Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 47
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 47
Torfi Magnússon er kranamaður. Hann hafði fulla vinnu á Íslandi. Var þó búinn að fallast á launalækkun með vinnufélögum sínum og verk
efnastaða vinnuveitandans ótrygg eins og
alltaf við byggingavinnu þegar markaðurinn
er í lágmarki. Upp úr áramótum fór hann
að hugsa sér til hreyfings. Átti kunningja í
Noregi. Sá sagði honum bara að koma og
sjá hvort ekki byðist eitthvað þar ytra fyrir
kranamann. Og Torfi gæti búið þar fyrst um
sinn meðan hann leitaði að vinnu.
Þetta er dæmigerð saga: Maður þekkir
mann og nýtur þess við flutninginn. Torfi
fór án þess að hafa tryggt sér vinnu en var
ekki á götunni. Undirbúningur hófst í janúar,
meðal annars við að læra málið, og í apríl
var Torfi kominn á byggingarkrana hjá norsku
kranaleigunni T.H. Bull. Þar hefur hann verið
síðan og bullandi að gera.
Það er spenna í byggingabransanum
og Torfi einn þeirra sem hafa réttindi og
starfs reynslu. Það eru líka til dæmi um fólk
sem ekki nýtur lögboðinna kjara og þiggur
skíta laun.
Nær þreföld laun
En heimilisbókhaldið. Hvernig lítur það út
eftir flutning?
„Það voru 160170 þúsund krónur í launa
umslaginu við hver mánaðamót á Íslandi.
Núna er í því jafnvirði 600 þúsund íslenskra
króna,“ segir Torfi. „Það er afgangur af laun
unum við mánaðarlok hér. Heima varð ég að
velja hvaða reikninga ég ætti að borga.“
En þessar tölur segja ekki allt. Það eru
útgjöldin sem að lokum ráða úrslitum. Það
er dýrara að búa í Noregi en á Íslandi.
Húsnæðiskostnaður er meiri, íbúðaverð
veru lega hærra og húsaleiga hærri. En það
er hægt að komast að hagstæðari kjörum
ef menn leggja nokkuð á sig. Torfi vinnur
í Ósló en býr í smáþorpinu Slemmestad,
vestan borgarinnar. Þar er leiga á 80
ferm etra íbúð bara 140 þúsund íslenskar.
Leigan þar út frá er töluvert lægri en inni í
borginni en á móti kemur ferðakostnaður og
ferðatími. Torfi þarf að fara á fætur klukkan
hálfsex til að ná inn til borgarinnar á réttum
tíma. Það fara tveir klukkutímar daglega í
að komast í og úr vinnu. Á Íslandi voru það
10 mínútur.
Allt dýrt á Íslandi líka
Matur er dýrari í Noregi en það er líka hægt
að lækka matarreikninginn með einu ráði:
Að kaupa inn í Svíþjóð! Matarverð þar er
þriðjungi lægra en í Noregi og líka lægra en
á Íslandi. Á móti kemur ferðakostnaður. Það
þarf að fara í dagsverslunarferðir um helgar
yfir landamærin. Þetta gera þó margir
Norðmenn.
Allt þetta leiðir til mikils ferðakostnaðar.
Torfi segir að það kosti sig 100 þúsund
ís lenskar á mánuði að eiga og reka bíl. Þó
fær hann ferðastyrk og bíllinn er keyptur
með hagstæðu láni frá vinnuveitanda.
Þetta er engu að síður þungur póstur í
heimilisbók haldinu.
„Mér sýnist að dagleg útgjöld séu ekki
miklu meiri hér en á Íslandi þegar allt er lagt
saman. Allt hefur hækkað mikið á Íslandi
líka,“ segir Torfi. Torfi á tvo syni á skólaaldri.
Móðir þeirra býr líka í Noregi en þau búa
ekki saman. Útgjöld vegna skólagöngu
eru álíka og á Íslandi en þó eru ekki
skólamáltíðir. Og frí tíminn er álíka langur:
vinnu vikan styttri en daglegar ferðir lengri.
Eins og svo margir fór fjölskyldan úr landi þótt hjónin hefðu bæði vinnu á Íslandi, en þau þekktu vel til í Noregi og bjuggu þar til ársins
2005. Þau eru því dæmigerð fyrir fólk sem
er kunnugt í útlöndum áður en það fer
og veit að hverju það gengur. Það er enn
sama númer á bankareikningnum, sami
heimilislæknir og allir í fjölskyldunni tala
tungumálið.
En það er von um meiri lífsgæði
og minna stress sem lokkar
„Hér er meira eftir af laununum við mán aða
mót en á Íslandi, þrátt fyrir meiri kostnað og
minni vinnu,“ segir Einar. Verðlag er hærra,
sérstaklega reyndar á lúxusvarningi, en
líka á daglegum nauðsynjum. Húsaleiga er
hærri. Einar borgar 340 þúsund íslenskar
á mánuði fyrir einbýlishús, en er á góðum
stað. Hann leigir húsið sitt heima á Íslandi.
Bregður að sjá tölurnar
Mörgum Íslendingum bregður í brún þegar
þeir fara að umreikna verð í Noregi yfir í
íslenskar krónur. Einar nefnir sem dæmi að
fjölskyldan hafi farið á pítsustað og þegar
reikningnum var breytt yfir í íslenskar reynd
ist hann yfir 20 þúsund krónur. Þá er að vísu
verið að bera saman ósambærilegar krónur
í tveimur hagkerfum.
Einar vill líka leggja áherslu á hinn mann
lega þátt, það sem ekki verður metið í pen
ingum. „Á Íslandi lifa menn til að vinna, hér
vinna menn til að lifa,“ segir hann. Frítíminn
er metinn sem lífsgæði en ekki sem tapaðar
vinnustundir.
„Þjóðfélagið hér í Noregi er fjölskyldu
vænna vegna þess að vinnan tekur minni
tíma og það er minna stress og meira eftir
af laununum,“ segir Einar Skúli Hafberg.
Í Noregi eru mestir möguleikar á vinnu
við húsbyggingar. Það er skortur á fólki í
öll störf og laun mun hærri en á Ís landi.
Kostnaður líka meiri en með norskri
útsjónarsemi má lækka út gjalda liðina.
Torfi Magnússon kranamaður
fór til Noregs í vor
Norsk
úTsjóN arseMi
„Það er spenna í
bygg ingabransanum
og Torfi einn þeirra
sem hafa réttindi og
starfs reynslu.“
afgaNgur þráTT
fyrir Mik iNN
kosTN að
Einar Skúli Hafberg er stjórnunarráð
gjafi (Management Consultant) sem
flutti með fjölskyldu sína, fjögur í heimili,
til Noregs síðastliðið haust. Hann segir
að það sem komi nettó upp úr launa
umslaginu í Noregi sé sama fjárhæð og
var brúttó á Íslandi.
einar skúli
Hafberg stjórn
unar ráðgjafi