Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 49

Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 49
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 49 U ngt fólk hefur ekki nægi­ lega trú á að ríkis stjórnin rífi íslenskt atvinn u ­ líf upp – það fer ekki á milli mála. En auðvitað er það líka þann ig að ungt fólk er haldið ævin ­ týraþrá og vill kanna nýjar lend­ ur og prófa að búa erlendis. MMR kynnti könnuna í frétta­ tilkynningu með þeim orðum að fólkið hefði hugsað sér að „flytjast erlendis“. Ekki það að ég vilji vera með meiri leiðindi en ég er vanur en þá fer þessi málvilla alltaf jafn­ mikið í taugarnar á mér. Fólk flytur til útlanda og það býr erlendis. Það flyst eng­ inn erlendis. „Að flytjast erlendis“ gæti í besta fallið þýtt að fólk flytti á milli staða erlendis. Það nær því samt ekki. Bjarni Benediktsson sagði í opnunarræðu sinni á lands­ fundi Sjálfstæðisflokksins að þetta væri fyrsta kreppa hans kynslóðar. Það er mikið til í því. Þó var hér kreppa á árunum 1989 til 1995 en hún var ekkert miðað við það sem núna er og senni­ lega hefur kynslóð Bjarna, sem þá var í kringum tvítugt og í námi, ekki fundið mikið fyrir henni. Órói hefur hlaupið í Íslendinga í hvert einasta skipti sem landið hefur lent í efnahags örðu gleikum og margir þá tekið hatt sinn og staf og flutt út. Þetta er hægt að sjá í töflum frá Hagstofunni. Á árunum 1967 til 1969 flutti fjöldi Íslendinga til Svíþjóðar, Ástralíu og Kanada. Það er ekki á vísan að róa með vinnu fyrir þá sem flytja út. Ís lenskir iðnaðarmenn hafa þó ætíð verið vel liðnir erlendis og gott orð farið af þeim. Þeir sem flytjast til Noregs finna fljótt að þótt launin séu hærri eru húsaleigan, barna gæslan, búðin og samgöngur dýrari. Ósló hefur ekki til þessa þótt ódýrasta borg í heimi. Íslendingar eru svo hrifnir af Norð mönnum að allir málaskól­ ar á Íslandi eru sagðir yfirfullir af fólki að læra norsku. Ungt fólk hefur misst vonina um að bráðum komi betri tíð með blóm í haga, sæta langa sum ardaga. Vandi okkar Íslendinga er hins vegar heimatilbúinn. Hver er sinnar gæfu smiður. Við erum best og klárust. Við erum snill­ i ngar. Við hækkum laun í kreppu og búum til verðbólgu. Þeir sem standa fyrir þessum samningum hrópa svo á götum úti á sama tíma að þeir vilji umfram allt stöð ug leika. Við hækkum skatta til að örva atvinnulífið. Það heitir að toga sig upp á hárinu. Við hækkum opinber gjöld á bensín, vín og vindlinga og hækkum þar með vísitölu neysluverðs – svo verðtryggðu lánin okkar hækki örugglega í kreppunni. Við hækkum vexti til að slá á ofhitnun hagkerfisins og of mikl­ ar fjárfestingar, einmitt þegar hvorugt er fyrir hendi. Íslensk heimili eru í úlpum og barómet atvinnulífsins eru ísköld en við Íslendingar lesum út úr þessu að það sé ofhitnun hagkerfisins. Verðtryggingin hefur hækk­ að verðtryggð lán í landinu um 40% frá hruni. Sú snilld verður seint toppuð – skrítið að aðrar þjóðir api þetta ekki upp eftir okkur. Við lesum fréttir um að heim ilin eigi yfir 625 milljarða á inn­ stæðureikningum en skuldi svipað á móti í bönkunum. Þar að auki skulda svo heimilin um 900 milljarða annars staðar í kerfinu; mest hjá Íbúðalána­ sjóði, eða um 1.500 milljarða. Fínt; 10% verðbólga á ári hækkar skuldastabba heimil­ anna ekki nema um 150 millj­ arða á ári. 5% verðbólga skilar hækk­ un á lán heimilanna upp á 75 milljarða á ári – og sú snilld er eiginlega aðeins of lítil snilld. Eitt er klárt; það búa tvær þjóðir í þessu landi. Það er ríki Íslendingurinn sem er með fé sitt í bönkunum og tryggt af skattborgurum lands ins. Svo er það fátæki Íslending­ urinn sem skuldar. Á hann leggjum við helst meiri álögur í formi vaxta. Hann er ungur og má við þessu. Að vísu vill hann af einhverjum óskiljan­ legum ástæðum flýja land og er í málaskóla á kvöldin að undirbúa brottförina. Núna er það helsta lottó­spil unga fólksins hvar það var í viðskiptum fyrir hrun. Þeir sem voru óvarkárastir og tóku 100% lán hjá bönkunum til íbúðarkaupa fá núna hæstu lottóvinningana, mest afskrifað og heyrast t.d. tölur um 8 til 10 milljónir í niðurfellingu lána af kannski 20 til 25 milljóna skuld tveggja herbergja íbúðar. Svo er það Íslendingurinn sem fór varlega, kom með eig­ ið fé í íbúðarkaupin og skipti við Íbúðalánasjóð við kaup á tveggja herbergja íbúð. Hann skuldar núna 20 til 25 milljónir í íbúðinni og á nákvæmlega ekki neitt í henni, fær enga leiðrétt­ ingu, situr fastur í skuldafang­ elsi – og hefur skráð sig á námskeið í norsku á kvöldin. Það flytja sjö mannakorn af landi brott á hverjum degi. Það er brottför klukkan átta. Jón G. Hauksson jgh@heimur.is brottFör klukkan Átta Yfir 40% Íslendinga hafa íhugað alvar lega á síðustu mán ­ uðum að flytja af landi brott og meira en helming ur ungs fólks á aldrinum 18 til 29 ára. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem fyrirtækið MMR hef ur gert. Pistill á heimur.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.