Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Side 44

Fréttatíminn - 13.03.2015, Side 44
 Fæst í Lyfju, Apótekinu, Lyfjaveri og Garðsapóteki Sambucol: – Náttúruleg vörn gegn flensu – Sannkölluð andoxunarbomba fyrir frumurnar raritet.is Besta flensu- og kvefmixtúra sem ég hef prófað ” Sambucol Immuni Forte Sykurlaust, náttúrulegt þykkni fyrir fullorðna. Sambucol for Kids Bragðgott náttúrulegt þykkni fyrir börn. Sambucol Immune Forte forðahylki Fyrir þá sem ekki vilja mixtúru. Dregur úr einkennum og getur stytt flensu- og kveftímann um allt að 50% Þ að kallar á meiðsl ef fólk fer frá því að gera ekki neitt í að æfa fimm sinnum í viku af krafti,“ segir Daði Reynir Kristleifsson, sjúkraþjálfari hjá Afli. Crossfit æf- ingakerfið er hannað með það í huga að það sé hægt að aðlaga að hverjum sem er og telur Daði það mikilvægt að fólk geri æfingar í takt við það sem það hefur gert áður. „Fólk er í misjöfnu formi þegar það byrjar æfingar og nauðsynlegt að taka mið af því.“ Grunnnámskeið eru í boði fyrir þá sem ætla að byrja að stunda Crossfit þar sem lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu og fræðslu og telur Daði það skipta öllu máli að fara í gegnum grunn- ámskeið. „Einn stærsti parturinn er að fá kennslu í hvernig eigi að gera hreyfingarnar rétt, og vera sífellt að fínpússa hreyfingarnar. Crossfit æfingarnar reyna mikið á axlir, mjó- bak og hné og það er fyrst og fremst mikilvægt að vera ekki með of þung lóð. Vöðvaþreytan byrjar að tikka inn þegar lóðin verða þyngri og ef fólk er ekki nægilega sterkt fer það að beita sér rangt til að svindla sér í gegnum æfinguna. Þess vegna er alltaf gott að byrja létt og vinna sig smám saman upp og halda réttri líkamsbeitingu.“ Daði Reynir segir að þetta eigi við um alla hreyfingu sem fólk stundar því það skipti engu hvort fólk sé að Ótrúlega margir hafa náð árangri „Til að gera vöðvana móttækilegri fyrir þjálfun og koma í veg fyrir meiðsl þarf að huga að réttri stignun og réttri liðleikaþjálfun í samræmi við æfingar,“ segir Daði Reynir Kristleifsson, sjúkraþjálfari hjá Afli. Sjálfur hefur hann stundað Crossfit í nokkur ár og veitir hann jafnframt ráðgjöf hjá Crossfit Reykjavík. Hann telur það algengt að fólk fari sér of geyst. Daði Reynir Kristleifsson segir fáfræði á Cross- fit kalla á ósanngjarna umfjöllun og ekki sé meira um meiðsl í Crossfit en öðrum íþróttagreinum. æfa boltaíþrótt, lyfta lóðum, Cross- fit eða sund, þá sé rétt stignun lyk- ilatriði. Hann segir að því miður sé of oft horft á Crossfit sem meiðsla- gjarna íþrótt en það stafi fyrst og fremst af vanþekkingu á sportinu. „Margir þekkja boltaíþróttirnar vel en þar er mikið um meiðsl sem ekki er talað um af jafnmikilli neikvæðni. Það þykir jákvætt og gott að stunda handbolta eða fótbolta þar sem marg- ir eru með slæmar axlir, ökkla og hné eftir þjálfun, en um leið og fólk seg- ist stunda Crossfit þá heyrast áhyggj- uraddir. Það er ósanngjarnt og ég tel að það stafi fyrst og fremst af van- þekkingu á sportinu.“ Aðspurður tekur hann undir það að áhyggjur um meiðsl í Crossfit stafi af því að það æfa margir sem hafa lítið hreyft sig áður og hafa ekki stundað íþróttir. „Það má ekki gleyma því að það eru margir sem finna sig í Cross- fit sem hafa ekki áður fundið hreyf- ingu við hæfi og það eru ótrúlega margir sem hafa náð gríðarlegum árangri sem hefur breytt lífi þeirra til hins betra. Allskonar fólk stundar Crossfit með góðum árangri, þar á meðal fólk sem er háð hjólastól. Að- almálið er að allir geri það sem þeir geta og hugi að því að gera það rétt. Fólk verður að þekkja sín mörk og vera ófeimið við að leita eftir leiðsögn og spyrja.“ 44 crossfit Helgin 13.-15. mars 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.