Fréttatíminn - 17.04.2015, Blaðsíða 62
Sagnfræði ráðStefna BaSkavinafélagSinS
400 ár liðin frá
Spánverjavígunum
Í sumar verða liðin 400 ár frá því að einhver mestu voðaverk
Íslandssögunnar, hin svokölluðu Spánverjavíg, áttu sér stað á
Vestfjörðum. Þá voru baskneskir hvalveiðimenn, 31 að tölu,
drepnir eftir að hafa verið dæmdir réttdræpir af sýslumann-
inum á Vestfjörðum, Ara í Ögri. Skáldsagan „Ariasman“ eftir
Finnann Tapio Koivukari er byggð á þessum atburðum en Tapio
verður einn frummælenda á alþjóðlegri ráðstefnu Baskavina-
félagsins í Þjóðarbókhlöðunni næstkomandi þriðjudag, 21. apríl.
S amkvæmt Jóni lærða var þetta þriðja sumar Baskanna á Ströndum, en sumarið 1615
voru þar þrjú skip. Það höfðu komið
upp einhverjar deilur á milli manna
vegna kindar sem hvarf en annars
hafði alltaf verið gott sam-
band milli aðkomumanna
og heimamanna,“ segir
finnski sagnfræðingur-
inn Tapio Koivukari sem
heldur erindi um Spán-
verjavígin, þennan smán-
arblett Íslandssögunnar, í
Þjóðarbókhlöðunni næst-
komandi þriðjudag. Ta-
pio segist lengi hafa haft
áhuga á Spánarvígunum,
allt frá því hann heyrði
fyrst af þeim þegar hann
bjó sjálfur á Vestfjörðum
fyrir mörgum árum. Fyrir
tveimur árum gaf hann svo
út skáldsögu sem segir frá
atburðunum og byggir á
frásögn Jóns lærða.
50 manna her ræðst gegn skip-
brotsmönnunum
„Daginn áður en vígin áttu sér stað
höfðu Baskarnir ætlað sér að fara heim.
En þá skall á svakalegt óveður með haf-
ís og skipin rákust á kletta og brotnuðu
í stórsjónum. Um 80 manns voru um
borð í skipunum þremur og allir nema 3
komust í land á stórum árabátum.
Presturinn í Árnesi hafði áður átt í
deilum við skipstjórann og þegar Bask-
arnir komu aftur í land laug hann að
þeim að á Jökulfjörðum væri stórt skip
á leið til Evrópu sem þeir gætu fengið
far með. Baskarnir sigla þá á litlu ára-
bátunum sínum fyrir Hornið og komust
þannig á Jökulfirði, sem sýnir hversu
miklir sjómenn þetta voru,“ segir Ta-
pio.
En við Ísafjarðardjúp var ekki tekið
blíðlega á móti skipbrotsmönnunum.
„Ari í Ögri, sýslumaðurinn á Vestfjörð-
um, hafði áður selt Böskunum leyfi til
að veiða hval og tekið 600 silfurpen-
inga fyrir það, án þess að hafa heimild
til þess. Nú kallar hann til
þings á Súðavík, þar sem
Baskarnir eru lýstir útlæg-
ir og réttdræpir. Rökin eru
þau að baskneskur skip-
stjóri hafi hótað prestinum
í Árnesi,“ segir Tapio. „En
aðalrökin tengdust því hvað
þeir gætu mögulega gert af
sér ef þeir yrðu ekki drepn-
ir. Að þeir myndu líklegast
fara um rænandi og rupl-
andi. Eftir þingið kallar Ari
bændur við Djúpið til vopna
og náði á stuttum tíma að
smala saman 50 manns og á
næstu dögum var 31 Baski
drepinn í tveimur lotum,
við Dýrafjörð, í Æðey og á
Sandeyri.“
Ekkert vitað um afdrif eftirlif-
enda
Restin af Böskunum fór á einni lítilli
skútu til Patreksfjarðar og lifði vetur-
inn af þar. Um vorið rændu þeir svo
ensku fiskiskipi og komust frá Íslandi.
En þrátt fyrir að hafa sloppið úr klóm
Vestfirðinganna vitum við ekki hvort
Baskarnir hafi komist heim til San Se-
bastian þar sem engar heimildir eru
til um það. Þeir sem vilja vita meira
um samskipti Íslendinga og Baska
geta sótt í brunn fjölda íslenskra og
erlendra fræðimanna um efnið á ráð-
stefnu í Þjóðarbókhlöðunni mánudag-
inn 20. apríl og þriðjudaginn 21. apríl.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Baskneski listamaðurinn Guill-
ermo Zubiaga gerði teikninguna
sem er hluti af farandsýningu um
Spánverjavígin sem fer um Vest-
firði í sumar. Miðvikudaginn 22.
apríl verður minningarskjöldur
afhjúpaður við Galdrasafnið á
Hólmavík að viðstöddum Martin
Garitano, héraðsstjóra Gipuzkoa,
Illuga Gunnarssyni mennta- og
menningarmálaráðherra og
Jónasi Guðmundssyni, sýslumanni
Vestfjarða. Tapio Koivukari mun
flytja sjóferðabæn, Xabier Irujo og
Magnús Rafnsson sáttargjörð og
Steindór Andersen mun kveða úr
Fjölmóði eftir Jón lærða.
„Baskar voru fyrstir Evrópu-
manna til að veiða hvali. Þeir
seldu Íslendingum hvalkjöt
enda höfðu þeir bara áhuga á
spikinu, sem var brætt í lýsi og
flutt heim í tunnum. Lýsið var
mjög verðmætt í Evrópu þar
sem það var aðallega notað til
að búa til kerti, en líka til að
verka skinn og búa til sápur.
Þetta var áður en farið var að
vinna olíu úr jörðu og var því
mjög mikilvægur iðnaður á
þessum tíma. Svo gerði tískan
það að verkum að skíðin voru
líka mjög vinsæl og verðmæt
vara meðal hirðanna í Evrópu.
Úr skíðunum voru búin til
grindverk sem voru svo sett
undir pils og kjóla til að halda
þeim uppi,“ segir Tapio. „Um
miðja 17. öld fækkaði hvölum
við Ísland og hvalveiði-
stöðvarnar færðust norðar, til
Svalbarða. Stuttu síðar misstu
Baskar svo forystuna til Hol-
lendinga og Englendinga.“
Sagnfræðingurinn Tapio
Koivukari gaf út skáld-
söguna „Ariasman“ sem
er byggir á Spánarvíg-
unum. Hún hefur verið
þýdd á íslensku.
Havartí er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst
framleiðsla á honum á Höfn í Hornarfirði árið 1987.
Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því
var breytt. Havartí varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu
dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havartí er mildur,
ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari
með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær
ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum
döðlum og eplum.
HAVARTÍ
FJÖLHÆFUR
www.odalsostar.is
TEKK COMPANY OG HABITAT | Kauptúni | Sími 564 4400
OPIð MÁNUDAGA TIL LAUGARDAGA KL. 11-18 / SUNNUDAGA KL. 13-18
Vefverslun á www.tekk.is
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM VÖRUM
TAX FREE
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
SKOÐAÐU
VÖRUÚRVALIÐ
Á
TEKK.IS
62 menning Helgin 17.-19. apríl 2015