Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 58
Frá tónleikum Hreims
og hálfvita í Ýdölum
um síðustu helgi.
Tónleikar 40 ára afmæli karlakórs
Hreimur og hálfvitar
Karlakórinn Hreimur úr Þingeyjarsýslu fagnar um
þessar mundir 40 ára afmæli og af því tilefni hafa kór-
félagar tekið höndum saman með gleðisveitinni Ljótu
hálfvitunum, sem ættaðir eru úr sömu sveit, að mikl-
um meirihluta. Um síðustu helgi héldu þeir tónleika
í félagsheimilinu Ýdölum í heimabyggðinni og þurftu
margir frá að hverfa, slík var aðsóknin. Um helgina
ætlar hópurinn að endurtaka leikinn í Reykjavík, í Há-
skólabíói á laugardaginn. Karlakórinn Hreimur byrjaði
sem bændakór en hefur í gegnum árin þróast og er í dag
skipaður mönnum á öllum aldri sem koma frá ýmsum
starfstéttum og koma menn keyrandi allt að 80 km leið
á æfingar.
Ljótu hálfvitana þarf vart að kynna en þeir eru þekkt-
astir fyrir líflega og skemmtilega sviðsframkomu og
tónleikar þeirra þykja hin besta skemmtun. Á efnis-
skrá tónleikanna verða alkunn karlakórslög í bland
við lög þeirra Hálfvita og allir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Stjórnandi Hreims er Steinþór Þráinsson, undirleik-
ari er Steinunn Halldórsdóttir og einsöngvari Ásgeir
Böðvarsson. Hálfvitarnir verða þeir sömu og venjulega.
Tónleikarnir á laugardaginn hefjast klukkan 15. Miða-
sala er á www.midi.is og í afgreiðslu Háskólabíós. -hf
kórsöngur 140 syngjandi konur á sumardaginn fyrsTa
Kvenorka og ham-
ingjusprengja í Hörpu
Af tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna munu mæðginin Margrét Pálmadóttir og Maríus Her-
mann Sverrisson stjórna 140 syngjandi konum í Hörpu á Sumardaginn fyrsta. Á efnisskránni eru
klassísk lög sem ömmur okkar allra elskuðu en sem munu fá nýja vídd í flutningi kvennanna. Auk
kóranna, sem allir æfa í Sönghúsinu Domus Vox, munu Diddú og Maríus syngja einsöng.
s ýnilegar konur í listum eru það fallegasta sem ég veit,“ segir Margrét Pálmadóttir,
kórstýra með meira, en á sumar-
daginn fyrsta, næstkomadi fimmtu-
dag, munu 140 konur fagna 100
ára kosningaafmæli kvenna með
söng og almennri gleði í Norður-
ljósasal Hörpu. Það eru kvennakór-
arnir Aurora, Cantabile, Hrynjandi
og Vox feminae sem standa fyrir
viðburðinum en kórarnir æfa allir
í Sönghúsinu Domus Vox undir
stjórn mæðginanna Margrétar
Pálmadóttur og Maríusar Sverris-
sonar, einsöngvara og kórstjóra.
„Það eru allskonar konur í
þessum kórum, á öllum aldri og af
öllum stærðum og gerðum. Allar
þessar konur koma á æfingar úr
ólíku umhverfi en ná samt að sam-
einast í söngnum. Hjúkrunarkona
mætir á æfingar í heilan vetur og
stígur svo á eitt fínasta tónleikasvið
Evrópu á sumardaginn fyrsta til að
fagna kosningarétti kvenna. Það er
bara eitthvað virkilega fallegt við
það og það gerir mig ofboðslega
stolta,“ segir Margrét.
Hljóðfærið kvennakór
„Þetta verður þreföld hamingja. Í
fyrsta lagi erum við að fagna því
hvað konur á Íslandi eru miklir
frumkvöðlar og fyrirmyndir, hvort
sem það er í listum eða pólitík. Og
hundrað ára kosningaafmæli er nú
ekkert lítið tilefni. En í öðru lagi
erum við að halda upp á söngperlur
þjóðarinnar,“ segir Margrét en
efnisskráin er vafningur þekktra
ljóða og tónverka sem fylgt hafa
þjóðinni í áratugi. „Með þessari
efnisskrá langar okkur að sýna
hljóðfærið kvennakór. Lögin eru
ekki endilega um konur eða eftir
konur, heldur eru þetta íslenskar
söngperlur sem nú hafa verið
umritaðar fyrir kvennakóra. Sam-
hljómur kvenradda gefur þessum
söngperlum nýjan lit. „Brennið
þið vitar“ er lag sem þjóðin elskar
í flutningi karla en það er önnur
upplifun að hlusta á það í flutningi
kvenna. Þetta eru allt lög sem
ömmur okkar elskuðu og við ætl-
um að fagna því með að gefa þeim
nýja vídd.“
Kvenorkan mun fylla rýmið
Margrét stofnaði kórskóla kvenna
í Kramhúsinu fyrir 25 árum, en þá
var engin kvennakór starfandi í
Reykjavík, og úr skólanum urðu til
fjölmargir kvennakórar. „Á þeim
tíma voru ekki til margar útsetn-
ingar íslenskra laga fyrir konur.
Við fengum fyrstu útsetningarnar
okkar frá Akureyri þar sem var
starfandi kvennakór og fljótlega
fór ég að leita í útsetningar fyrir
stúlknakóra og svo í erlendar út-
setningar fyrir konur. En í dag eru
kvennakórar út um allt land að láta
skrifa fyrir sig og með hverju árinu
aukast tónverk fyrir konur, um kon-
ur og eftir konur,“ segir Margrét.
Í sönghúsinu Domus Vox, þar
sem allir kórarnir æfa, hafa yfir
200 konur sungið saman í 15 ár.
„Á þessum tónleikum ætlum við
líka að fagna því. Það verða allar
söngkonur hússins á staðnum og
þar að auki ætla Diddú og Maríus
að syngja einsöng. Kvenorkan mun
fylla rýmið og mynda algjöra ham-
ingjusprengju!“
Með kórunum og stjórnend-
unum verða einnig listamennirnir
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran,
Matthías Stefánsson fiðluleikari og
Arnhildur Valgarðsdóttir píanó-
leikari. Gleðin hefst klukkan 17 á
sumardaginn fyrsta í Norðurljósa-
sal Hörpu. Hægt er að nálgast miða
á miði.is.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Mæðginin Margrét
Pálmadóttir og
Maríus Hermann
Sverrisson munu
stjórna 140 syngjandi
konum í Hörpu á
sumardaginn fyrsta.
Þetta er í fyrsta sinn
á Íslandi sem kórar
syngja undir stjórn
mæðgina.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fim 7/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00
Mið 22/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00
Fim 23/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00
Fös 24/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Mið 29/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Fim 30/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 3/5 kl. 13:00
Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Hystory (Litla sviðið)
Fös 17/4 kl. 20:00 aukas. Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fös 15/5 kl. 20:00
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fim 14/5 kl. 20:00
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl.
leikhusid.is Segulsvið – HHHH „Mikill galdur“ – AV, DV
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Fös 17/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/5 kl. 19:30 12.sýn
Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Sun 3/5 kl. 19:30 13.sýn
Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz.
Segulsvið (Kassinn)
Fös 17/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 18/4 kl. 19:30 10.sýn Sun 26/4 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Sun 19/4 kl. 19:30 Aukas.
Allra síðasta aukasýning.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 19/4 kl. 13:30 Þri 26/5 kl. 13:30
Sun 19/4 kl. 15:00 Þri 26/5 kl. 15:00
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 3/5 kl. 20:00 Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung
20. apríl kl. 20.00
Heimspekispjall
– Mannréttindi.
Aðgangur ókeypis.
Súpa í veitingastofum frá kl
18.00, borðapantanir í síma
511 1904
23. apríl kl. 14.00 og 16.00
Barnamenningarhátið
– Tónleikhús Dúó Stemmu
Aðgangur ókeypis
23. apríl kl. 20.00
Vilborg Davíðsdóttir
– Ástin, drekinn og dauðinn.
Aðgangseyrir 1000 kr.
Súpa í veitingastofum frá kl
18.00, borðapantanir í síma
511 1904
www.hannesarholt.is
Miðasala á midi.is
Dagskrá
hannesarholts
58 menning Helgin 17.-19. apríl 2015