Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
G
unnar Einar Steingrímsson,
djákni við Grafarvogskirkju,
segir að dæmið gangi upp.
Fjölskyldan muni hafa úr
meiru að spila eftir komuna til
Nor egs en nú er á Íslandi. Þau fara um mið
jan janúar, sex manna fjölskylda, og ætla
að reyna fyrir sér í sveitaþorpinu Beitstad í
NorðurÞrændalögum.
Beitstaður er á nákvæmlega sömu breiddar
gráðu og Grafarvogurinn í allþéttbýlu héraði
í MiðNoregi. Þau hjón, Gunnar og Erla
Valdís Jónsdóttir sjúkraþjálfari, fara með
þrjú börn sín. Svo er afinn, Steingrímur
Einarsson, sjötti maður.
Við höfum áhuga á heimilisbókhaldinu.
Gunnar leggur spilin á borðið: Þegar þau
fara út hefur einungis hann vinnu, en laun
hans eins verða álíka há og þau hjón hafa
nú til samans á Íslandi.
En nýju vinnunni fylgja fríðindi sem breyta
mjög miklu. Það er oft hægt að fá slík
fríð indi þar sem skortur er á fólki til vinnu,
sérstaklega úti á landi í Noregi.
Gunnar verður afleysingaprestur við
Beitstadkirkju í eitt ár og fær prestsbústað á
góðum kjörum og frían flutning. Við bætast
svo barnabætur með þremur börnum,
samtals 2.940 norskar krónur. Það eru 60
þúsund íslenskar.
Erla er sjúkraþjálfari. Það er menntun
sem ætti að gefa greiða leið inn á norskan
vinnumarkað. Það er skortur á fólki í heil
brigðisstéttunum. En markmiðið er að hún
geti verið án vinnu fyrst meðan fjölskyldan
er að koma sér fyrir. Tvö börn eru í skóla
og eitt í leikskóla og þau hafa ekki búið í
útlöndum áður.
tvöfaldar tekjur
Það kemur meira í umslagið en útgjöldin eru
líka mikil. Þar kemur á móti að húsa leigan
er bara 3.400 norskar krónur, eða tæpar 70
þúsund íslenskar. Í þéttbýli þætti vel sloppið
að borga þrefalda þá upphæð. Þetta setur
strik í reikninginn – fjölskyldunni í hag.
Á móti kemur að þau Gunnar geta ekki
verið án bíls. Það væri vel hægt í þéttbýli.
Hann fær bílastyrk vegna aksturs fyrir
söfnuðinn en verður að kaupa bíl sjálfur.
Fimm ára gamall sjö sæta skutbíll af al
gengri gerð kostar 150170 þúsund norskar
krónur. Það eru um þrjár milljónir íslenskar.
Þessi póstur er þyngri en á Íslandi. Kostn
aður við bílinn er 4.600 norskar á mánuði,
samkvæmt opinberum útreikningum. Það
eru 90 þúsund íslenskar en hluti af því fæst
greiddur.
sex manna FjöLskyLda FLytur úr graFarvogi
tiL norður-Þrænda Laga
Fjölskylda
Flytur
„Beitstaður er á
ná kvæmlega sömu
breidd ar gráðu og
Grafarvogurinn í
allþéttbýlu hér aði í
MiðNoregi.“