Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 16
16 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Í Stuttu máli
lindex tæmdiSt
á þremur dögum
Auðvitað var 2007bragur á því þegar fataverslunin Lin dex
var opnuð í Smáralind um miðjan nóvember. Fjöldi fólks
beið fyrir utan verslunina við opnunina; spennt með
veskið á lofti. Svo fór að loka varð versl un inni vegna vöru
skorts þar sem vörulager sem átti að duga til þriggja vikna
seldist nánast upp. Tíu þúsund manns komu í versl unina
á þessum þremur dögum og salan var fimm sinnum meiri
en reiknað var með.
SigrÍður byrJ ar
um ára mÓt in
Hagfræðingurinn Sigríður Benediktsdóttir,
sem nýlega var ráðin yfirmaður fjármála
stöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands,
tekur formlega til starfa um áramótin.
Sigríður varð flestum kunn fyrir störf sín
sem einn þriggja nefndarmanna í rann
sóknar nefnd Alþingis sem rannsakaði
bankahrunið árið 2008.
Tryggvi Pálsson, sem var fjármála stjóri
fjármálasviðs og yfirmaður fjármálastöðu
gleikasviðs bankans, hætti störfum í
september sl. Frá 2007 hefur Sigríður
starfað sem kennari og aðstoðarmaður
deildarforseta við hagfræðideild Yale
háskóla í Bandaríkjun um. Hún starfaði
sem hagfræð ingur hjá Seðlabanka
Banda ríkjanna á árunum 20052007.
Sigríður Benediktsdóttir
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, skrifaði
nýlega á Evrópuvaktinni að
dauða stríð ríkisstjórnarinnar væri
hafið og það gæti orðið lang vinnt:
Orðrétt segir Styrmir: „Evrópa er
sundruð og þar ræður vonleysi
ríkj um, segir þýzka tímaritið Der
Spiegel, sem segir að einn fund
ur taki við af öðrum en aldrei
náist niðurstaða um, hvernig
eigi að bjarga evrunni. Á fyrsta
ársfjórðungi næsta árs þurfa þau
evruríki, sem veikast standa, að
endurfjármagna miklar skuldir.
Ítalía ein þarf að afla 110 milljarða
evra til þess að greiða gömul
skulda bréf, sem eru á gjalddaga á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
Hvaðan eiga peningarnir að koma
spyr Spiegel og segir að endataflið
um örlög evrunnar sé hafið.
Ekki bætir úr skák, að í forystusveit
Evrópusambandsins eru mikil
inn anmein að sögn tímaritsins.
Spiegel segir að Barroso, forseti
fram kvæmdastjórnarinnar, sé
öfundsjúkur út í Herman Van
Rompuy, en Van Rompuy þoli
ekki þau áhrif, sem Juncker, for
sætisráðherra Lúxemborgar, hafi.
Hér á Íslandi má sjá þessa stöðu í
örmynd. Ríkisstjórnin er sundruð.
Hún heldur fundi og gefur yfir
lýsingar en ekkert gerist. Nú hafa
þau Jóhanna og Steingrímur J. enn
einu sinni fundið sinn blóraböggul.
Hann heitir Jón Bjarnason sjávar
útvegsráðherra. Nú á allt að batna
ef tekst að losna við hann úr ríkis
stjórn.
Gagnrýnin á Jón Bjarnason vegna kvótamála er fyrir slátt
ur. Hin raunverulega ástæða fyrir
at lög unni að honum er sú, að hann
er eini maðurinn í ríkisstjórninni,
sem stendur gegn ásælni Evrópu
sambandsins.
En hvað gerist ef þeim tekst að
losna við Jón? Heldur ríkis stjórnin
velli eftir slíka aðgerð? Ætlar hún
að lifa á náð Guð mundar Stein
grímssonar eða Hreyfi ng arinnar?
Dauðastríð ríkisstjórna verður
stund um langvinnt og erfitt. Það
á ekki sízt við um vinstristjórnir.
Dauðastríð núverandi ríkisstjórnar
er hafið. Það getur orðið langt en
það endar ekki nema á einn veg.“
Styrmir:
dauðaStrÍð rÍkiS StJÓrnar -
innar er Hafið
Hreyflarnir eru núna keyrðir í botn til að forða fjármálakerfi heimsins frá bjargbrúninni. Óttast er að vand inn í Evrópu sogi hið alþjóðlega fjár mála kerfi niður með sér. Seðlabankar allra
evruríkjanna, Bandaríkjanna, Japans, Sviss, Kanada
og Bretlands tilkynntu 30. nóvember að þeir hefðu
hafi ð aðgerðir til að bjarga evrunni og leggja stórum
bönkum í vandræðum lið vegna skuldakreppunnar.
Seðlabankarnir hefja sameiginlega peningaprentun
í raun til að forða fjármálakerfi heimsins frá falli.
Bandaríkjamenn eru stórskuldug þjóð en lán þeirra eru að mestu í dollurum og teljast þar með „inn
lend lán“. Það sama á við Japani, þeir skulda mikið,
en mest í jenum. Svo virðist sem komið sé að úr slita
stundu í glímunni við skuldahalann, en hann á ættir
að rekja til alþjóðlegu útlánabólunnar á árunum
2003 til 2008 sem felldi m.a. íslenska bankakerfið.
Björgunarpakkarnir, sem Bandaríkjamenn og
helstu þjóðir í Evrópu komu með haustið 2008,
hafa samkvæmt þessu aðeins verið plástur á sárið
og björgun til bráðabirgða – of miklar skuldir voru
skildar eftir í pípunum.
Það er komið að örlagastundu. Nú er það ekki Ísland heldur Guð blessi fjármálakerfi heimsins
Seðlabankar ræSa prentvélarnar
Hvar er kreppan?