Fréttatíminn - 17.04.2015, Blaðsíða 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
SlagveðurSrigning framan af degi
S- og v-landS, en rofar til um kvöldið.
HöfuðborgarSvæðið: Rigning fRam eftiR
degi og stRekkingsvinduR.
S-Strekkingur v-til. að meStu Skýjað,
S- og v-til, en Heiðríkt n- og a-landS.
HöfuðborgarSvæðið: skýjað með köflum,
en úRkomulaust.
Svipað veður og á laugardag.
ennþá fremur milt
HöfuðborgarSvæðið: skýjað að mestu,
en þó sólaRglennuR.
góðviðri og
milt um helgina
það kom að því að tíðin breyttist og
umskiptin eru vissulega mikil frá
síðustu helgi. mildir vindar blása
úr suðri, rigning í dag s- og v-til, en
síðan þurrara loft og sólin mun skína
í heiði, einkum norðan-
og austanlands. Hitinn
upp undir og jafnvel
yfir 10 stig, einkum
austanlands á
sunnudag. strax
eftir helgi slær
slær hins heldur í
bakseglin.
6
5 6
9
5
7
6 9
9
6
5
7 9
10
6
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Ólafur og Dorrit í afmæli
drottningar
mar grét
þór hild ur
dana-
drottn ing
fagn aði 75
ára af mæli
sínu í gær,
fimmtu-
dag. ólaf-
ur Ragn ar
gríms son,
for seti
Íslands,
og eig in kona hans, dor rit moussai eff,
sóttu hátíðarkvöldverð í kristjáns-
borgarhöll í kaupmannahöfn af þessu
tilefni á miðvikudagskvöld. ljósmynd/
nordicPhotos/getty
51.500.000
krónur greiddi alþingi 28 þingmönnum
í svokallað akstursgjald, eða vegna
aksturs eigin bifreiða, á síðasta ári.
Þar af voru 18 þingmenn sem fengu
greitt meira en eina milljón króna, en
greiðslurnar eru undanþegnar skatti.
Karólína sigraði
söng kon an karólína jó hanns dótt ir,
nem andi við mR, fór með sig ur af hólmi
í söng keppni fram halds skól anna um
liðna helgi. Hún söng lagið go slow með
Haim og sungu þær guðrún ýr eyfjörð,
krist ín Björg Björns dótt ir og mel korka
davíðsdótt ir bakradd ir. Í öðru sæti varð
Borgarholts skóli og fg í því þriðja.
Gefa frí 19. júní
Ríkisstjórnin hefur hvatt vinnuveitendur,
bæði á almennum vinnumarkaði og hjá
hinu opinbera, til að gera starfsfólki
sínu kleift að taka þátt í skipulögðum
hátíðarhöldum í tilefni af 100 ára
afmæli kosningaréttar kvenna hinn 19.
júní næstkomandi. meðal fyrirtækja
sem ætla að verða við áskoruninni eru
Íslandsbanki, sem hyggst loka útibúum
eftir hádegi þann
dag og gefa starfs-
fólki frí, og vÍs sem
gefur öllu starfs-
fólki frí. sigrún
Ragna ólafsdóttir,
forstjóri vÍs, segir
það sanna ánægju
að verða við hvatn-
ingu stjórnvalda
þessa efnis.
817
ný hótelherbergi verða tekin í notkun í
Reykjavík í ár. miðað við lægstu spá um
fjög ur pró sent ár lega fjölg un ferða-
manna fram til árs ins 2020 er ekki þörf
á fleiri hót el um en þegar eru fyr ir
huguð. sé miðað við hæstu spár um tíu
prósent árlega fjölgun vantar alls um
5.900 fleiri hótelherbergi í borginni.
vikan sem var
darri í næstu
mynd Spielbergs
ólafur darri ólafsson er á leið til
vancouver í kanada þar sem hann mun
leika í næstu mynd stevens spielberg.
myndin kallast Bfg og er byggð á sögu
Roalds dahl. disney framleiðir myndina
sem frumsýnd verður á næsta ári.
ólafur darri leikur risa í myndinni.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
tekur við umsóknum nýnema til 4. maí.
• Kennum á öll klassísk hljóðfæri
• Sérhæfum okkur í kennslu lengra kominna nemenda
• Einvala lið frábærra kennara
Nánari upplýsingar á tono.is og
í síma 553 0625 milli kl. 13-16.
s ímar eru fyrir löngu komnir út fyrir sitt upphaflega verksvið. Í dag er síminn allt í senn samskiptatæki, myndavél,
dagbók og vekjaraklukka, svo fátt eitt sé
nefnt. Flest förum við ekki úr húsi án hans
og samkvæmt rannsóknum förum við heldur
ekki í rúmið án hans. Í rannsókn sem gerð
var fyrir tímaritið Time árið 2012 kom fram
að 75% fólks á aldrinum 18 til 44 ára sefur
með símann innan seilingar. Þetta eru ekki
góðar fréttir ef eitthvað er að marka sífellt
fleiri vísindamenn sem stíga fram og benda á
mögulega skaðsemi snjallasímanna á heilsu
okkar. Snjallsími við rúmið ógnar góðum
nætursvefni, sem er jú ein helsta undirstaða
góðrar heilsu.
ekki til neinar langtímarannsóknir
Sálfræðingar stíga nú í auknum mæli fram til að benda
á skaðsemi þess að vera stöðugt tengdur við símann og
netið á andlega heilsu okkar. Rannsókn sem unnin var
fyrir Gautaborgarháskóla árið 2012 sýndi fram á aukið
stress og álag ungra snjallsímanotenda, sem í alvar-
legum tilfellum geti leitt til þunglyndis.
„Ég held að þetta sé alls ekki sniðugt,“ segir
Erna Björnsdóttir, sálfræðingur og varafor-
maður Hins íslenska svefnfélags. „Í fyrsta
lagi þá senda þessir símar frá sér allskyns
bylgjur sem vitum ekki hvaða áhrif hafa á
heilsuna. Það eru ekki nema tíu ár síðan
þessir símar komu á markaðinn og þar af
leiðandi ekki til neinar langtímarannsóknir.
Ef fólk kynnti sér málið myndi það sjá að
allir þessir símar koma með viðvörunum um
að ekki megi hafa þá nálægt höfðinu lengur en
í ákveðinn tíma og að ekki megi sofa með þá
nálægt sér. Ég hef alltaf mælt með því við fólk
sem vill nota símann sem vekjaraklukku, að
stilla hann þá allavega á flugvélastillingu svo
hann sendi ekki frá sér bylgjur alla nóttina,“
segir Erla en rannsóknir hafa sýnt að örbylgjur, í miklu
magni, geta valdið krabbameini.
Svefnvandamál algeng hjá ungu fólki
Farsímar eru sagðir gefa frá sér það lítið magn af
örbylgjum að ekki sé mögulegt að tengja
notkun þeirra við krabbamein. Þrátt fyrir
það fannst Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
inni ástæða til þess að vara fólk við notkun
þeirra árið 2011, vegna mögulegrar hættu
á krabbameini.
„Mér finnst hrikalegt þegar ég fæ til
mín fólk sem er með öpp í símanum til að
greina svefninn sinn og er jafnvel að sofa
með snjallsímann undir koddanum. Þá
eru símarnir að senda bylgjur beint upp í
höfuð og það finnst mér alls ekki sniðugt,
fyrir utan brunahættuna sem fylgir því
að hafa símann í rúminu. Þar að auki er
stöðugt áreiti frá snjallsímanum vegna
meldinga frá Facebook eða úr pósthólfinu
sem geta haldið vöku fyrir fólki. Svefn-
vandamál eru mjög algeng hjá ungu fólki
og maður þekkir þetta sérstaklega hjá unglingum sem
bjóða mömmu og pabba góða nótt, loka svefnherbergis-
dyrunum og fara svo að spjalla við vini eða þá að horfa á
þætti í símanum langt fram eftir nóttu.“
Ljós og hljóð trufla svefninn
Rannsóknir hafa einnig sýnt að ljósið sem snjall-
símar og tölvur gefa frá sér minnkar fram-
leiðslu hormónsins melatóníns sem hjálpar
okkur að sofna á kvöldin. Erla segir fólk vera
misviðkvæmt fyrir áreiti í svefni en hljóð
frá snjallsímum geti raskað ró okkar, jafn-
vel þó að við séum fallin í djúpsvefn. „Það
er almennt ekki mælt með því að nota nein
raftæki í svefnherberginu og sérstaklega
ekki ef við eigum erfitt með svefn. Okkur er
langhollast að svefnherbergið sé bara fyrir
svefn. Svo eru gömlu góðu vekjaraklukk-
urnar enn mjög góðar og gildar auk þess að
vera ódýrar,“ segir Erla. „Ég hef alltaf sagt
að snjallsímar eigi ekki heima í svefnher-
bergjum. Það ætti að vera einhver staður á
heimilinu þar sem allir skila af sér símunum á kvöldin.
Við þurfum ekkert á símanum að halda yfir blánóttina.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
lýðheilsa sérFræðingur varar við notkun snjallsíma í rúminu
Ekki skynsamlegt að nota
snjallsíma sem vekjaraklukku
við förum ekki úr húsi án snjallsímanna og samkvæmt rannsóknum förum við heldur ekki í rúmið
án þeirra. en snjallsímar senda frá sér örbylgjur sem urðu tilefni til viðvarana alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar árið 2011, þar sem þær gætu mögulega valdið krabbameini. Rannsóknir sýna auk
þess að stöðug síma og netnotkun hafi neikvæð áhrif á andlega heilsu. Erla Björnsdóttir, sál-
fræðingur og sérfræðingur í svefnvandamálum, mælir með því að fjölskyldan leggi símunum á
kvöldin og taki þá alls ekki með í svefnherbergið.
það er kannski kom-
inn tími til að draga
fram gömlu góðu
vekjaraklukkuna.
snjallsími við rúmið
ógnar góðum nætur-
svefni, sem er ein
helsta undirstaða
góðrar heilsu.
erla Björnsdóttir, sál-
fræðingur og sérfræð-
ingur í svefnvanda-
málum, segir snjallsíma
ekki eiga heima í
svefnherberginu.
4 fréttir Helgin 17.19. apríl 2015