Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 54
54 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
C
hristine Lagarde hef ur
al drei farið troðnar slóð ir
og oft verið fyrst kvenna
til að tak ast á hendur
ýmis verkefni. Svo
sem að verða forstjóri
Al þjóða gjaldeyrissjóðsins. Í stjórnmálum
er hún talin hallast til hægri. Hún fylgir
í megindráttum fjáls lyndum skoðunum.
Fylgir frelsi á mark aði og takmörkuðum af
skipt um ríkis af efna hags og fjármálalífi.
Það þýðir þó alls ekki að hún elti bara
það sem aðrir hafa sagt um fjármál.
Til dæmis hefur hún fullyrt að fjármála
kreppu okkar daga megi að hluta rekja
til karllægra sjónarmiða í fjármálastofn
unum. Karlhormónið hefur haft of mikil
áhrif á ákvarðanir og áhættusækni banka,
segir hún. Hún er eiginlega hægri sinn
aður femínisti.
Lagarde tók við gjaldeyrissjóðnum
í sumar, einmitt eftir að karlhormónið
varð fyrri forstjóra að falli. Dominique
StraussKahn flæktist í pilsum herbergis
þernu á hóteli í New York. Dæmigert
fyrir valdakarla sem ekki ráða við tillann
á sér. Hvað gerðist í raun og veru og
í smáatriðum þarna á hótelinu skiptir
ekki lengur máli. DSK er búinn að vera
og kona komin í einn helsta valdastól
heimsins í dag.
Fremst meðal kvenna
Lagarde hefur verið fremst meðal kvenna
í mörgu – ekki bara listsundi. Hún varð
fyrst kvenna fjármálaráðherra Frakklands
og þar með fyrst kvenna til að fara með
fjármál ríkis í G8hópnum, hópi helstu
auðríkja heims.Hún vekur líka alltaf
athygli fyrir glæsi legan klæðaburð og
glæsilega framkomu og kunnugir segja
að hún hafi sterka nálægð. Það fer ekki
fram hjá neinum þegar hún gengur í sal
inn. Þetta er ekki eiginleiki sem er öllum
gefinn. Sumir eru og verða alltaf gráar
mýs. Og henni vefst aldrei tunga um
tönn. Því er henni oft líkt við poppstjörnu
á fundum ráðamanna heimsins – hún er
senuþjófur.
Á fundi G20ríkjanna í Cannes í Frakk
landi í haust kom líka fram að forstjóri
AGS er ekki litlaus blýantsnagari. Hún
sagði að tillögur Silvios Berlusconis í
efna hagsmálum Ítala væru ótrúverðugar.
Hann er nú hættur. Hún sagði jafnframt
að Kínverjar yrðu að breyta efnahags
stefnu sinni, áratugurinn væri glataður
í efnahagsmálum og glötuð kynslóð að
vaxa úr grasi! Ekki skortir sjálfstraustið.
Yfirstéttarstúlka
Christine Madeleine Odette Lallouette
fæddist 1. janúar 1956 í París og er því
55 ára. Hún er dóttir háskólakennara og
í æsku hennar var aldrei spurning hvort
hún færi í langskólanám, heldur aðeins
hvað hún myndi læra. Hún lagði stund
á lög og síðar stjórnmálafræði bæði í
Frakk landi og Bandaríkjunum. Eftirnafn
ið Lagarde er frá fyrrverandi eiginmanni
hennar. Hún er fráskilin tveggja barna
móðir. Á námsárunum var hún um tíma
í aðstoðarliði bandaríska þingmanns ins
Williams Cohens. Hann varð síðar varn
armálaráðherra hjá Bill Clinton. Að námi
loknu fór hún að vinna fyrir al þjóðlega
ráðgjafarfyrirtækið Baker and McKenzie,
fyrst í París en síðar í Banda ríkjunum,
og varð loks forstjóri fyrir tækisins, fyrst
kvenna að sjálfsögðu, og hafði aðsetur í
Chicago. Hún talar ensku reiprennandi
og án hreims. Það heyrð ist alltaf að DSK
var franskur.
Sérfræðingur – stjórnmálamaður
Baker and McKenzie var starfsvettvang
ur hennar frá 1981 til 2005. Það eru 24
mótunarár án þátttöku í stjórnmálum. Þó
alltaf þannig að sérgrein hennar voru lög
gegn hringamyndun og svo síðar löggjöf
Evrópusambandsins. Hún þekkir lög um
viðskipti betur en nokkur annar.
En árið 2005 urðu tímamót. Hún varð
stjórnmálakona, orðin nærri fimmtug.
Hún varð fyrst viðskiptaráðherra og
ráðherra landbúnaðar og sjávarútvegs
mála áður en hún tók við stjórn fjármála
Frakklands. Orð fór af dugnaði hennar
í embætti. Hún lagði áherslu á að auka
framleiðslu og útflutning og styrkja
þann ig grundvöll efnahagslífsins.
Lagarde varð vinsæl meðal undirmanna
sinna en þó mun aldrei spurning um
hvar valdið liggur í nærveru hennar.
Hún er sterk kona en hreinskiptin.
Fyrir aðeins fjórum árum taldi tímaritið
Forbes hana 39. valdamestu konu
heims. Núna er hún einn af kandídötun
um í efsta sætið ásamt Angelu Merkel
og Hillary Clinton.
Draugur frá tíma Evu Joly
Ekki er allt á hreinu úr ráðherratíð henn ar í
fjármálaráðuneytinu. Gömul spill ingarmál
eru þar enn á sveimi eins og gamlir
draugar. Maður er nefndur Bern ard
Tapie, skrautlegur náungi sem hófst frá
fátækt til frægðar og varð ríkur, eign að
ist m.a. knattspyrnufélagið Marseille og
flækti af list saman stjórnmál og við skipti.
Eva Joly varð Tapie þó að lokum
fjötur um fót. Hann missti allt sitt og fór
í fangelsi. En hann kom með krók á
móti bragði. Hann sakaði ríkisbankann
Credit Lyonnais um að hafa svindlað á
sér og fór í mál og krafðist bóta. Óvænt
var samið um sátt utan dómsalar og
franska ríkið greiddi Tapie 285 milljónir
evra í skaðabætur.
Tapie hefur alltaf verið laginn við að
velja sér vini meðal valdamanna, óháð
stjórnmálaskoðunum. Meðal vina hans
nú er Nicolas Sarkozy Frakklandsfor
seti. Stjórnarandstæðingar segja að
forsetinn hafi skipað fyrir um farsæla
lausn fyrir vin sinn og Lagarde misbeitt
valdi sínu í fjármálaráðuneytinu til að
afgreiða málið og borga Tapie þessa
aura. Málið er í opinberri rannsókn
en þessi hindrun tafði samt ekki för
Lagarde í stól forstjóra AGS.
Í björgunarliði heimsins
Enginn veit hvort misgjörðir sannast á
Lagarde. Hún hefur líka um annað að
hugsa þessa dagana. Efnahagur heims
ins er valtur. Enginn veit hvort ríkin við
Miðjarðarhaf komast út úr skuldakreppu
sinni. Enginn veit hvort nokkur hjálp er í
að Lagarde lét reka Berlusconi úr emb
ætti – eða var það Angela Merkel sem
lét reka hann? Sama hvor konan það
var; skuldirnar eru enn ógreiddar.
Svartsýnismenn spá tíu ára heims
kreppu. Lagarde hefur sjálf sagt að líkur
séu á að slíkur spádómur gangi eftir.
Og hún vinnur að því á hverjum degi að
koma í veg fyrir kreppu. Ef til vill verður
hún fyrst allra – karla og kvenna – til að
bjarga heiminum.
fremst meðal kvenna
TexTi: Gísli krisTJánsson
Christine Lagarde á aðeins sex ára stjórnmálaferil að
baki. Samt er hún meðal valdamestu kvenna heims.
GEFÐU FRÍ UM JÓLIN
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
Evrópa frá 29.900 kr.*
eða 24.000 Vildarpunktar og 15.000 kr.*
USA frá 52.900 kr.*
eða 44.000 Vildarpunktar og 25.000 kr.*
Jólapakkatilboðið gildir til London, Manchester, Glasgow, Kaupmannahafnar,
Stokkhólms, Osló, Helsinki, Amsterdam, Frankfurt og Parísar í Evrópu
og til New York, Boston, og Seattle í Bandaríkjunum.
Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2012 (síðasti ferðadagur).
Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld Icelandair.
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er frá 24. nóv. til 24. des. 2011 kl. 18.00. Bókunartímabil jólafargjalda er frá 22. des. 2011 til og með 13. jan. 2012.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánar á icelandair.is. Þessar ferðir gefa 3.000-16.200 Vildarpunkta. Jólafargjöld eru ekki endilega í boði í hverju flugi og sætaframboð er takmarkað.
+ Bókaðu núna á www.icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
IC
E
5
74
21
1
1/
11