Fréttatíminn - 17.04.2015, Side 66
Rapparinn
Gísli Pálmi
á traustan
aðdáenda-
hóp. Fimm-
tíu eintök af
plötu hans
seldust fyrir
hádegi á
útgáfudag-
inn í einni
plötubúð.
Ég var með fiðrildi í mag-
anum á frumsýningunni,
segir Björn Stefánsson, aðal-
leikari í kvikmyndinni Austur.
Ljósmynd/Hari
TónlisT Mikil efTirvænTing vegna úTgáfu fyrsTu plöTu gísla pálMa
Biðröð eftir fyrstu eintökunum
Fyrsta plata rapparans
Gísla Pálma kom út í gær,
fimmtudag, og er greinilegt
að hennar hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu.
Þegar Smekkleysa plötubúð
opnaði þá um morguninn
biðu yfir tíu manns eftir því
að geta fengið eintak.
Platan, sem heitir einfald-
lega Gísli Pálmi, verður því
ein af plötum ársins ef marka
má vinsældir rapparans.
Kristján Kristjánsson,
verslunarmaður í Smekk-
leysu, sagðist hafa selt yfir
fimmtíu eintök fyrir hádegi á
fimmtudeginum, sem verður
að teljast afar gott ef litið
er til minnkandi plötusölu
undanfarin misseri.
Gísli Pálmi er þekktur
fyrir glæfralegt rapp í lögum
eins og Skynja mig, Hvíta-
gull, Ískaldur og Set mig í
gang, sem hafa öll fallið vel í
kramið hjá ungu fólki í dag.
Platan er komin í allar
helstu hljómplötuverslanir.
-hf
kvikMyndir Berskjaldaður á hvíTa Tjaldinu
B jörn Stefáns-son, aðal-leikari kvik-
myndarinnar Austur
sem frumsýnd var í
vikunni, var í hljóm-
sveitinni Mínus sem
oft á tíðum hneykslaði
fólk með framkomu
sinni svo þetta er ekki
nýtt fyrir honum. „Ég
held því víst eitthvað
áfram,“ segir Björn.
„Sumir gengu út, enda
er þetta klárlega ekki
mynd fyrir alla. Ég hef
ekki mikla reynslu af
því að sitja í bíósal og
horfa á sjálfan mig,
hvað þá að upplifa ein-
hver svona viðbrögð,“
segir Björn. „Ég var
samt ekkert að spá
í því. Ef ég væri að
velta því fyrir mér þá
yrði ég geðveikur. Ég
skilaði minni vinnu og
var mjög sáttur,“ segir
Björn.
„Mér finnst þessi
mynd mjög merkileg.
Það er skrýtið að sjá
sig og heyra í sér í
þessum aðstæðum
sem eru í myndinni,
vitandi af því að það
eru menn þarna úti
í þessum sporum,“
segir Björn. „Þetta er
mögnuð mynd sem ég
stend með.“
Kvikmyndin var
innblásin af nokkrum
frelsissviptingarmál-
um sem hafa átt sér
stað á Íslandi undan-
farin ár. „Við fórum
óvenjulega leið í þessu
og það er óhugnan-
legt að kafa ofan í það
hvernig það er að vera
sviptur frelsinu,“ segir
Björn. „Það er ekki
hægt að undirbúa sig
undir svona hlutverk á
nægilegan hátt. Ég las
mikið um sambæri-
leg mál og svo ákvað
ég að ég yrði bara
að mæta á staðinn
og láta þetta gerast,“
segir Björn. „Þetta er
karakter sem maður
getur ekki ímyndað
sér hvernig hugsar.
Heldur áfram að hneyksla
Kvikmyndin Austur var frumsýnd í vikunni og voru viðtökur á þá leið að einhverjir gestir gengu
úr salnum, sökum þess að þeim fannst óþægilegt að horfa á sum atriðin. Myndin, sem er í
leikstjórn Jón Atla Jónassonar, segir frá ungum manni sem á einnar nætur gaman með fyrr-
verandi unnustu og barnsmóður ofbeldisfulls glæpamanns sem er í mikilli neyslu. Hann er
tekinn í gíslingu af gengi glæpamannsins með það fyrir augum að kúga út úr honum fé. Þegar
þau áform verða að engu þá skapast atburðarás þar sem líf unga mannsins er í stórhættu. Með
aðalhlutverkið í myndinni fer leikarinn og trymbillinn Björn Stefánsson.
Myndin var skotin fyrir
ári og síðan hefur mað-
ur bara verið að vinna
og sjá um börnin, svo
ég var ekki búinn að sjá
neitt þegar ég fór í bíó,“
segir Björn. „Ég var
búinn að gleyma þessu
mikið til og var því með
fiðrildi í maganum, en
það var stórkostleg til-
finning,“ segir Björn
sem útskrifaðist sem
leikari fyrir tveimur
árum í Danmörku.
„Ég bjó úti í fimm ár
og flutti svo heim þegar
ég fékk hlutverk í Jeppa
á fjalli, segir hann. „Þar
sá Jón Atli mig leika
fórnarlamb og ætli ég
sé ekki bara nokkuð
góður í því, fyrst hann
vildi fá mig í myndina,“
segir Björn Stefáns-
son. Í vetur hefur Björn
leikið í Billy Elliott og
Línu langsokki og fer
með tvö stór hlutverk í
sýningum Borgarleik-
hússins á næsta leikári.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Þetta er mögnuð
mynd sem ég
stend með.
María
gengin út
Söngkonan og Eurovisi-
onfarinn María Ólafs-
dóttir hefur sést spóka
sig að undanförnu með
trymblinum Gunnari
Leó Pálssyni. Hún birti
svo í vikunni mynd af
þeim saman og segja
kunnugir það staðfesta
sambandið. Gunnar er
einnig blaðamaður á
Fréttablaðinu og hefur
spilað á trommur með
Atómskáldum Eyþórs
Inga.
Gleymdi að deyða Jesú
Á gríðarlega vel heppnaðri tónleikauppfærslu af Jesus Christ
Superstar, sem flutt var um páskana, átti sér stað skondið atvik
í Hofi, Akureyri. Björn Jörundur, sem söng hlutverk Pontíusar
Pílatusar, gleymdi í öllum hamaganginum að setja þyrnikórón-
una á Jesú sjálfan, og gekk rakleiðis út af sviðinu eftir magnaðan
flutning sinn. Það var Kaífas sjálfur, Jóhann Sigurðarson, sem
kallaði á Pontíus og lét hann klára verkið. Ekki kom þetta að sök
því fólk norðan heiða, sem og í Reykjavík, heldur ekki vatni yfir
sýningunni og fyrirhuguð er aukasýning í Eldborg í maí.
Fyrrum fréttamaður
RÚV plokkar bassann
Tónlistarmað-
urinn Haraldur
Sveinbjörnsson
gefur út sína
fyrstu sólóplötu,
Shine, undir
listamannsnafn-
inu Red Barnett.
Af þessu tilefni
heldur hann
útgáfutónleika
í Fríkirkjunni í kvöld, föstudagskvöld,
ásamt 12 manna hljómsveit. Bassaleikari
á þessum tónleikum er lögfræðingurinn
og fyrrum fréttamaðurinn Finnur Beck,
sem las fréttir á RÚV í yfir áratug og er
enn kallaður fréttamaður þrátt fyrir 7 ára
fjarveru frá skjánum.
Sara Marti nýr
formaður
Leikkonan og leik-
stjórinn Sara Marti
Guðmundsdóttir var
í vikunni kjörin nýr
formaður Leikstjórafé-
lags Íslands. Í félaginu
eru rúmlega 100 með-
limir og hefur farið
fjölgandi undanfarin
ár, sérstaklega með tilkomu sviðshöfunda-
brautar Listaháskólans. Sara Marti hefur
að undanförnu leikstýrt á ýmsum
sviðum. Nú síðast
sjónrænu tónverki
á Listahátíð. Næsta
vetur leikstýrir Sara
meðal annars í Borgar-
leikhúsinu.
Ein
ákvörðun
getur öllu
breytt
www.allraheill.is
66 dægurmál Helgin 17.-19. apríl 2015