Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 79

Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 79
tískaHelgin 13.-15 mars 2015 11 Unnið í samstarfi við Ĺ Oreal og Neutrogena Brow Artist Genious Kit fyrir augabrúnir Vinsældir fallegra og vel mótaðra auga- brúna hafa aldrei verið eins mikla og nú og því er það mikið fagnaðarefni að L’Oreal færir okkur glæsilega nýjung, fallega öskju sem inniheldur allt sem þarf í verkið. Brow Artist pallettan er til í tveimur mismunandi litatónum og inniheldur lit til að fylla inn í augabrúnirnar og vax til að móta þær og festa lögun þeirra. Einnig fylgja burstar til að fullkomna augabrúnirnar og plokkari til að laga þær aðeins til þegar þarf. Hér er á ferðinni glæsileg vara sem aðdáendur náttúrulegra augabrúna ættu ekki að láta framhjá sér fara. Flash Manicure Dip naglalakkahreinsir Naglalakkahreinsir sem fjarlægir lökk á augabragði. Glasið inni- heldur svamp sem er fullur af naglalakkahreinsi. Í svampinum er gat sem þú setur fingurinn inn í og snýrð svo fram og til baka og lakkið hverfur á auga- bragði. Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að skarta fallegum nöglum og skipta um liti eins og með hjálp þessa snilldarlega naglalakkasvamps. Naglalakka- hreinsirinn er án Asintone. Infallible Gel Nail Polish Langar þig í fallegt naglalakk sem gefur nöglunum gelkennda áferð og endist fallegt í allt að 12 daga? Þá eru Infallible lökkin eitthvað sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Lökkin eru fáanleg í alls konar fallegum litum en þau eru tvöföld. Byrjið á því að bera tvær umferðir af litnum á neglurnar og full- komnið svo áferð þeirra og aukið endingu þeirra með því að bera yfirlakkið á neglurnar. Neglurnar fá fallegan lit og ómótstæðilegan glans. Infallible 24H Stay Fresh Foundation Glæsilegur farði sem endist eins allan daginn. Infallible farðinn gefur húðinni fullkomna og mjúka áferð þar sem hann dregur fram það fallegasta í húð hverrar konu. Farðinn inniheldur Hyaluronic Acid sem er efni sem gefur húðinni mikla fyllingu og raka sem endist allan daginn. Þessi frábæra ending farðans útskýrist af virkni efnisins sem gerir húðina enn áferðar- fallegri en áður. Farðinn hentar konum á öllum aldri og öllum húðtýpum en hann er fáanlegur í 7 mismunandi litum svo allar konur ættu að eiga auðvelt með að finna sinn lit. Brow Artist Plumper Einn helsti kosturinn við að nota lituð augabrúnagel er að það fullkomnar umgjörð augabrúnanna. Gelið er borið á með eins konar spoilerbursta sem greiðir í gegnum hárin í augabrún- unum og litar þau um leið. Útkoman verður því mun náttúrulegri þar sem liturinn umlykur eingöngu hárin sjálf en ekki svæðið í kring. Auk þess heldur gelið hárunum á sínum stað svo auga- brúnirnar eru fullkomnar allan daginn. Gelið er bæði til með lit og litlaust sem er þá flott að nota með öðrum augabrúnavörum. Lumi Magique Primer Ef húðina þína skortir þessa ómótstæðilegu glóð sem gefur húðinni frísklega áferð þá er þessi primer fullkominn í verkið. Primerinn er léttur og fljótandi og gefur húðinni fallega perlukennda áferð. Primerinn má nota bæði undir og yfir farða og þá sem highlighter. Þessi er fullkominn til að gefa húðinni fallega og ljómandi áferð fyrir komandi vor. Mega Volume Miss Mange Punky Nýjasti maskarinn frá L’Oreal sem þéttir og þykkir augnhárin svo þau vekja enn meiri athygli en áður. Burstinn sem fylgir maskaranum er úr gúmmíi og hann er sérstaklega hannaður með það í huga að fanga hvert og eitt augnhár og þekja það al- gjörlega með formúlunni. Augnháratrendið undan- farið hefur verið að vera með mikil og áberandi augnhár og með hjálp þessa maskara verður leikur einn að ná lúkkinu! Super Liner Smokissime Hvaða konu dreymir ekki um að ná fallegri smoky augnförðun á örstuttum tíma? Það er mögulegt með glænýju augnskuggas- vömpunum frá L’Oreal, en aðeins þarf eina stroku til. Í lokinu er formúla augnskugg- anna en þeir gefa augunum matta áferð og eru með sérstaklega sterkum pigmentum. Með svampinum dreifið þið úr augnskugg- anum yfir aungnlokið eða meðfram neðri augnhárunum og augun fá fallega og mjúka umgjörð. Aungskuggarnir eru fáanlegir í þremur mismunandi litum. Skin Perfection húðvörlína Ný og glæsileg húðvörlína sem er sérstaklega gerð fyrir konur 25 ára og eldri eða fyrir þær sem eru farnar að finna fyrir fyrstu einkennum öldrunar í húðinni. Þegar húðin eldist gerir rakatap fyrst vart við sig en smám saman dregst úr myndun raka í húðinni auk þess sem breytingar á litarhafti og fyrstu grunnu línurnar fara að láta sjá sig og áferð húðarinnar verður grófari en áður. Vörulínan inniheldur vörur sem taka á þessum einkenn- um, draga úr þeim og með virkni sinni og gefa húðinni mikinn raka, fallega áferð og ómótstæðilegan ljóma. Skin Perfection Anti-Tiredness Instant Beautyfying Daily Care Hér er á ferðinni sannkallaður þreytubani sem gefur húðinni samstundis mikinn raka og aukna glóð. Kremið er í fyrstu litlaust og það er borið á hreina húð eftir að hún hefur verið nærð með grunnvörum eins og serumi eða rakakremi. Þegar kremið kemst í snertingu við húðina fær það í sig léttan lit sem aðlagar sig að litarhafti hverrar konu. Auk þess inniheldur kremið litaleiðrétt- andi agnir sem jafna litarhaft húðarinnar og frískar samstundis uppá húðina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.