Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 39

Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 39
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 39 Hætta-að-gera -listinn þau hafa orðið Páll Stefánsson ljósmyndari: Úrtölur Þau kosta mjög svipað, tvö af fínustu úrum á markaðnum í dag; Patek Philippe 5002P og Vacheron Constantin Tour D’lil, um 1,4 millj ­ ón ir dollara sem gerir rúm lega 160 milljónir íslenskra króna – stykk ­ ið. Og hvað fær maður fyrir handsmíðað úr sem gengur rétt og er sett saman úr tæplega eitt þúsund hlutum sem allir eru handsmíðaðir? Tíminn sem tekur að setja svona úr saman er ekki talinn í mínútum eða klukkutímum, heldur árum. Það tekur úrsmið um tíu þúsund klukku­ stundir að smíða svona grip.  Fáir hlutir standast eins vel tímans tönn, hvort heldur er sem hönn un eða fjárfest­ ing. Dýrt handsmíðað úr heldur verðgildi sínu bet ur en flestir fjárfest­ ingarhlutir. Jafnvel betur en gull. Og fáa hluti er eins auðvelt að flytja milli landa. Full ferða­ taska með hundrað og sextíu milljónum myndi vekja athygli tollvarða, armbandsúr ekki.  Enda auglýsir Patek Philippe úrin sín sem fjár festingu sem þú ert aðeins að geyma fyrir næstu kynslóðir. Bæði þessi sviss­ nesku úrafyrirtæki byggja á alda gamalli hefð og tækni. Vacher on Con stant in hóf starf­ semi fyrir 256 árum á meðan Patek Philippe er tæp lega hundrað árum yngri. Napóleon Bónaparte er líklega einn þekktasti einstakl­ ingurinn sem gengið hefur með VC­úr. Núna framleiðir fyrirtækið um 20.000 úr á ári; úr sem kosta milljónir. Patek Philippe framleiðir held­ ur ódýrari úr en samt kosta þau líka milljónir; framleiðslan er 40.000 úr á ári.  Ef þú vilt skera þig úr er um að gera að fjárfesta í regnhlíf, hann­ aðri af Flavio Briatore, Formúlu 1­eigandanum, og Angelo Galasso. Regnhlífin er úr vatns­ heldu krókódílaskinni og handfangið handgert úr eðalviði. Verðið er aðeins fimm milljónir og 750 þúsund – og fæst einungis í Couture flagship­versluninni í London.  Tímaskekkja? Nei, það á það til að rigna, bæði hér og þar.  Þörf á eðlilegu rekstrarumhverfi Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræð ideild Háskóla Íslands: Samkeppniseftir litið hefur haft áhyggjur af eignarhaldi banka á fyrirtækjum í óskyld um rekstri. Það telur m.a. að dulin yfirráð verði að koma upp á yfirborðið og tryggj a þurfi eðlilegan rekst ur fyrir tækja í eigu banka og flýta endurskipulagningu og sölu fyrir tækja. Jafn­ framt að arðsemis kröfur séu ekki nægilega skýrar og upplýsingagjöf vegna þeirra ekki nógu skýr og leggur áherslu á að fjár ­ hags stuðningur banka sé ekki notaður til rösk unar á samkeppni. Það er ljóst að bankar hafa tvo hatta í þessum efnum; annars vegar fjármála þjónustu og hins vegar eignarhald, og þá sé hætta á blokka ­ myndun og skapast hefur tortryggni gagnvart jafnræði. Staðreyndin er einmitt sú að heilu atvinnu ­ greinarnar mótast nú af því að þar eru fyrirtæki í eigu banka og skila nefnda í samkeppni við einkaaðila og í innbyrðis sam keppni. Þetta hefur bjagað eðlilega sam keppni. Nefna má bíla ­ markaðinn og markað með ritföng sem dæmi um þetta. Í verklags reglum fjár mála fyrir ­ tækja er sagt að „stefna skal að því að selja eignar hluti í fyrirtækjum eins fljótt og hag­ kvæmt er“. Það er óeðlilegt að hagkvæmn is sjónarmið banka séu sett ofar almanna ­ hagsmunum. Markmiðið hlýtur að vera að fyrirtækin fari sem fyrst úr eigu bank­ anna og í hend ur framtíðar­ eigenda en jafnframt að eðlileg verðmyndun verði á þess um fyrir tækjum.“ Viltu kaupa úr sem kostar aðeins 160 milljónir stykkið? HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN FASTEIGNAMARKAÐURINN FYRIRTÆKIÐ OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ Græjur Jæja, þá er það jólahlaðborðið. Margir forstjórar vilja gera vel við sitt fólk og það þykir fínt að bjóða í jólahlaðborð. Að vísu endaði boðið í fyrra með hálfgerðum ósköpum. Það er ekki enn búið að gera upp allt það sem þá fór úrskeiðis. Ein kæra vegna kyn ferðislegrar áreitni á leið fyrir dóm og stjórinn varð að biðja þrjá góða starfsmenn afsökunar á ómakleg um um mælum strax mánu­ daginn eftir geimið. Um jólagleði, sem aðra gleði, gildir hið fornkveðna: Far þú í dans en gættu hvar þú stígur! Þetta er alþjóðlegt vandamál og það eru til óskrifuð alþjóðleg lög um hvernig á að koma í veg fyrir að allt fari úr böndunum. Því er ráðlegt að lesa það sem hér fer á eftir. Margir færustu stjórnunarsérfræð­ ingar heims hafa bent á hvernig stjórn endur eiga að búa sig undir jóla skemmtunina. Undirbúningurinn er mikilvægur hluti af starfi þeirra. Þetta er engin skemmtun; hér koma siða ­ reglur forstjóra á svona skemmtunum: 1. Ekki fara í fyrirpartí. Það er vont fordæmi ef stjórinn lyktar af áfengi við komuna á aðalhátíðina. Mættu edrú! 2. Ekki þrasa um vinnuna við ein­ staka menn. Tveggja manna tal undir áhrifum á ekki að fjalla um starfið. 3. Haltu ræðu undir borðum. Það gerir samkomuna formlegri. Undir­ búðu ræðuna og forðastu að röfla um allt og ekkert. 4. Líttu á jólaskemmtunina sem hluta af vinnunni. Þú ert ekki prívat­ persóna á svona samkomum. 5. Láttu óleyst vandamál í vinnunni bíða næsta mánudags. Allt sem þú segir á að vera jákvætt og hvetjandi. 6. Komdu vel klæddur. Láttu upp­ lýsta jólabindið, sem hann Doddi frændi gaf þér í fyrra, liggja heima. 7. Raðaðu til borðs. Ekki láta þá, sem þú veist að eru alltaf út úr á svona skemmtunum, sitja saman. 8. Biddu veitingamanninn að segja bæði frá húsakynnum og matnum. Það gefur samkomunni menningar­ legan blæ. 9. Eitt glas af víni á mann á að fylgja matnum á kostnað fyrirtækisins. Ekki meir. Vilji fólk meira verður það að borga sjálft. 10.Farðu sjálfur heim ef þér finnst þú þurfa núna – og í áheyrn allra – að reka ræfilinn hann Nonna, sem aldrei mætir á réttum tíma . Siðareglur forstjóra á jólahlaðborðum Stjórnunarmoli efTir Gísla krisTJánsson

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.