Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.04.2015, Page 24

Fréttatíminn - 17.04.2015, Page 24
Ef leiksýning er ekki góð, er það leikstjóranum að kenna, segir Vignir Rafn Valþórsson. Ljósmynd/Hari Er eiginlega atvinnulaus leikari Borgarleikhúsið frumsýnir í næstu viku leikritið Peggy Pickett eftir eitt þekktasta samtímaskáld Þjóðverja, Roland Schimmelpfennig. Leikstjóri verksins er Vignir Rafn Valþórsson sem á undanförnum árum hefur getið sér gott orð sem einn áhugaverðasti leikstjórinn í íslensku leikhúslífi. Vignir ræddi við Fréttatímann um leikhús og leikstjórn, en hann langar að leika meira. V ignir Rafn Valþórsson hefur á undanförnum árum leik-stýrt meira en leikið, þrátt fyrir að vera lærður leikari. Í vetur stýrði hann Lísu í undralandi hjá Leikfélagi Akureyrar, síðasta vet- ur Bláskjá og Refnum árið 2013 í Borgarleikhúsinu. Hann segir hlut- ina hafi bara þróast í þessa átt því honum var sagt upp sem leikara. „Peggy Pickett sér andlit guðs, er skrifað árið 2010 fyrir kanadísk- an leikhóp sem hóaði saman vest- rænum og afrískum listamönnum, paraði þá saman og þeir gerðu þrjú verk sem kallaðist The African Tri- logy,“ segir Vignir. „Þetta voru lítt þekktir listamenn fyrir utan Schim- melpfenning sem var smá stjarna eftir að hann skrifaði Gyllta drek- ann, verk sem var sýnt í Borgar- leikhúsinu fyrir nokkrum árum. Hans verk í þessum þríleik er það eina sem hefur lifað. Verkið fjallar í grófum dráttum um tvö læknahjón sem voru saman í námi,“ segir Vign- ir. „Eftir útskrift fóru önnur hjónin að vinna við hjálparstarf en hin urðu eftir heima og áttu mikilli velgengni að fagna. Þau hittast svo sex árum seinna og eru með sitt hvora sýnina á lífið,“ segir hann. „Hvorugt með eitthvað réttari sýn en hitt. Þetta tæklar bara hvernig við eigum að vera með samviskubit yfir ástand- inu í Afríku,“ segir Vignir. „Við borgum í Unicef eða eitthvað slíkt í hverjum mánuði í rauninni bara fyr- ir okkur sjálf. Friðum samviskuna og þá þurfum við ekkert að vita neitt meira. Okkur líður betur að halda að einhverjum í Afríku líður betur,“ segir Vignir. „Í rauninni er þetta klassískt stofudrama sem fjallar um samskipti fólks, og hvaða væntingar við berum til lífsins, en galdurinn er að það er skrifað á mjög óvenju- legan hátt.“ Þarf ekki að fá hugmyndina sjálfur Vignir Rafn útskrifaðist sem leik- ari frá Listaháskólanum árið 2007 og var mjög áberandi á sviði og í sjónvarpi fyrstu árin eftir útskrift. Hann segir leikstjórnina bara eitt- hvað sem æxlaðist. „Frá 2010 hef ég nær eingöngu leikstýrt. Ég var í Þjóðleikhúsinu eftir útskrift og var svo rekinn þaðan,“ segir Vignir. „Þá varð ég að búa eitthvað til. Ég var bara duglegur að gera mitt eig- ið þangað til Magnúsi Geir fannst hann hafa séð nóg til þess að treysta mér fyrir verki í Borgarleikhúsinu, sem var verkið Refurinn. Svo sett- um við í Óskabörnum ógæfunnar upp Bláskjá í samstarfi við Borgó og Kristín Eysteinsdóttir treysti mér svo áfram fyrir Peggy Pickett.“ Finnurðu þig betur í þessu hlut- verki, en í því að vera uppi á sviði? „Öðruvísi,“ segir Vignir. „Ástæð- an fyrir því að ég fór að vinna í leikhúsi var að samtvinna öll mín áhugamál. Í leikstjórninni get ég verið að fikta í leikmyndum, bún- ingum og lýsingu og hafa skoðun á fleiri hlutum. Ég er til dæmis bara með íslenska 90´s músík í Peggy Pickett svo Villi naglbítur vinur minn fái Stefgjöld,“ segir Vignir. „Mér finnst það mjög gaman að fá að hafa skoðun á þessu öllu. Mér finnst samt ekkert mál að vera gaur- inn sem fékk ekki hugmyndina. Það liggur í augum uppi að nokkrir fá betri hugmyndir en einn, en það er þá mitt hlutverk að velja,“ segir Vignir. „Ég stend með því vali því ef leiksýning er ekki góð, er það bara leikstjóranum að kenna.“ Það nennir enginn að dæma leikhús Hvernig tilfinning er það að fá dóma sem eru mönnum ekki að skapi? „Það segja allir að þetta skipti engu máli og þetta sé skoðun eins manns, en þetta skiptir öllu máli og þess vegna finnst mér sorglegt að það sé ekki betur að þessu hlúð í fjölmiðl- um,“ segir Vignir. „Ég held að það sé aðallega vegna þess að það er eng- inn sem nennir að gera þetta. Þetta er vanþakklátt starf, og mjög mikið af fólki að skrifa um leikhús sem hefur ekki nægilega þekkingu á því. Leikstjóri vinnur í hálft ár að svona sýningu,“ segir Vignir. „Í tvo mánuði eru æfingar með leikurum, andvöku- nætur og erfitt fyrir alla sem koma að verkinu. Svo kemur kannski bara einhver blaðamaður sem á boðs- miða á frumsýningu, fer heim til sín og myndar sér skoðun í mesta lagi klukkutíma og gefur þrjár stjörnur. Fólkið les og segir í næsta boði, þetta fékk nú ekki góða dóma.“ Ættu leikarar þá ekki að viður- kenna það að þetta skiptir máli? „Það skiptir mig jafn miklu máli þegar einn gestur er óánægður í fermingarveislu,“ segir Vignir. „Nú eru allir orðnir gagnrýnendur á Facebook til dæmis. Mér finnst allt í lagi að leikarar og leikstjór- ar viðurkenni það að þetta skiptir máli. Það eru mikil völd hjá þeim sem skrifa og skrifin geta hæglega drepið sýningar. Við erum að gera okkar besta og ef einhverjum finnst það ekki gott, þá segir maður bara ok, ég er allavega að reyna að búa til leikhús. Þú ert bara að skrifa um það,“ segir Vignir. Atvinnulaus leikari Vignir segir leikarann í sér vera að vakna úr dvala eftir að hafa leikstýrt samfleytt í fimm ár. Hann finnur að hann langar mikið til þess að standa á sviðinu á ný. „Ég fer beint eftir Peggy Pickett að leikstýra leikhópn- um Lottu og á næsta ári setja Óska- börn ógæfunnar upp verk í Borgar- leikhúsinu sem heitir Illska, eftir sögu Eiríks Norðdahl. Mig langar að leika núna, svo ég er eiginlega atvinnulaus leikari,“ segir Vignir. „Það er samt ekkert í pípunum.“ Eru Þjóðverjar að gera gott leik- hús í dag? „Já, þeir eru langbestir,“ segir Vignir. „Það eru margir sem halda að þýskt leikhús sé að standa nak- inn og hella súrmjólk yfir sig, en það er búið. Í dag eru þeir með ákveðna sýn á það hvernig á að segja sögu, ég er svolítið að reyna að stela frá þeim í Peggy. Þetta er óvenjuleg sýning. Þetta er ekki kassastykki og verður það aldrei, en við erum að gera okkar besta,“ segir Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri og at- vinnulaus leikari. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Fyrst og fremst þjónustustarf! Nemaþing útskriftarnema í þroskaþjálfafræðum verður haldið þann 17.apríl 2015 í fyrirlestrarsalnum Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð frá kl. 9.00 – 16.00. Þar kynna nemendur þróunarverkefni undir yrskriftinni þroskaþjálfun framtíðarinnar. Verkefnin endurspegla sýn nemenda á stöðu mála, helstu áskoranir og tækifæri í þeirri viðleitni að skapa eitt samfélag fyrir alla. Frítt er á ráðstefnuna og boðið verður upp á ljúfar veitingar. 24 viðtal Helgin 17.-19. apríl 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.