðinum á stöðvum sínum í Frakklandi, Bret- landi sem og á arabískum stöðvum sínum. Hægt er að fylgjast með við- burðinum á facebook: www.facebo- ok.com/projetgoodfrance Unnið í samstarfi við Gallery Restaurant Friðgeir Ingi Eiríksson, matreiðslumaður á Gallery Restaurant á Hótel Holti, mun taka þátt í alþjóðlega matreiðsluviðburðinum Goût de France, eða Bragð Frakklands, sem fer fram fimmtu- daginn 19. mars. Upphaf viðburðarins má rekja til samstarfs Friðgeirs við fyrrverandi sendiherra Frakklands á Íslandi. Bragð Frakklands 2015: Matseðill Gallery Res- taurant 19. mars Andalifrarterrína og pó- seruð-pear „mille feuille“ Marineraður humar og hörpuskel með saffrank- ryddaðri kræklingafroðu Langtímaeldaður þorskur með fennel og kálfasafa Lambalundir „Wellington“ Úrval franskra osta borið fram með klettasalati og truffle vínagrettu Manjari súkkulaði frá Valrhona Friðgeir Ingi Eiríksson, matreiðslumaður á Gallery Restaurant á Hótel Holti, hefur sett saman dýrindis matseðil í tilefni hátíðarinnar Bragð Frakklands, sem fer fram um allan heim þann 19. mars. Mynd/Hari. www.fi.is Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Fræðslu- og myndakvöld „Kúnstir nátt úrunnar“ og Kverkfjöll Ferðafélag Íslands stendur fyrir fræðslu- og myndakvöldi nk. miðvikudag, 18. mars, kl. 20:00 í sal FÍ. „Kúnstir náttúrunnar“, söngvísur og svipmyndir Árni Björnsson, Halldór Ólafsson og Páll Einarsson fræða okkur um ævistarf Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings og flytja ásamt fleirum nokkarar vísur eftir hann. Kverkfjöll - paradís göngu- og fjallaskíðafólks Að loknu kaffihléi mun Tómas Guðbjartsson yfirlæknir sýna myndir frá ferðum í Kverkfjöll - paradís göngu- og fjallaskíðafólks. Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur Allir velkomnir! – fyrst og fre mst ódýr! 1199kr.tvennan Coke, Coke light eða Coke zero og eitt Freyju Rís páskaegg nr. 4 Páskaegg + fjórpakki Á meðan birgðir end ast saman á frábæru verði! v 4x2 lítrar

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.