Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 64
Í takt við tÍmann inga Rán ReynisdóttiR
Finnst ég vera
nakin án naglalakks
Inga Rán Reynisdóttir er 22 ára nemi á öðru ári í arkitektúr við Listaháskóla Ís-
lands. Inga Rán er úr miðbænum og er á leiðinni í mánaðarferðalag um Asíu. Hún
dýrkar kisur og The O.C. en getur ekki borðað soðna ýsu.
Staðalbúnaður
Dags daglega er fatasmekkur minn frekar „plain“ og
klassískur. Ég er nýbúin að fatta að einn fjórði af fötum
í fataskápnum mínum er dökkblár og hvítur þannig að
það eru greinilega uppáhalds litirnir mínir. Svo finnst
mér mjög gaman að blanda einum „spes“ lit við þá. Þeg-
ar ég fer út að djamma finnst mér gaman að klæða mig
upp og þá er enginn sérstakur stíll sem ræður. Ég kaupi
annars ógeðslega mikið af peysum. Það er alveg óvart
en ég er mikil kuldaskræfa. Ég versla frekar mikið í
Zöru og svo finnst mér mikið af fallegum fötum í GK,
flott skandinavísk merki. Það getur verið skemmtilegra
að kaupa eina flík þar frekar en helling í H&M, hún
endist oftast miklu lengur. Ég er eiginlega alltaf með
naglalakk, það gerist mjög sjaldan að ég fari út án þess.
Þá finnst mér ég eiginlega vera nakin.
Hugbúnaður
Ég eyði mjög miklum tíma í skólanum, þetta er þannig
nám. Þar fyrir utan reyni ég að mæta reglulega í World
Class, bæði til að æfa sjálf og fara í Hot Yoga. Ég elska
líka að fara í sund, það er frábært að slaka á í pottinum
og hugsa. Mér finnst gaman að fara niður í bæ á tónleika,
sýningar og ýmsa viðburði en líka að fá mér bjór með
vinkonunum. Þegar ég fer út um helgar vil ég bara dansa
fram á nótt og fá smá útrás. Þá fer ég til dæmis á b5, ég er
örugglega ein af fáum í Listaháskólanum sem læt sjá mig
þar um helgar. Ég er mjög hamingjusöm með að uppá-
halds þættirnir mínir, Game of Thrones og Mad Men,
voru báðir að byrja aftur. Ég hef líka gaman af skandinav-
ískum sakamálaseríum og svo er ég O.C.-aðdáandi. Ég
fæ ekki leið á þeim þáttum og tek maraþon á hverju ári.
Vélbúnaður
Ég er með Macbook Pro sem ég nota í skólanum en ég
er smá að svíkja lit því það er líka PC-stýrikerfi í henni.
Sum forrit sem ég nota eru nefnilega bara til fyrir PC.
Ég hef alltaf verið með iPhone en fékk mér síðast Sam-
sung S5 sem er með mjög góðri myndavél. Ég nota mest
Instagram, Facebook og Snapchat og svo fylgist ég
smá með á Twitter í laumi. Ég nota líka Pinterest mikið
til að sækja mér innblástur. Eru ekki allir dálítið háðir
þessum samfélagsmiðlum? Maður er alltaf eitthvað að
kíkja á símann.
Aukabúnaður
Ég og kærastinn minn erum dugleg að prófa okkur
áfram við að elda. Ég elska þá tilfinningu þegar eitthvað
heppnast sjúklega vel. Síðasta sem ég prófaði mig áfram
með var risotto. Annars hef ég alltaf þótt vera með sér-
stakan smekk á mat, ég elska bragðsterkan mat og get
borðað sterka osta og hákarl en þoli ekki mat sem allir
borða. Soðin ýsa er til dæmis eitt það hrikalegasta sem
ég veit. Ég þurfti því alltaf að svelta í skólaferðalögum.
Áhugamál mín snúa flest að hönnun, rýmisupplifun og
arkitektúr. Ég er dýrka kisur næstum því meira en fólk
og á tvær kisur sjálf. Þegar ég fer út að skemmta mér
fæ ég mér oftast bjór en ég komst að því í skólaferða-
lagi til Sviss í haust að mér finnst Dry Martini snilldar
drykkur. Ég er á leið til Asíu í lok maí í mánaðarferð. Ég
fer með kærastanum mínum, sem er í læknisfræði, í út-
skriftarferð og svo ætlum við að ferðast saman eftir það.
Kvöldið sem ég lendi hér heima ætla ég svo að skella
mér beint á Secret Solstice.
Ljósmynd/Hari
Prófaðu heilsurúmin
í Rúmfatalagernum
Þú sefur betur á Gold heilsurúmi frá okkur, bæði vegna þægind-
anna og verðsins. Þú átt það skilið! Komdu og prófaðu úrvalið hjá
okkur og láttu gæðin koma þér þægilega á óvart!
www.rumfatalagerinn.is
Láttu gæðin koma þér
þægilega á óvart
Rafmagsnrúm – verð frá 99.950 kr.
Rúm á mynd
Höie rafmagnsrúm
verð pr. stk. 299.950
Gerið gæða-
og verðsamanburð!
64 dægurmál Helgin 17.-19. apríl 2015