Fréttatíminn - 17.04.2015, Blaðsíða 31
VERKEFNASTJÓRNUN ER FRAMTÍÐIN!
Félag útskrifaðra nemenda úr Meistaranámi í
verkefnastjórnun (MPM) bauð á dögunum til
landins Tom Taylor. Tom er einn ötulasti tals-
maður faglegrar verkefnastjórnunar á Bret-
landi og forseti Association for Project Man-
agement (APM) þar í landi. Hann hélt erindi
á ráðstefnu félagsins þar sem hann ræddi
síaukið mikilvægi verkefnastjórnunar. Tom
sem hefur gefið út fjölda bóka og greina um
nýsköpun í viðskiptalífi og nýjungar í stjór-
nun og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir
afburðarárangur í faglegri verkefnastjórnun.
Erindi þitt fjallaði um strauma og stefnur í
verkefnastjórnun. Hvað er að gerast?
Verkefnastjórnun og verkefnamenning er í
síauknu mæli að verða hluti af daglegu lífi
fólks í nútíma samfélagi. Við sjáum aukinn
áhuga á verkefnastjórnun á öllum sviðum
athafnalífs; ekki aðeins í byggingariðnaði,
hugbúnaðarþróun og verkfræði. Heilbrigðis-
geirinn, hönnuðir, auglýsendur, listamenn,
rannsakendur og viðskiptalífið er að átta sig
á mikilvæginu. Verkefnastjórnun er að verða
fyrsti námskostur reynslumikils fólks sem
vill láta til sín taka og koma hlutum í verk.
Það er mikil efirspurn eftir fólki sem kann að
stýra teymum af skilvirkni og þannig að þek-
king allra nýtist. Metnaðurinn er að aukast
og eins skilningur á hvað skilar raunárangri í
verkefnum. Þá er síaukinn áhugi á sjálfbærni,
Tom Taylor sem vinnur að alþjóðlegri gæðaúttekt á
MPM-náminu litar mynd af inntaki námsins. Hann er
forseti Association for Project Management (APM) í
Bretlandi.
ÞETTA ERUM VIÐ! ÞETTA KUNNUM VIÐ!
MPM-FÉLAGIÐ KYNNIR MEÐ STOLTI KYNNA NÝJA MYND AF INNTAKI MPM-NÁMSINS!
SJÓNRÆN FRAMSETNING Á MEGININNTAKI MEISTARANÁMS Í VERKEFNASTJÓRNUN (MPM) VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK.
siðrænum og „grænum” viðmiðum innan
fyrirtækja og stofnana; og þá bæði í vali á
verkefnum og hvernig þau eru unnin—og
það er gott.
Hvað er fagleg verkefnastjórnun?
Verkefnastjórnun er sérþekking sem gerir
háar faglegar kröfur. Þessari þekkingu er
beitt víða og í miðju atburða þar sem verk-
fræði, viðskiptalíf og menning mætast. Fag-
maður í verkefnastjórnun vinnur á grund-
velli sérfræðiþekkingar sem skilgreind
er al þjóðlega og af fagfélagum á borð við
APM og Verkefnastjórnunarfélag Íslands
(VSF). APM hefur þá hugsjón að auka á
veg og vegsemd verkefnastjórnunar í þágu
viðskipta vina, fyrirtækja og stofnana, og með
almannahagsmuni í huga. Samtökin eru ekki
rekin í ábataskyni og með limir þeirra koma
úr viðskiptalífi, úr félagasamtökum og frá
sveita stjórnum og ríkisstofnunum. Hjá okkur
starfa 60 manns og við erum með skrifstofur
víða, meðal annars í Hong Kong. Í samtöku-
num eru um 20,000 einstaklingar og um 500
fyrir tæki. Við sjáum mikinn vöxt í samtöku-
num í takt við stóraukinn skilning á mikilvægi
verkefnastjórnar í samfélaginu. APM vinnur
hörðum höndum að því að fá löggildingu á
starfsheitinu Charted Project Management
Professional í Bretlandi og við stefnum líka
að nánu faglegu samstarfi við VSF og MPM-
námið í HR.
Hver til tilgangur heimsóknar þinnar?
Ég er að hitta kollega, núverandi og útskrifaða
MPM-nemendur og kynna faglega verkefna-
stjórnun í víðum skilningi. Ég er líka að funda
um þekkingu, útgáfumál og ráðstefnuhald,
og aðstoða HR við innri úttekt á MPM-námuni
og leggja grunn að alþjóðlegri gæðaútekt
þess. Vottunin mun skerpa enn frekar á því
góða starfi sem þar er unnið, stilla strengi og
draga en meiri athygli að MPM-náminu bæði
hér og erlendis. Það er fróðlegt að kynnast
af eigin raun þessu stórmerkilega starfi—ég
veit ekki hvort Íslendingar átti sig fyllilega á
því mikla orðspori sem fer erlendis af frum-
kvöðlastarfi forsvarsmanna MPM-námsins á
Íslandi.
Hvað viltu segja að lokum—eitthvað sem
gæti komið á óvart?
Já, ég hlakka til þess dags þegar allir ráð-
herrar í ríkisstjórn Íslands verði færir um að
beita verkefnastjórnun í ráðsmennsku sinni.
Þetta kann að hljóma sem ögrun eða grín—
en í reynd er þetta aðeins almenn skynsemi,
enda er fagleg verkefna stjórnun besta leiðin
til að gera réttu hlutina rétt. Íslenskt sam-
félag nýtur þess að eiga nú fjölda fólks með
glæsilega menntun á sviði verkefnastjórn-
unar—þetta mun veita ykkur forskot inn í
framtíðina.
Myndin er hugmynd Írisar Hrundar
Þórarinsdóttir sem er að ljúka
MPM-námi við HR. Myndin er hluti
af lokaverkefni hennar sem fjallar
um sjónræna stjórnun.
Grafísk útfærsla: Björk Bjarkadóttir.
hr.is/mpm
sida 4.indd 1 16.04.15 19.01