Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 40
40 heilsa Helgin 17.-19. apríl 2015 Í þrótta- og ólympíusamband Ís-lands stendur fyrir ráðstefnu um íþróttir barna og unglinga og verður ráðstefnan haldin í Laugarásbíói í dag, föstudag, milli klukkan 11 og 14.30. Ráðstefnan verður einnig í beinni útsendingu á heimasíðu ÍSÍ. Fyrirlesarar verða reyndir þjálfarar úr ólíkum greinum íþrótta og aðrir einstak- lingar með margvíslega aðkomu að íþróttum barna og unglinga. Leiddist út í þjálfun eftir meiðsli Fyrirlestur Pálmars ber yfirskrift- ina: Jákvæð nálgun og félagsstarf í íþróttaþjálfun barna. „Ég mun tala um þær aðferðir sem ég nota til að byggja upp jákvætt og skemmti- legt andrúmsloft í íþróttum barna þar sem allir fá að njóta sín, óháð getu,“ segir Pálmar, en hann er með BS gráðu í sálfræði og hefur þjálfað körfubolta í tíu ár. „Það má segja að ég hafi alist upp í körfu- boltanum, en ég æfði og spilaði með meistaraflokki þangað til ég var 19 ára. Ég meiddist og gat ekki tekið þátt á næstu leiktíð. Þá vantaði einmitt þjálfara í einn af yngri flokkunum og ég tók það að mér, mjög hikandi samt. En svo heillaðist ég algjörlega af þessu starfi og hef sinnt því síðan.“ Jákvæð sýn á lífið Pálmar hefur ávallt tileinkað sér jákvæða sýn á lífið og nýtir það jafnframt í þjálfuninni. „Ég hef það líklega frá pabba mínum sem var líka í körfuboltanum. Með reynslunni og árunum hef ég svo þróað með mér aðferðir sem virka og skila sér með góðum árangri.“ Síðustu sex árin hefur Pálmar séð um þjálfun 5-9 ára stráka. „Það þarf vissulega að beita annarri nálgun á yngri iðkendur en í grunninn virkar það sama hjá öllum.“ Litlu hlutirnir geta breytt öllu Ein af aðferðunum sem Pálmar beitir er að heilsa öllum fyrir og eftir æfingar og reyna að ná að tala við alla persónulega á hverri æfingu þannig að börnin finna að þau eru mikilvægur hluti af hópnum. „Þetta er lítið og einfalt atriði sem allir geta gert og getur í raun breytt öllu. Með því að heilsa börnunum með nafni, gefa „five“ og brosa verða allir glaðari. Í lok æfingar sest ég svo við dyrnar og kveð alla og þakka þeim fyrir æfinguna.“ Það eru því litlu hlut- irnir sem skipta máli. Pálmar segir einnig að það skipti miklu máli að hann sé alltaf klæddur í íþróttaföt á æfingum og talar af áhuga um íþróttina sem smitar frá sér. Virkari foreldrar – ánægðari börn Í fyrirlestrinum mun Pálmar einnig tala um samskipti sín við foreldra. „Ég legg áherslu á að kynnast foreldrum og kynni þá fyrir hver öðrum. Því meiri stemning sem er meðal for- eldra því meiri stemning verður í starfinu almennt. Ég gef þeim gott yfirlit yfir skipulag vetrarins og reglulega upplýsingagjöf yfir tímabilið,“ segir Pálmar. „Það er auk þess mín reynsla að því virkari sem foreldrarnir eru, því betur njóta börnin sín í íþróttum,“ bætir hann við. Fyrirlestur Pálmars, sem og annarra fyrirlesara, verður aðgengilegur heimasíðu ÍSÍ að ráð- stefnunni lokinni. Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Heilsar öllum fyrir og eftir æfingar Pálmar Ragnarsson þjálfar 57 hressa körfuboltastráka hjá KR og tekur í spaðann á hverjum og einum fyrir og eftir æfingu. Hann leggur áherslu á að byggja upp jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft á æfingum og mun halda fyrirlestur þess efnis í dag, föstudag, á ráðstefnu á vegum ÍSÍ um íþróttir barna og unglinga sem ber yfirskriftina: Erum við á réttri leið? Pálmar Ragnarsson fjallar um jákvæða nálgun og félagsstarf í íþróttaþjálfun barna á ráðstefnu á vegum ÍSÍ í dag, föstudag. Hann segir litlu hlutina skipta miklu máli, eins og að heilsa öllum fyrir og eftir æfingu. Ljósmynd/Hari. 30 Vinsælt og gagnlegt námskeið fyrir einstaklinga og pör. • Slökunnarnudd með völdum ilmkjarnaolíum. • Djúp- og þrýstipunktanudd ásamt svæðameðhöndlun. • Farið í ilmolíur og góðar uppskriftir. Baknuddnámskeið helgina 25 - 26 april n.k. Frá kl. 11.00- 15.00 LÖNGUN Í SÆTINDI NÁNAST HORFIN MEÐ ZUCCARIN ! RÓSA HARÐARDÓTTIR BLÓÐSYKURINN Í JAFNVÆGI ▶ Ég átti ekki sérstaklega von á því að sjá árangur og kom það mér því á óvart þegar ég fann að ég var orðin orkumeiri og orðin fimm kílóum léttari á einum mánuði. ▶ Ég hef ég sótt meira í sykur og sætindi en áður. Ég var alltaf að narta í eitthvað, til dæmis nammi eða popp á kvöldin. Þess vegna hafa kílóin læðst á mig hægt og rólega. ▶ Ég er ánægð með árangurinn og ætla að halda áfram að taka Zuccarin því mér líður betur en áður og er orkumeiri og léttari. BERGLIND STOLZENWALD JÓNSDÓTTIR ▶ Ég fann fyrir vanlíðan eftir að hafa borðað sælgæti og kökur, fann til í skrokknum og fékk höfuðverk. ▶ Zuccarin töflurnar eru aðallega unnar úr laufum af japanska mórberjatrénu. Einnig innihalda þær króm. ▶ Laufin innihalda sérstakt efni sem kallast DNJ en það getur komið í veg fyrir upptöku sykurs úr matnum sem við neytum. DNJ getur því haldið blóðsykrinum í jafnvægi og minnkað löngun í sykur. Króm getur hjálpað til við að viðhalda eðlilegum efnaskiptum. ▶Taktu eina töflu fyrir hverja máltíð og þú finnur fljótt muninn. ▶ Eftir að ég fór að taka Zuccarin er þetta hins vegar ekkert mál. Ég hef nánast enga löngun í súkkulaði og önnur sætindi og finn að ég er öll kraftmeiri.“ ▶ Ég hef gert margar tilraunir til að útiloka sykur úr daglegri fæðu með misgóðum árangri. www.icecare.is Endilega skráðu þig í IceCare klúbbinn okkar www.icecare.is Viltu vinna 12 mánaða kammt af Bio Kult ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.