Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 26

Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 26
26 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 Kattarglottið, fyrsta smá ­sagna safn Benedikts Jó ­hannessonar, er kom ið út. Benedikt er útgefandi Frjálsrar verslunar og rit ­stjóri Vís bend ing ar, vikurits um við skipti og efna hagsmál. Benedikt hefur um árabil skrifað greinar í blöð og tímarit, en þó ekkert þessu líkt. Í bókinni eru fjórtán sögur og höfundur fer um víðan völl. Þekkt ur pólitíkus slettir ærlega úr klaufunum í New York, frægur blaðamaður nær að plata Guð almáttugan í viðtal og dýrin í skóginum hætta að vera vinir. Ýmsar spurningar vakna: Voru Frau Himm erfeldt og Arnaldur gift bürgerlich? Ná vísinda afrek NÞ eyrum umheimsins eða verða þau lokuð í fangelsi dásvefnsins um allan ald ur? Hvers vegna er Jesús á rölti um miðbæ Reykjavíkur? Sög urnar eru glettnar en þó með alvarlegum undirtón. Skil raunveruleika og ímyndunar eru stund um óljós. Söguhetjur eru venjulegt fólk og einkennilegt, óþekkt og heimsfrægt. Sumar sögurnar gerast í Reykjavík sam­ tímans, aðrar á óljósum tíma og óræð um stöðum. Eitt er þeim sameiginlegt: Þær eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Frjáls verslun ræddi við Benedikt um sög­ urn ar. Benedikt er útgefandi blaðsins og ritstjóri Vís bendingar, vikurits um viðskipti og efnahags mál. Nú ert þú þekktur fyrir að skrifa um stjórnmál og viðskipti. Hvers vegna ákvaðstu að skrifa smá sögur? Ætli skýringin sé ekki sú að það er miklu skemmtilegra að skrifa smásögur. Sá sem skrifar um málefni líðandi stundar verður að halda sig við stað reyndir og alvöru lífsins. Í sög um býr maður til sinn eigin raun veruleika. Eða óraunveruleika. þekktur pólitíkus slettir úr klaufunum í new york Bókin Kattarglottið er komin út: Kattarglottið er fyrsta smásagnasafn Benedikts Jóhannessonar. Í bókinni eru fjórtán sögur og höf undur fer um víðan völl. Þekktur pólitíkus slettir ærlega úr klaufunum í New York og frægur blaða- maður nær að plata Guð almáttug an í viðtal. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna kötturinn á forsíðunni glotti ekki. Skýringin er sú að TexTi: JÓn G. Hauksson myndir: Geir Ólafsson Benedikt Jóhannesson, útgefandi Frjálsrar verslunar og ritstjóri Vísbendingar, les upp úr Kattarglottinu.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.