Frjáls verslun - 01.10.2011, Blaðsíða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
að vinna með og það hefur skipt sköpum í
starfi okkar.“
Mentor er í fremstu röð á Norðurlöndun
um á sviði upplýsingatækni fyrir skóla
samfélagið. Mentor sameinaðist árið 2007
sænska fyrirtækinu P.O.D.B. og þar í landi
starfa 20 manns og á þessu ári voru auk
þess opnaðar starfsstöðvar í nokkrum
löndum – Sviss, Þýskalandi og Bretlandi. Í
undirbúningi er markaðssókn í Bretlandi
en InfoMentor Ltd. var stofnað í upphafi
þessa árs með samstarfsaðila Mentors í
Bretlandi, WebBased. Unnið er að því að
sameina það besta úr kerfum þess fyrirtæk is
og Mentors.
Fjöður í hattinn
Velgengni Mentors hefur fært fyrirtækinu
og Vilborgu ýmis verðlaun og viðurkenn
ingar og má þar nefna að fyrirtækið var
valið sprotafyrirtæki áranna 2008 og 2009.
„Við erum gríðarlega stolt af Vaxtarsprota
viðurkenningunum.“ Þá var fyrirtækið
valið nýsköpunarfyrirtæki ársins 2011. Vil
borg segir að það sé mikil viðurkenning og
veiti fyrirtækinu stuðning á erlendri grund.
„Það gefur okkur forskot að geta sagt frá
þessu á erlendum markaði þannig að þetta
hjálpar okkur í allri markaðssetningu.“ Vil
borg fékk viðurkenningu frá Félagi kvenna
í atvinnurekstri á síðasta ári. „Það var enn
ein fjöðrin fyrir Mentor.“
Hvernig ætli Vilborg lýsi sjálfri sér sem
stjórnanda? „Ég á nokkuð gott með að
vinna með fólki. Ég get hlustað, greint
aðal atriðin og fundið lausnir auk þess að
hafa skýra framtíðarsýn og markmið. Ég
held minn helsti styrkur sé að geta unnið
með fólki og fengið það með mér í þessa
vegferð.“
Hermann Ottósson, forstöðumaður mark aðsþróunar hjá Íslandsstofu, segir
að leiðir þeirra Vilborgar hafi legið sam an
fyrir átta árum þegar hún tók þátt í verk efn
inu Útflutningsaukning og hagvöxt ur hjá
Útflutningsráði. „Ég upplifði hana sem feiki
lega duglega en fannst reyndar strax að
hún hefði fullmörg járn í eldinum. Vilborg
er nákvæm og heiðarleg og hún á auðvelt
með að taka uppbyggilegri gagnrýni og sjá
það jákvæða í hlutunum, jafnvel við erfiðar
aðstæður. Hún er skemmtilegur og lifandi
karakter og það er gaman að ræða við hana
um heima og geima.“
Hermann segir að Vilborg njóti virðingar
og tekur sem dæmi að hún sitji í stjórnum
Ís landsstofu og Samtaka iðnaðarins. Þá
er hún í stjórn Tækniþróunarsjóðs og í
stjórn „Leadership for children and young
people“ í Bretlandi. „Lífið kennir fólki og
Vilborg hefur þrosk ast mikið sem stjórn
andi. Hún hefur stækk að með fyrirtækinu.“
Veit hVað hÚn Vill
Þegar vinnu sleppir – sem Vilborg segir
að sé eitt sitt helsta áhugamál – nýtur hún
þess að vera með fjölskyldunni. Hún og
eiginmaðurinn, Pétur Pétursson, sem er
stofnandi Manna og músa, eiga þrjú börn:
Dóttur sem er 10 ára og syni 15 og 17 ára.
Þau fara m.a. á skíði saman og ferðast um
landið á sumrin. Mýrdalur, æskuslóðir
Vil borgar í Þórisholti, er algengur áfanga
staður.
Jú, hún á fleiri áhugamál en vinnuna:
Blak. Þá íþrótt hefur hún stundað í áraraðir.
Huldu Helgadóttur viðskiptafræðingi
kynntist Vilborg í blakinu fyrir mörgum
ár um. „Vilborg er sveitastelpa og hún veit
hvað hún vill,“ segir Hulda. „Hún er dug
leg, vinnusöm og með mikið keppnisskap
sem birtist utan vallar sem innan. Hún
hvetur okkur áfram og er góður liðsmaður.
Vilborg er víðsýn og orkumikil og dugn
aðurinn í vinnunni kemur stundum niður
á æfingum – vinnuferðir erlendis eru ein
helsta ástæða þess að Vilborg mætir ekki á
allar æfingar.“
Hulda segir að Vilborg sé alltaf jákvæð
og vinur vina sinna. Þá sé hún afskaplega
hreinskilin og komi auga á skemmtilegu
hlutina í kringum sig. „Það er alltaf gott að
vera í kringum hana. Hún kann að segja
skemmtilegar sögur, ekki síst af sjálfri sér.
Hún á það til að týna hlutum og missa af
lestum og flugvélum. Hún getur stundum
verið svolítið utan við sig.“
En hvernig lýsir Vilborg sjálfri sér sem
stjórnanda? „Ég held það sé minn helsti
styrkur – að geta unnið með fólki og fengið
það með mér í þessa vegferð.“
Það getur vel verið að Vilborg missi af lest
um og flugvélum – eða öðrum samgöngu-
tækjum. Hún virðist hins vegar ekki hafa
misst af neinu farartæki á vegferð sinni í
fyrirtækjarekstri.
Hulda Helgadóttir viðskipta
fræðingur kynntist Vilborgu í
blakinu fyrir mörgum árum.
„Vilborg er sveitastelpa og
hún veit hvað hún vill,“ segir
Hulda.
Vilborg Einarsdóttir. „Ég get hlustað, greint aðalatriðin og fundið lausnir auk
þess að hafa skýra framtíðarsýn og markmið.“