Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 14
14 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Í stuttu máli
„Ég er óendanlega þakklátur fyrir þann
stuðning sem ég fékk hér á fundinum.“
– Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Óendanlega
þakklátur
Obama farinn
á taugum yfir
evrÓpu
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur
eins og aðrir áhyggjur af skuldakrepp
unni í Evrópu og að hún skaði efnahag
Bandaríkjanna alvarlega. Á dögunum hitti
hann nokkra leiðtoga Evrópusambands
ins í Hvíta húsinu og sagði að þeir yrðu
að grípa til raunhæfra að gerða áður en
skuldakreppan færi algerlega úr böndum.
Flestir gera ráð fyrir að Bandaríkjamenn
komi beint að lausn vandans með einum
eða öðrum hætti. Vandinn vestanhafs og
austan er sá að heildareftirspurn hefur
minnkað með minni hagvexti í kjölfarið.
Nú er að sjá hvernig Bandaríkjamenn
koma að lausn skuldakreppunnar.
sykur
microsoft
Hráolía
gull
evran gagnvart dollar
deutsche bank
apple
ál
dow Jones
sÍðustu tÓlf mánuðir
danir vildu
HúsasmiðJ una.
fengu ekki
Viðskiptablaðið greindi frá því nýlega að
ein stærsta byggingarvörukeðja Dan-
merkur hefði boðist til þess að greiða
Lands bankanum 10 milljónir evra fyrir
meirihlutaeign í Húsasmiðjunni í septem-
ber 2009. Segir blaðið að á gengi þess
tíma jafngildi það tæpum 1,8 milljörðum
króna.
Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta,
sem þá var forstjóri Húsasmiðjunnar,
staðfestir fréttina við Viðskiptablaðið og
segir dönsku keðjuna hafa skoðað rekst
ur fyrirtækisins vandlega og Danirnir hafi
jafnframt haft hug á að eignast Húsasmiðj
una að fullu.
Ekkert varð af þessum viðskiptum og
eigna ðist Framtakssjóðurinn Húsasmiðj
una síðar með kaupum sínum á Vestia.
Húsa smiðjan er núna til sölu.
krÓnan til
ársins 2020
Íslenska krónan verður líklega notuð hér
á landi í það minnsta út þennan áratug.
Eftir það verður annar gjaldmiðill tekinn
upp og aðrar leiðir farnar í gjaldeyris
málum.
– Árni Páll Árnason, efnahags- og við-
skiptaráðherra, á fundi á Alþingi.
getum ekki tekið
ákvarðanir
„Það er akkilesarhæll þjóðarinnar að hún
á almennt erfitt með að taka ákvarðanir.
Við erum eiginlega ótrúlega léleg í því að
taka ákvarðanir.“
– Almar Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnurekenda.