Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 2
Kappakstursbíll á
Toyotasýningu
Á sýningu hjá Toyota í Kauptúni á laugar-
dag og sunnudag verður sýndur kappaks-
tursbíllinn TS030 HYBRID sem hefur m.a.
tekið þátt í Le Mans þolaksturskeppninni,
en í ár fagnar Toyota á Íslandi því að 50
ár eru liðin frá því fyrsti Toyotabíllinn var
seldur á Íslandi. Viðurkenndir söluaðilar
Toyota á Akureyri, Selfossi, í Reykjanesbæ
bjóða einnig til sýningar á laugardag, frá
kl. 12 – 16. Í Kauptúni verður fullkominn
ökuhermir þar sem gestir geta sest undir
stýri á GT86 sportbílnum og sýnt kunnáttu
sína og ökuleikni.
Stoltenberg fundar á
Íslandi
Jens Stoltenberg er staddur hér á landi í
sinni fyrstu heimsókn sem framkvæmd-
astjóri Atlantshafsbandalagsins. Stolten-
berg hitti Sigmund Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra og Gunnar Braga Sveins-
son utanríkisráðherra í gær, fimmtudag.
Á fundinum með forsætisráðherra voru
öryggismál í Evrópu ofarlega á baugi, ógn
af hryðjuverkum sem og málefni Afgani-
stan en Atlantshafsbandalagið stendur
nú að þjálfunaraðgerð í landinu eftir að
aðgerðum alþjóðaliðsins lauk um síðustu
áramót. Einnig voru öryggismál á norðurs-
lóðum rædd, loftrýmisgæsla bandalagsins
hér á landi og netöryggismál.
Svavar í
sauðfjárbúskapinn
Svavar Halldórsson, fyrrverandi frétta-
maður, hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Landssambands sauðfjárbænda.
Frá því Svavar lét af störfum á fréttastofu
RÚV fyrir tveimur árum hefur hann rekið
fyrirtækið Íslenskur matur og matarmenn-
ing, og sendi meðal annars frá sér Íslensku
hamborgarabókina árið 2013.
Í samtali við Bændablaðið segir Þórarinn
Ingi Pétursson, formaður Landssambands
sauðfjárbænda, að þar á bæ geri menn
sér grein fyrir að margir verði undrandi á
þessari ráðningu. „En það er líka bara fínt
stundum að fara í endurmat á stöðunni
þegar mannaskipti verða og horfa í aðrar
áttir. Fyrst og fremst erum við þá að horfa
til þeirra markaðstækifæra sem eru fyrir
greinina, til að mynda á erlendum mörk-
uðum og við teljum Svavar góðan kost
í þeirri stöðu,“ segir Þórarinn í Bænda-
blaðinu.
Björk á topp 100 áhrifamestu
Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona er meðal 100
áhrifamestu einstaklinga í heiminum, samkvæmt
lista TIME sem var birtur í gær, fimmtudag. Björk
er þar nefnd í flokknum „Icon“ eða Átrúnaðargoð,
en aðrir sem nefndir eru í þessum flokki eru
til að mynda Kanye West, tónlistarmaður og
eiginmaður Kim Kardashian, og pakistanska
stúlkan Malala Yousafzai sem fékk
friðarverðlaun Nóbels í fyrra.
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri kynnti
fyrirhugaða hótel-
byggingu á blaða-
mannafundi í Hörpu
í vikunni ásamt
Richard L. Friedman,
forstjóra Carpenter
& Company. Fimm
stjörnu hótel rís við
hlið Hörpu og verður
það rekið af alþjóð-
legri hótelkeðju.
Ljósmynd/Hari
SkipulagSmál BandaríSkt faSteignafélag Byggir á Hörpureit
Hefja framkvæmdir við fimm stjörnu hótel í haust
Bandaríska fasteignafélagið Car-
penter & Company mun kaupa
byggingarrétt að hótelbyggingu á
Austurbakka við hlið Hörpu. Fram-
kvæmdir hefjast í haust og fimm
stjörnu hótel verður opnað eftir
þrjú ár.
Carpenter mun reisa 250 her-
bergja fimm stjörnu hótel á lóðinni
en fela þekktri alþjóðlegri hótel-
keðju rekstur þess. Samningar
þess efnis eru á lokastigi, að því
er segir í fréttatilkynningu Reykja-
víkurborgar. Meðal hótelkeðja
sem Carpenter vinnur með eru St.
Regis, Four Seasons, Marriott og
Hyatt.
Þetta verður fyrsta fimm stjörnu
hótelið á Íslandi. Auk herbergjanna
250 verða þar veislu- og fundarsalir,
heilsulind og fjöldi veitingastaða.
Arionbanki vinnur að skipulagi
fjármögnunar hótelbyggingarinn-
ar og lánsfjármögnun en samið
hefur verið við verkfræðistofuna
Mannvit og T.ark-arkitekta um
hönnun og stjórnun framkvæmda.
Áfram er gert ráð fyrir íbúða- og
verslunarbyggð á suðurhluta lóðar-
innar. -hdm
Samfélag kynjaBilið er ekki einkamál kvenna
Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og leikarinn
Geena Davis, sem um árabil hefur unnið að auknum sýnileika kvenna í
fjölmiðlum- og afþreytingarefni, eru meðal þátttakenda á alþjóðlegri
ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu á 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna í sumar. Halla Tómasdóttir ráðstefnustjóri segir mikilvægt að
brúa kynjabilið í efnahagslegum, viðskiptalegum og samfélagslegum
skilningi.
Christine Lagarde
og Geena Davis tala
á ráðstefnu í Hörpu
i nspirally WE er alþjóðleg ráðstefna sem haldin verður í Hörpu dagana 18.-19. júní af því tilefni að 100 ár
eru liðin frá því að íslenskar konur fengu
kosningarétt.
„Um er að ræða alþjóðlegt samtal um
bestu leiðir til að brúa kynjamuninn, en
betri árangur í því er mikilvægur í efna-
hagslegum, viðskiptalegum og sam-
félagslegum skilningi. Samtalið á sér stað
á Íslandi enda erum við fremst í heimi
þegar kemur að þessum málum,“ segir
Halla Tómasdóttir sem er ráðstefnustjóri.
Halla hefur gengið lengi með hugmynd-
ina að því að halda slíka ráðstefnu á Ís-
landi, og leggur mikla áherslu á að þetta
mál sé ekkert mál kvenna, heldur mál
sem konur og karlar eigi að láta sig varða,
enda blómstra efnahagur, viðskiptalíf og
samfélag hvað best þegar kraftar karla
og kvenna eru fullnýttir. „Ráðstefnan er
haldin í samstarfi við öflug íslensk fyrir-
tæki og frumkvöðlafyrirtækið Inspirally,
sem birtir daglega jákvæðar fréttir af kon-
um og körlum sem eru til fyrirmyndar í
að brúa kynjabilið. Innan skamms verður
einnig opnaður samtalsvettvangur um
þessi málefni, nokkurs konar samfélags-
miðill þar sem fólk getur tekið samtalið
áfram að lokinni ráðstefnu,“ segir hún.
Christine Lagarde, forstjóri Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, sem lagt hefur mikla
áherslu á efnhagslegt mikilvægi þess
að virkja konur til forystu mun ávarpa
gesti í myndskilaboðum við upphaf ráð-
stefnu. Þá mun dr. Michael Kimmel vera
með Barbershop Breakfast fyrir karla að
morgni 19. júní og mun Geena Davis vera
með opnunarávarp þá um morguninn og
síðar þann daga deila alþjóðlegum rann-
sóknum sem hún hefur látið vinna um
áhrif fjölmiðla- og afþreyingarefnis á
drengi og stúlkur. Meðal íslenskra þátt-
takenda eru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
og Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi
Hjallastefnunnar, en Jóhanna Sigurðar-
dóttir og Jón Gnarr verða
einnig með myndinns-
lög.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, flytur ráðstefnugestum skilaboð af
myndbandi eftir að ráðstefnan hefur verið sett.
NordicPhotos/GettyImages
Leikarinn Geena Davis er stofnandi The Geena
Davis Institute on Gender in Media og hefur
um árabil unnið að auknum sýnileika kvenna í
kvikmyndum. NordicPhotos/Getty
Meðal
fyrirlesara á
ráðstefnunni:
Pat Mitchell
Kvenfrumkvöðull
í bandarískri sjón-
varpssögu. Hún var
fyrsti kvenforseti og
kvenforstjóri PBS,
bandaríska ríkissjón-
varpsins, og forseti
CNN Productions. Hún
er einn af stjórnendum
AOL og TEDWomen
og fyrrum forstjóri og
nú ráðgjafi hjá Paley
Center for Media. Hún
er Emmy-verðlaunahafi
og er iðulega á ýmsum
listum yfir áhrifamestu
konurnar.
Ivy Ross
Einn af æðstu stjór-
nendum Google og
stjórnandi teymis sem
vinnur að framgangi
Google Glass. Fyrrum
framkvæmdastjóri
nýsköpunar hjá Procter
and Gamble og marg-
verðlaunaður skart-
gripahönnuður.
Deborah K. Jones
Sendiherra Bandaríkj-
anna í Líbíu, fyrrverandi
sendiherra Banda-
ríkjanna í Kúveit og er
afar hátt sett innan
bandarísku utanríkis-
þjónustunnar.
Dr. Margot Gerritsen
Prófessor við Stan-
ford University og ein
áhrifamesta konan í
heimi stærðfræði, verk-
fræði og tölvunarfræði
í Bandaríkjunum. Yfir-
maður ICME, Institute
for Computational
and Mathematical
Engineering í Stanford.
Tiffany Dufu
Nefnd sem ein af 19
konum sem eru að
ryðja brautina, á lista
Huffington Post og
er ósjaldan nefnd á
listum yfir áhrifamestu
konurnar. Hún er einn
af stjórnendum Levo
League og tók þátt í að
stofna LeanIn, framtak
Sheryl Sandberg. Hún
er í ráðgjafateymi
Women Ready for
Hillary.
Michael Kimmel, sérfræð-
ingur í karlmennskurann-
sóknum, verður með
Barbershop Breakfast
fyrir karla að morgni
19. júní. Mynd/Hari
Gunnar Smári skrifar um
þjóðmálin og hefur tekið
upp þráðinn við matarskrif
Nýr vefur Fréttatímans
er kominn í loftið
www.frettatiminn.is
2 fréttir Helgin 17.-19. apríl 2015