Fréttatíminn - 13.03.2015, Page 60
Svo það er
ýmislegt í
pottinum. Þetta
er skemmtilegt
og það hefur
ekki verið gert
áður að Caput
fari yfir nokkur
verk sama höf-
undarins.
Nánari upplýsingar a www.hannesarholt.is
Miðasala á midi.is
Samsöngur
15.mars
Kristín Valsdóttir
og Ragnheiður
Haraldsdóttir
Heilsuspjall
17.mars
Arnór Víkingsson
Tónleikar
18.mars
Gunnar Kvaran og
Elísabet Waage
Dagskrá Hannesarholts
Caput hópurinn mun halda tónleika í Norræna húsinu á sunnudag og eru tónleikarnir partur af
tónleikasyrpunni 15:15. Á tónleikunum mun Caput hópurinn flytja nokkur verk Þuríðar Jónsdóttur
tónskálds og geta tónleikarnir skoðast sem portrett af tónskáldinu. Auk verka Þuríðar mun glitta
í verk ítalska tónskáldsins Aldo Clementi. Sérstakur gestur á tónleikunum verður söngkonan
Hanna Dóra Sturludóttir sem nýverið hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins.
Þuríður segir verkefnið mjög skemmtilegt, þó hún hafi svolítið fengið á tilfinninguna að hún væri
að verða sjötug.
Tónleikar CapuT hópurinn flyTur verk Þuríðar JónsdóTTur
Starfsferill Þuríðar Jónsdóttur spannar nú 25 ár. Caput hópurinn flytur nokkur verk hennar á tónleikum í Norræna húsinu á
sunnudag. Ljósmynd/Einar Falur Ingólfsson
Þ etta skrifast svolítið á Caput hóp-inn sem fékk þessa hugmynd að taka þessi verk mín fyrir á einum
tónleikum,“ segir Þuríður Jónsdóttir tón-
skáld. „Ég fékk þó smá tilfinningu eins
og ég væri að verða sjötug og þetta væri
hálfgert uppgjör, en svo er nú ekki.“
Caput hópurinn flytur 6 verk eftir
Þuríði á tónleikunum og er það elsta
frá árinu 2003. „Þetta eru allt saman
mjög ólík verk,“ segir Þuríður. „Þetta
eru tvö einleiksverk, fyrir víólu annars
vegar og óbó hins vegar. Tvö söngverk
sem Hanna Dóra Sturludóttir syngur
með hópnum og svo tvö verk sem eru
í elektrónískum stíl,“ segir Þuríður.
„Svo það er ýmislegt í pottinum. Þetta
er skemmtilegt og það hefur ekki verið
gert áður að Caput fari yfir nokkur verk
sama höfundarins.“
Starfsferill Þuríðar spannar nú meira
en 25 ár. Framan af var Ítalía vettvangur
hennar, bæði sem flautuleikara og tón-
skálds en nú býr hún á starfar á Íslandi.
Meðal þekktustu verka hennar má nefna
flautukonsertinn Flutter, saminn fyrir
ítalska flautusnillinginn Mario Caroli,
Flow and Fusion fyrir stóra hljómsveit
og rafhljóð, Rauðan hring fyrir kór, ein-
söngvara og rafhljóð og harmoniku-
konsertinn Installation around a Heart
sem hún samdi fyrir hinn þekkta norska
harmonikuleikara Geir Draugsvoll og
Caput.
Um þessar mundir vinnur hún að nýju
verki sem frumflutt verður í vor. „Ég
er með vinnustofu á Króki á Álftanesi
þar sem ég er með útsýni út á hafið og
kindur og kýr í næsta garði,“ segir Þur-
íður. „Verkið sem ég er að vinna að er
fyrir fiðlu og píanó og var pantað fyrir
Listahátíð í Reykjavík og verður því
frumflutt á þeirri hátíð,“ segir Þuríður
Jónsdóttir.
Tónleikar Caput hópsins á sunnudag
hefjast klukkan 15.15 og er miðasala við
innganginn.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Þetta er ekki uppgjör
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-0
4
2
4
Áfallastreita
sjál oðaliða á
hamfarasvæðum
Fimmtudaginn 19. mars kynnir Sigríður
Björk Þormar doktorsverkefni si í
áfallasálfræði. Hún hefur rannsakað
áhrif hamfaravinnu á líðan sjáloðaliða.
Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 17.30-18.30
í húsi Rauða krossins, Efstaleiti 9.
Allir velkomnir
Skráning á raudikrossinn.is
Fjallað um kvíða, þunglyndi og spáþæi
sem tengjast einkennum áfallastreitu.
Kraumur tónlistarsjóður
og Hönnunarsjóður Auroru
bjóða í götupartí á laugardag-
inn þar sem hljómsveitir og
tónlistarmenn, hönnuðir og
arkitektar mætast í pop-up
borg framtíðarinnar í porti
Listasafnsins. Viðburðurinn
er stefnumót tónlistar og
hönnunar á HönnunarMars
og er samvinnuverkefni
sjóðanna sem síðustu ár hafa
unnið með og að framgangi
fjölda íslenskra tónlistar-
manna og hönnuða, hérlendis
sem erlendis.
Í porti Hafnarhússins er
verkefnið Hæg breytileg átt
með sýningu sem varpar
ljósi á íbúðir og hverfi fram-
tíðarinnar, en þetta kvöld
umbreytist sýningin í lifandi
framtíðarborg þar sem á einni
götunni er blásið til partís.
Þeir tónlistarmenn sem
koma fram eru Retro Stefson
,Sin Fang ,Samaris ,Snorri
Helgason, Bjartey & Gígja úr
Ylju og Valdimar Guðmunds-
son & Örn Eldjárn. Hönnun
kvöldsins er í höndum The-
resa Himmer og Brynhildar
Pálsdóttur.
Uppákoman í Listasafn-
inu hefst klukkan 21 og er
aðgangseyrir enginn. -hf
TónlisT mæTir arkiTekTúr
Dúndrandi götustemning í
Listasafnsportinu
Snorri Helgason er einn þeirra sem kemur fram í
götupartíi Listasafnsins.
60 menning Helgin 13.-15. mars 2015