Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 17
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 17
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Í stuttu máli
seðlabankar ræsa prentvélarnar
Erna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri B&L,
hefur keypt tvö af stærri bílaumboð um
landsins af Íslandsbanka og kröfuhöfum.
Þetta er hennar gamla bílaumboð, B&L,
auk Ingvars Helga sonar. Þessi fyrirtæki
voru sameinuð snemma á þessu ári.
Ekki hefur verið gefið upp hvað hún
greið ir fyrir umboðin en innan bílageir ans
er rætt um að hún greiði tæpan milljarð
fyrir þau.
Erna er af þekktu bílafólki. Faðir henn
ar, Gísli Guðmundsson, stýrði B&L í
áratugi en hann tók við starfinu af föður
sínum, Guðmundi Gíslasyni, sem var
einn af stofnendum fyrirtækis ins. Fjöl
skyldan seldi B&L um mitt árið 2007 til
dótturfélags Sunds og var rætt um á
þeim tíma að söluverðið hefði verið á bil
inu tveir og hálfur til þrír milljarðar króna.
Erna snýr því til baka í bílageirann með
„gamla peninga“ frá því að fyrirtækið var
selt í útlánabólunni miklu um mitt árið
2007.
Hún hefur rekið fjárfestingarfélagið Egg
sem m.a. kom að kaupum á Sjóvá fyrr á
þessu ári.
erna snýr aftur
Í bÍla sölu
Erna Gísladóttir
Hagnaður Haga stefnir í að verða um tveir
milljarðar á þessu ári og er það um tvöföldun
hagnaðar frá í fyrra þegar hagnaðurinn var
rúmur milljarður. Á sama tíma sýnist velta Haga
hafa dregist saman, m.a. vegna þess að búið
er að selja keðjuna 10-11 út úr samsteypunni.
Hagnaður Haga sem prósent af veltu nemur
núna um þremur prósentum.
Hagnaður
Haga tvö
faldast
fJÓrtán flugfélög til Íslands
næsta sumar
Hart flugstríð framundan:
Það stefnir í hart flugstríð á Íslandsmarkaði næsta sumar. Vefmiðillinn turisti.is segir að fjórtán
flug félög muni fljúga reglulega til
Íslands og frá næsta sumar – en þó
í mjög mismiklum mæli.
Skúli Mogensen og fleiri hafa
stofnað flugfélagið Wow air og
ætlar það í harða samkeppni við
Icelandair, Iceland Express og aðra
á markaðnum.
Þá hafa lággjaldaflugfélögin
EasyJet og Norwegian tilkynnt
áætl unarflug frá Íslandi. Það síðar -
nefnda mun fljúga þrisvar í viku á
milli Keflavíkur og Oslóar. EasyJet
flýgur sömuleiðis þrisvar í viku
á milli Keflavíkurflugvallar og
Lundúna.
Icelandair er auðvitað risinn á
markaðnum og mun örugglega
ekki láta sitt eftir liggja. Rekstur
félagsins hefur gengið vel að und-
an förnu. Þá flýgur SAS milli Kefla -
víkur og Oslóar allt árið.
Með Skúla Mogensen í Wow air
eru fyrrverandi framkvæmdastjóri
Iceland Express, Matthías Imsland,
og Baldur Baldursson, en hann
er framkvæmdastjóri. Það er fjár -
festingarfélag Skúla, Títan, sem er
eigandi hlutarins í Wow air.
Fróðlegt verður að sjá hvernig
kaupin gerast á eyrinni og hverjir
lifa þetta af. Þar stendur slagurinn
væntanlega fyrst og fremst á milli
Iceland Express og Wow air.
EasyJet flýgur fyrst í stað aðeins
á milli Íslands og Luton-flugvallar
í norðurhluta London. Ef vel tekst
til á þeirri flugleið verða fleiri
áfanga staðir skoðaðir.
Vefmiðillinn turisti.is segir að meðal annarra nýliða til Íslands
í sumar sé spænska lá ggjalda flug -
félagið Vueling en sam kvæmt
upp lýsingum frá Isavia munu Spán -
verjarnir aðeins sinna leigu flugi
hingað. Það sama gildir lík lega um
þrjú önnur fyrirtæki á listanum.
Þá hefur bandaríska flugfélagið
Delta Air Lines tilkynnt að það
muni hefja á ný sumaráætlunarflug
milli Keflavíkurflugvallar og John
F. Kennedy-flugvallar í New York,
en flugið hefst 2. júní 2012.
Fimm áætlunarflugferðir verða
í hverri viku yfir sumarmánuðina
í samstarfi við Air France-KLM
en félögin eiga með sér samstarf
í alþjóðlegu áætlunarflugi. Delta
verður á ný eina bandaríska flug -
félagið sem býður upp á beint
áætlunarflug milli Íslands og
Bandaríkjanna.
Skúli
Mog ensen
opnaði á
dögunum
heimasíðu
Wow air.