Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Page 43

Fréttatíminn - 13.03.2015, Page 43
Um okkUr crossfit 43 Helgin 13.-15. mars 2015 Allir velkomnir í Crossfit XY C rossfit XY er í Miðhrauni 2 í Garðabæ og hefur dafnað vel á þessum árum og sífellt bætast við fleiri iðkendur sem vilja byrja að stunda þessa skemmtilegu og vin- sælu íþrótt. „Hingað eru allir velkomnir og líka þeir sem hafa ekki stundað crossfit áður, en þeir byrja á því að fara á svokall- að grunnnámskeið þar sem undirstöðuatriðin eru kennd og æfð,“ segir Árni Björn Kristjánsson, rekstrarstjóri CrossFit XY. Grunnnámskeiðin byrja yfirleitt á tveggja vikna fresti en hægt er að fá frekari upplýsingar um þau á facebook síðu Crossfit XY og heimasíðu stöðvarinnar www.crossfitxy.is. Fjölbreytt æfingakerfi Crossfit er æfingakerfi sem hentar öllum, hvort sem fólk er afreksíþróttafólk eða óvant líkamsrækt, þar sem hver og einn stundar æfingarnar út frá sínum forsendum. Allir gera sömu æfingar en með mismunandi þyngdum og á mismunandi erfið- leikastigi og hraða eftir því hvað hentar. Crossfit byggir á þoli og styrk en fyrst og fremst fjölbreytni en breytileiki er lykilorð í crossfit. Þannig er hægt að ná framúrskarandi góðu líkams- formi og heilsu á breiðum grunni. „Við æfum styrk og þol á fjölbreyttan hátt og eru ólympískar lyftingar stór hluti af cross- fit. Það kann að hljóma svolítið skelfilega í eyrum margra, en dæmin eru mýmörg um að fólk sem hafði aldrei lyft lóðum byrji að elska þessar ólympísku áskoranir jafnmikið og aðrar æfingar sem það kannski þekkir betur,“ segir Árni Björn. Góður og skemmtilegur andi „Við leggjum áherslu á léttan og skemmtilegan anda í XY þar sem allir njóta sín, ásamt því að vera með góðar æfingar og leiðsögn á degi hverjum. Í XY er fólk á öllum aldri og í alls konar formi. Við erum með iðkendur alls staðar af stór Reykja- víkursvæðinu þótt flestir komi úr Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Við erum með keppnisfólk hjá okkur sem hefur náð góðum árangri á mótum bæði hér heima og erlendis og það er með gríðarlega reynslu sem það kennir og miðlar til annarra iðkenda. Lyftingafélag Garðabæjar var stofnað á síðasta ári og hefur aðstöðu hjá okkur en stöðin býr að stórum sölum og fyrsta flokks búnaði til að sinna afreksfólkinu okkar jafnt sem hinum, það er nóg pláss fyrir alla og allir fá sinn æfingatíma. Hlaupastígarnir í hrauninu hér beint fyrir utan húsið eru líka forréttindi á sumrin“ segir Árni Björn. Næsta grunnnámskeið hefst 17. mars. Skráning og frekari upplýsingar hjá info@crossfitxy.is Unnið í samsarfi við Crossfit XY Crossfit XY býður upp á æfingakerfi fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Stöðin fagnar tveggja ára afmæli um þessar mundir. CrossFit XY leggur áherslu á að bjóða upp á CrossFit þjálfun í skemmtilegu og jákvæðu um- hverfi. Aðstaða og tæki: Stöðin er um 1.000 fm, þar af eru um 640 fm æfingarými sem skiptist í tvo rúmgóða sali og þriðja minni sem hentar betur fyrir minni hópa og einkaþjálfun. Utanadyra höfum við góðan aðgang að hlaupa- stígum í hrauninu í kring og stutt er í Heiðmörkina. Nudd, heitur og kaldur pottur: Iðkendur geta nýtt sér notalega spa aðstöðu okkar þar sem boðið er upp á aðgang að heitum og köldum potti og mögulegt að bóka tíma í nudd.? Staðsetning: CrossFit XY er staðsett í Miðhrauni 2 í Garðabæ. Við erum við Reykjanesbrautina og því frábært aðgengi að stöðinni og fljótlegt að koma við og taka æfingu.? „Crossfit er æfingakerfi sem hentar öllum, hvort sem fólk er afreksíþróttafólk eða óvant líkamsrækt, þar sem hver og einn stundar æfingarnar út frá sínum forsendum,“ segir Árni Björn Kristjánsson, rekstrarstjóri CrossFit XY. Mynd/Hari Það er alltaf líf og fjör á krakkaæfingunum í Crossfit XY. Léttur og skemmtilegur andi einkennir starfsem- ina í Crossfit XY. Æfingahópurinn gerir ýmislegt saman, eins og til dæmis að ganga Laugaveginn eins og hluti hópsins gerði síðasta sumar.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.