Fréttatíminn - 17.04.2015, Side 48
48 fjölskyldan Helgin 17.-19. apríl 2015
Nær þúsund myndir
frá 43 grunnskólum
Börn Um 120 viðBUrðir á Barnamenningarhátíð
Barnamenningarhátíð í fimmta sinn
Ratleikur í varðskipinu Óðni,
danssýning í Eldborg, spila
stund í Ráðhúsi Reykjavíkur
og hæfileikakeppnin Reykjavík
got talent eru meðal þeirra 120
viðburða sem verða á dagskrá
Barnamenningarhátíðar Reykja
víkur í ár. Hátíðin verður haldin
í fimmta skipti frá þriðjudegin
um 21. apríl til sunnudagsins 26.
apríl. Markmið hátíðarinnar er
að efla menningarstarf barna og
unglinga í borginni og skapa vett
vang þar sem þau fá bæði kost á
að njóta menningar og taka þátt
í að ýmiss konar sköpun.
Hátíðin er fyrir börn og ung
linga allt frá tveggja ára til 16 ára.
Það eru því fjölbreyttir viðburðir
í boði sem höfða til mismunandi
hópa á þessu aldursbili. Gæði,
f jölbreytni, jafnræði og gott
aðgengi eru höfð að leiðarljósi
við skipulagningu hátíðarinnar
sem rúmar allar listgreinar og
er byggð upp á fjölbreyttum við
burðum sem börn og fullorðnir í
fylgd með börnum geta sótt sér
að kostnaðarlausu.
Dagskrá hátíðarinnar í heild
sinni má nálgast á vefnum Barna
menningarhatid.is. eh
Fjöldi viðburða á Barnamenningarhátíð
Reykavíkur verða haldnir í Hörpu, en um 120
viðburðir verða haldnir víðs vegar um borgina
á meðan á hátíðinni stendur.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
30ÞÚSUND AFSLÁTTUR!VERÐ ÁÐUR 199.900
2
DAGA
TILBOÐ
GTA V FYLGIR
MEÐAN
BIRGÐIR END
AST!
Black edition lúxus fartölva úr úrvals-
deild Acer með Soft-touch metal finish,
17” Full HD IPS skjá, ofur öflugu leikja-
skjákorti og Dolby 4.0 hljóðkerfi.169.900
NITRO
SkólamjólkUrdagUrinn ÚrSlit í teikniSamkeppni grUnnSkólaBarna
Ein af verðlaunateikningunum. Höfundur hennar er Ella Rose T. Patambag í 4. VE í
Fellaskóla. Fellaskóli hefur verið sigursæll í keppninni og átt vinningsmyndir mörg
ár í röð.
Ú rslit í árlegri teiknisamkeppni fjórðu bekkinga í grunnskólum landsins
réðust á dögunum en það var
menntamálaráðherra og for
maður dómnefndar, Illugi Gunn
arsson, sem tilkynnti úrslitin.
Keppnin er haldin í tengslum við
Alþjóðlega skólamjólkurdaginn,
sem er í september ár hvert, og
var það í fimmtánda skipti sem
dagurinn var haldinn hátíðlegur
síðastliðið haust. Að sögn Guð
nýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra
MS, er markmið keppninnar að
vekja athygli á mikilvægi mjólkur
og hollustu hennar í daglegu
mataræði barna og það hefur sýnt
sig að neysla mjólkur hefur aukist
í grunnskólum á undanförnum
árum. Það er að undirlagi Mat
vælastofnunar Sameinuðu þjóð
anna sem skólamjólkurdagurinn
er haldinn og eru verðlaunateikn
ingarnar notar á veggspjöld og
annað kynningarefni vegna hans
í framhaldinu, en slíkt vekur bæði
stolt og lukku meðal nemendanna.
Í framhaldi af skólamjólkurdeg
inum hófst teiknisamkeppnin og
höfðu nemendurnir góðan tíma til
að vinna að myndunum og nutu til
þess leiðsagnar frá kennurum sín
um. „Eins og undanfarin ár barst
mikill fjöldi teikninga í samkeppn
ina og hugmyndaflug, sköpunar
gáfa og litagleði var ótæmandi hjá
börnunum. Alls bárust tæplega
eitt þúsund myndir í keppnina frá
43 grunnskólum á landinu svo
það var mikið og vandasamt verk
sem beið dómnefndarinnar,“ segir
Guðný.
Að lokum eru tíu nemendum
veittar viðurkenningar fyrir teikn
ingar sínar og fær hver verðlauna
hafi 25.000 krónur sem renna
óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi.
Vinningshafarnir í teiknisam
keppninni 2014 eru: Arion Aron
Veselaj – Fellaskóla, Reykjavík,
Ella Rose T. Patambag – Fella
skóla, Reykjavík, Ragnhildur
Guðmundsdóttir – Flataskóla,
Garðabæ, Anna Nguyen Ngoc Ha
– Fossvogsskóla, Reykjavík, Sindri
Sigurðsson – Hrafnagilsskóla,
Eyjafjarðarsveit, Auður Dís Krist
jánsdóttir – Húsaskóla, Reykja
vík, Heiða María Hannesdóttir –
Lágafellsskóla, Reykjavík, Markús
Birgisson – Lindaskóla, Kópavogi,
Saule Viktoría Tyscenko – Snæ
landsskóla, Kópavogi og Markús
Heiðar Ingason – Víðistaðaskóla
við Engidal, Hafnarfirði.
Mjólkursamsalan þakkar 4.
bekkingum kærlega fyrir þátt
tökuna og óskar vinningshöfum
og skólunum þeirra innilega til
hamingju.
Tíu grunnskólanemendum voru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar. Hver verðlaunahafi
fékk 25 þúsund krónur sem renna í bekkjarsjóð viðkomandi.
p
Fósturforeldrar - fósturbörn
Hefur þú áhuga á að gerast fósturforeldri?
Barnaverndarstofa leitar að fólki sem er
reiðubúið að sækja um leyfi til að taka börn
í fóstur og að taka þátt í sérstakri þjálfun
því til undirbúnings. Um getur verið að
ræða tímabundið og/eða varanlegt fóstur.
Æskilegt er að fósturheimili séu í eða í
námunda við þéttbýli. Ýmis reynsla og
menntun, einkum á sviði umönnunar
barna, getur komið að góðu gagni.
Nánari upplýsingar eru veittar á
Barnaverndarstofu sími: 530 2600
eða netfang: bryndis@bvs.is.
Einnig er hægt að afla sér upplýsinga um
umsóknarferli og hlutverk fósturforeldra á
www.bvs.is
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
20% afsláttur af öllum vörum frá Bóboli
föstudag og laugardag