Fréttatíminn - 17.04.2015, Page 22
ÓGLEYMANLEG KVEÐJA
Sendu fermingarbarninu persónulegt skeyti
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5-
05
00
Pósturinn býður þér að setja þína eigin mynd á fermingarskeytið
og undirstrika þannig þínar persónulegu framtíðaróskir til
fermingarbarnsins.
Gefðu sköpunargáfunni og tilfinningunum
lausan tauminn á postur.is/fermingar
SK
EY
TI
Els
ku
Kri
stín
Við
se
ndu
m þ
ér
inn
ileg
ar
ham
ing
juó
ski
r m
eð
fer
min
gar
dag
inn
.
Kæ
rar
kv
eðj
ur
frá
só
linn
i.
Gu
ðrú
n fr
æn
ka
SKEYT
I
Elsku Þ
orsteinn
okkar
Við sen
dum þé
r innileg
ar ham
ingjuós
kir með
fermin
gardagi
nn.
Megi þé
r farnas
t vel í fr
amtíðin
ni.
Dóri og
Lauga
Leiðsögu-
hundurinn
eykur sjálf-
stæði og
lífsgleði
Halldór Sævar Guðbergsson hefur alla tíð verið með mikið
skerta sjón en fyrir tveimur árum missti hann sjónina alveg.
Í febrúar fékk hann leiðsöguhundinn Bono sem hefur fylgt
honum líkt og skuggi síðan. Halldór segir Bono veita sér aukið
sjálfstæði, öryggi og félagsskap. Í dag hefst Rauðafjöðurs-
söfnun Lions-hreyfingarinnar en að þessu sinni er safnað fyrir
kaupum á og þjálfun blindrahunda.
Halldór Sævar
Guðbergsson og
leiðsöguhundurinn
Bono. Til eru 7
leiðsöguhundar á
landinu en í dag,
föstudaginn 17.
apríl, hefst Rauða-
fjöðurssöfnun
Lions-hreyfingar-
innar og verður
söfnunarfé varið til
kaupa og þjálfunar
á blindrahundum.
Ljósmynd/Hari
Þ að eru mikil lífsgæði sem felast í leiðsöguhundi og þar af leiðandi líka lífsgleði,“
segir Halldór Sævar Guðbergs-
son, varaformaður Blindrafélags
Íslands og Öryrkjabandalagsins.
Halldór fékk leiðsöguhundinn
Bono í febrúar og segir þá félaga
hafa verið að venjast hvor öðrum
síðan. „Við erum alltaf saman og
lærum hægt og rólega á hvorn
annan, en hundaþjálfarar tala um
að það taki allt að einu ári að ná
fullkominni samvinnu milli blinds
manns og leiðsöguhunds. Mér
finnst okkur ganga talsvert vel og
ég finn hvernig sjálfstæði mitt er
að aukast.“
Augun bræða hvern sem er
„Um daginn var ég að ganga Hrísa-
teiginn, þar sem ég bý, en þá var
búið að grafa sundur gangstéttina
á einum stað og setja vinnustólpa
fyrir. Bono snarstoppaði við stólp-
ana og þá fann ég með stafnum
hvað var fram undan. Svo beygði
hann fram hjá hindruninni og út á
götuna og þá fann ég í fyrsta sinn
hvernig hann leysti svona vanda-
mál.“
„Leiðsöguhundur er fyrst og
fremst umferlistæki og hann
hjálpar mér að komast um í mínu
hversdagslega umhverfi. Hann er
auðvitað ekki staðsetningartæki,
ég get ekki sagt honum að koma
mér á Suðurlandsbraut 20, ég þarf
að þekkja mínar leiðir vel og hlusta
vel eftir umferð og þess háttar. En
Bono aðstoðar mig við öryggisat-
riðin. Hann lætur mig vita þegar
ég er t.d. kominn að gangstéttar-
brún með því að stoppa en ég verð
alltaf að stýra honum. En auðvi-
tað er hundurinn miklu meira en
hjálpartæki, við erum alltaf saman,
hann er eins og skugginn af mér
og við erum orðnir miklir félagar.
Hann kallar dálítið á athygli en
þegar hann er í vinnubeislinu á
helst ekki að tala við hann, því
þá er hann í vinnunni. En ég veit
að það er mjög erfitt fyrir fólk að
hlýða því, því augun hans bræða
víst hvern sem er.“
Ætlar með Bono upp Esjuna
Halldór hefur verið með mikið
skerta sjón frá fæðingu en missti
hana alveg fyrir tveimur árum.
„Það hefur margt verið að mínum
augum en ástæða þess að ég er
orðinn alveg blindur er sú að sjón-
taugin er alveg ónýt. Það var vegna
gláku og hornhimnuvandamála.
Ég hef farið í um 50 augnaðgerðir
á hægra auga en hef verið blindur
á vinstra auga frá því ég fæddist.“
Halldór er mikill göngumaður
og hefur ekki látið skerta sjón
hindra sig í að fara á fjöll. Hann fer
alltaf nokkrum sinnum á Esjuna
hvert einasta sumar. „Ég bind
miklar vonir við að hreyfa mig
með Bono í sumar en það hefur
ekki verið mikið ferðaveður í
vetur vegna snjós og hálku. Það
sem gerist í þannig veðri er að öll
kennileiti hverfa fyrir mig og eins
er erfiðara fyrir hund að stoppa við
gangstéttarbrún ef hún er á kafi
undir snjó og hálku. Ég hef mjög
gaman af því að fara í gönguferðir
og fjallgöngur og ætla að prófa við
fyrsta tækifæri að fara með Bono
upp Esjuna.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
22 viðtal Helgin 17.-19. apríl 2015