Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Síða 86

Fréttatíminn - 13.03.2015, Síða 86
tíska Helgin 13.-15 mars 201518 Suomi PRKL! Design, Laugavegi 27 (bakhús) www.suomi.is, 519 6688 HönnunarMars í finnsku búðinni fös-lau 10-18 sun 13-18 &Bros popup HönnunnarMars tilboð -10% af Múmín fatnaði frá Ivana Helsinki Notaleg lífsstílsverslun við Laugaveg Systurnar Katla og María Krista sameina hönnun sína undir einu þaki í versluninni Systur og makar. S ysturnar Katla og María Krista Hreiðarsdætur eru með sköpunargleðina í lagi. Þær hafa rekið sitt hvort fyrirtækið í rúm sex ár undir vörumerkjunum Volcano Design, sem hannar og saumar kvenfatnað og Kristu De- sign, sem framleiðir gjafavöru og skart. Það hafa þær gert með dyggri aðstoð maka sinna, þeim Þórhildi Guðmundsdóttur og Berki Jóns- syni og gengið mjög vel þrátt fyrir nokkrar dýfur í þjóðfélaginu undan- farið. Þessi hópur hefur nú opnað sína aðra verslun sem ber heitið Systur og makar og er við Lauga- veg 40. Ævintýrið hófst fyrir norðan „Við höfum sameinað krafta okkar nokkrum sinnum og til dæmis tekið þátt í handverkshátíðinni á Hrafna- gili í Eyjafjarðarsveit þar sem fjöl- margir hönnuðir safnast saman á hverju ári og kynna afurðir sínar,“ segir María Krista. Eftir vel heppn- aða sýningu í ágúst árið 2014 var ákveðið að fara lengra með sam- starfið og ákváðu systurnar að opna saman verslun við Strandgötu 9 á Akureyri. Hugmyndin varð að veruleika einungis mánuði seinna sem er líklega sögulega stuttur undirbúningur. Fyrirtækið fékk nafnið Systur og makar. Verslunar- stjóri var ráðinn á mettíma en svo skemmtilega vill til að hún er systir Þórhildar, svo nafnið á fyrirtækinu stendur svo sannarlega fyrir sínu. Ný verslun í Reykjavík Samstarfið gekk það vel að ákveð- ið var að sameina verslun Volcano Design á Laugavegi og lítið gall- erí, Kristu Design í Hafnarfirði, og opna sameiginlega verslun á Lauga- veginum undir nýjum formerkjum Systra og maka eins og á Akureyri. Verslunin var opnuð þann 5. febrúar síðastliðinn, aðeins fimm mánuðum eftir ævintýrið á Akureyri. Búðinni er nú hægt að lýsa sem notalegri lífsstílsverslun með íslenskri hönn- un í formi fatnaðar, skarts og heim- ilisvöru sem öll er hönnuð og fram- leidd af systrunum, mökum þeirra og starfsmönnum. „Þrátt fyrir að merki okkar systranna séu megin uppistaðan þá kryddum við örlítið með vörum frá Crabtree & Evelyn en við erum miklir aðdáendur húðv- aranna frá þeim og eru gæði og útlit varanna einmitt það sem við vorum að leita eftir. Kormákur og Skjöldur eru með lítið horn hjá okkur og hafa verið sérstaklega vinsælir á Akur- eyri enda sérlega falleg herralína sem býðst ekki annars staðar á Norðurlandinu,“ segir María Krista. Sameina hönnun sína Katla og María Krista hafa mik- inn áhuga á að tvinna hönnun sína meira saman og hafa nú þegar gert eitt verkefni saman en þá hönnuðu þær vörulínu út frá stjörnumerkj- unum sem hefur slegið rækilega í gegn. Fram undan hjá systrunum er að opna vefverslun með vörum Systra og maka og mun hún senda vörur út um allan heim ef allt geng- ur upp. „Okkur langar að geta þjón- að sem flestum ef kostur er,“ seg- ir María Krista. Systurnar hvetja áhugasama til að kynna sér málið á www.systurogmakar.is Unnið í samstarfi við Systur og maka Systurnar María Krista og Katla hafa opnað verslunina Systur og makar á Laugavegi 40 og nutu dyggrar aðstoðar maka sinna. Mynd/Hari H endrikka Waage hefur tek-ið þátt í HönnunarMars frá upphafi segist njóta þess að sjá hátíðina dafna. „Ég kem alltaf til Íslands í tilefni af HönnunarMars og finnst það mjög mikilvægt sem ís- lenskur hönnuður. Það hefur verið virkilega gaman að sjá hvernig há- tíðin hefur vaxið og orðið að merkum árlegum viðburði,“ segir Hendrikka. Glamúr og bóhó-stíll Í ár verður Hendrikka með Pop- up verslun í Evu við Laugaveg þar sem hún sýnir nýja kjóla, silkiklúta og nýtt skart en Hendrikka er fyrir löngu orðin þekkt fyrir glæsilega hringa sína sem hafa birst á síðum allra helstu tískublaða heims síðustu misseri. Ekki síður vinsæl eru arm- böndin og hálsmenin sem hún hann- ar í bóhemískum stíl en nú fetar hún nýjar slóðir í hönnun silkiklúta og kjóla. „Kjólarnir eru blanda af glamúr og bóhemstíl, eða það sem ég kalla „free flowing“ kjóla,“ segir Hend- rikka. Síðkjólarnir eru úr ítölsku silki og efnin eru líka prentuð á Ít- alíu. Þeir eru allir með skemmtilegu munstri og eru frekar litríkir. „Pers- ónulega hef ég alltaf verið hrifin af svona kjólum sem bjóða bæði upp á að vera notaðir við mjög hátíðleg tækifæri en sem er líka hægt að nota hversdagslega. Þessir kjól- ar ganga nefnilega líka mjög vel í bóhó-stíl, við gallabux- ur og sléttbotna skó.“ Síðir kjólar ganga við allt „Þetta eru kjólar fyrir allan aldur,“ segir Hendrikka sem fær innblást- ur sinn frá ferðalögum sínum um heiminn. „Síðir kjólar eru svo mik- ið í tísku og mér finnst að íslenskar konur mættu alveg vera ófeimnari að vera í þeim, við hvaða tækifæri sem er. En svo erum við líka með þrönga kjóla úr bómull og palíettum og ann- að spennandi.“ Bóhemískir silkikjólar Hendrikku Waage Hendrikka Waage hefur tekið þátt í HönnunarMars frá upphafi og nýtur þess að sjá hátíðina dafna. Hún frumsýnir nýja silkikjóla í Pop-up verslun í Evu við Laugaveg þar sem hún mun einnig kynna nýtt skart og klúta. Hendrikka segir að íslenskar konur mættu vera dug- legri að nota síða kjóla, þeir gangi við öll tækifæri. Kjólarnir hennar Hendrikku eru úr ítölsku silki og efnin eru líka prentuð á Ítalíu. Hendrikka segir að íslenskar konur mættu vera duglegri við að nota síða kjóla. Þeir henti ekki bara við mjög fín tækifæri heldur sé fal- legt að nota þá hversdagslega við gallabuxur og flatbotna skó. Hendrikka sýnir líka nýja silkiklúta í Pop- up versluninni, bæði fyrir karla og konur. Hendrikka Waage tekur þátt í Hönnunar- Mars en hún hefur tekið þátt frá upphafi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.