Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 43
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 43
Launin hærri í Noregi – en
segir það allt?
Jón er nýlega útskrifaður iðnaðarmaður
með sveinsbréf. Guðrún er hjúkrunarfræð
ingur. Menntun beggja á að gefa víst starf
í Noregi.
Þau eiga tvö börn. Annað 10 ára og
hitt fjögurra ára. Jón hefur haft vinnu á
Íslandi þrátt fyrir kreppu og hann vinnur
smávægilega yfirvinnu.
Hann er með 3,6 milljónir króna í árslaun
eða um 300 þúsund á mánuði.
Guðrún kona hans hefur sömu grunn
laun á Íslandi.
Yfirvinna iðnaðarmanna á Íslandi hefur
hins vegar minnkað vegna verkefnaskorts.
Tekjur þeirra hjóna eru 7,2 milljónir á
ári – og þarna er miðað við smávægilega
yfirvinnu hjá þeim báðum. Ráðstöfunar
tekjur þeirra eftir skatta eru 4,9 milljónir
króna.
Ef við miðum hins vegar eingöngu
við grunnlaun þeirra hér heima,
taxt ann, eins og tíðkast í Noregi þá
hafa þau brúttótekjur samtals um
4,8 millj ónir á ári. Ráðstöfunartekjur
eftir skatta af þeim tekjum á Íslandi
eru 3,4 milljónir á ári eða 283 þúsund
á mánuði. Þau ná ekki endum sam
an af þeim tekjum á Íslandi.
Það borgar sig fyrir þau að flytja út.
Í Noregi er sjaldan yfirvinna í
boði þannig að þar er miðað við
grunnlaun.
Þau skoða launataxtana hjá
norska iðanaðarmannasam
bandinu og hjá SF, hinu norska
félagi hjúkrunarfræðinga.
Þar blasa þessar tölur við.
Byrjunarlaun Jóns í full u
starfi yrðu 322 þúsund
norskar eða um 6 milljónir
íslenskar á ári. Guðrún er
aðeins betur sett, með 329
þúsund norskar á ári eða
nær 6,5 milljónum íslenskra
í árslaun.
Jón og Guðrún þurfa að
standa skil á marghátt
uðum útgjöldum til heim
ilis og samfélags, jafnvel
þótt þau fari að kalla sig
Ole og Kari upp á norsku.
Spurningin er: Í hvoru
landinu, hvoru hagkerfinu,
er kaupgetan meiri; meiri
afgangur af launum?
Þau fá því saman á árinu
tólf og hálfa milljón króna fyrir skatta og
öll útgjöld. Það er meira en tvöfalt á við
það sem vinna á Íslandi gaf og þó er vinnu
vikan styttri í Noregi – 37,5 stundir á móti
40 stundum á Íslandi. Þetta lítur vel út.
Hærri skattar
en samt meira eftir
Það er þetta reikningsdæmi sem er forvitni
legt. Mjög margt er hægt að bera saman.
Það er t.d. enginn stórkostlegur munur á
mat. Lifnaðarhættir eru ekki mjög ólíkir en
efnahagsaðstæður þeim mun ólíkari.
Fyrst eru það skattarnir: Hvað fá þau
Jón og Guðrún borgað þegar hið moldríka
norska olíuríki er búið að taka skattana
sína? Skattareglur eru tiltölulega einfaldar.
Þau geta saman fengið 150 þúsund norskar
í persónuafslátt. Ríkið tekur 36% af því sem
eftir er. Þetta þýðir að heimilið á eftir 470
þúsund norskar krónur á ári – eða 38 þús
und á mánuði til ráðstöfunar á heimilinu.
38 þúsund norskar krónur jafngilda 760
þúsund íslenskum krónum.
Muna mannlega þáttinn
Þannig leggja þau út í lífið í nýju landi. Þó
má ekki gleyma að þarna er miðað við að
bæði gangi beint inn í fulla vinnu í nýju
umhverfi. Það er erfitt því umskiptin eru
þrátt fyrir allt mikil. Menningin vissulega
grein af sama meiði en margt er samt ólíkt
og margt að læra. T.d. að allt tekur lengri
tíma í Noregi en á Íslandi.
Það þarf að aðlagast nýju samfélagi, læra
nýtt tungumál og halda fjölskyldunni óbrot
inni við óvissar aðstæður. Allir nýbúar vita
að það tekur á. Íslendingar í Noregi eru
að þessu leyti ekkert frábrugðnir öðrum
nýbúum. Þetta er þáttur sem oft er vanmet
inn. Það er ekki nóg að telja bara krónunar
og gleyma hinum mannlega þætti.
En skoðum útgjöldin.
Bóla á húsnæðismarkaði
Húsnæðið er erfiðast. Það er eignabóla í
gangi í Noregi. Það viðurkenna allir nema
fast eignasalarnir. Húsnæðisverð hefur
hækk að um 10% á árinu og það ofan á sömu
hækkun í fyrra. Verð á húsnæði er nú tvö falt
til þrefalt hærra en í Reykjvík. Þetta á við um
alla stærstu bæi landsins þar sem vinnu
Verðkönnun tekin í Reykjavík og Ósló í
nóvember 2011:
(Allar tölur í íslenskum krónum)
Ísland Noregur
Nýmjólk 1 l 106 kr 306 kr.
Ungnautahakk 1 kg 1.295 kr. 1.670 kr.
Kornflögur 750 g Kellogg’s 520 kr. 524 kr.
Bananar 1 kg 259 kr. 303 kr.
Ostur kílóaverð 1.595 kr. 2.990 kr.
Heilhveitibrauð 770 g 295 kr. 566 kr.
Kók 500 ml 135 kr. 320 kr.
Ajax Universal 500 ml 265 kr. 599 kr.
Kaffi Gevalia 500 g 639 kr. 1.066 kr.
Colgate 398 kr. 540 kr.
Kippa bjór (Ringnes/Egils)
dósir (½ l) 2.034 kr. 2.880 kr.
Gin (Beefeater) 700 ml 5.099 kr. 6.525 kr.
Winston-pakki 977 kr. 1.527 kr.
Bensínlítri (95 oktana) 230 kr. 266 kr.
13.847 kr. 20.082 kr.
Verðlag samkvæmt þessari stuttu
könnun er 45% hærra í Noregi en á Íslandi.
Pítsa á veitingastað
Það kostar 17 þús. kr. fyrir fjögurra manna
fjölskyldu að fara á veitingastað og kaupa
sér pítsu.
Noregur:
Peppes-veitingastaðurinn
9 tommu pepperonipítsa 179 nkr.
Hálfslítra kók 28 nkr.
Samtals: 207 nkr.
Íslenskar kr. 4.215 ískr.
Ísland:
Eldsmiðjan
10 tommu pítsa pepperoni 1.395 kr.
Hálfslítra kók 275 kr.
Samtals 1.670 kr.
2009:
Fóru til Noregs 1576
Komu frá Noregi 301
Brottfl. umfram aðfl. 1275
2010:
Fóru til Noregs 1539
Komu frá Noregi 564
Brottfl. umfram aðfl. 975
2011 – samtals þrír fyrstu ársfjórðungar
Fóru til Noregs 1290
Komu frá Noregi 440
Brottfl. umfram aðfl. 850
sundurliðum 2011 eftir ársfjórðungum:
1. ársfj. 2. ársfj 3. árfj
Fóru til Noregs 320 380 590
Komu frá Noregi 130 120 190
Brottfl. umfram aðfl. 190 260 400
Sundurliðunin sýnir að straumurinn til Noregs
hefur harðnað eftir því sem liðið hefur á árið.
verðkönnun