Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 63
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 63
5. apple ipad 2 með Wi-Fi + 3g 16gb
Spjaldtölva (verð u.þ.b. 115.000 kr. í mörgum síma og tölvuversl
unum). iPad 2spjaldtölvan frá Apple er í broddi spjaldtölvufylk
ingarinnar að mati sérfræðinga PC World enda er hún öflugri og
léttari en fyrirrennarinn auk þess að vera með betri myndavélar.
Þó eru blikur á lofti, því þegar líður að lokum ársins hafa keppi
nautarnir tekið stór skref fram á við í vélbúnaði. Sá grunur gerist
æ áleitnari að starfsmenn Apple hafi e.t.v. verið of værukærir við
þróun iPad 2.
6. Microsoft Windows phone 7 Mango
Snjallsímastýrikerfi (fylgir með ýmsum snjallsímum, www.
windowsphone.com). Það er ekki oft sem maður sér Microsoft
í hlutverki lítilmagnans, en sú er engu að síður raunin á markaði
snjallsímastýrikerfa. Með útgáfu Mango aukast líkurnar á að Micro
soft taki þátt í samkeppninni af alvöru, því þetta er glettilega gott
stýrikerfi með ýmsum vel heppnuðum nýjungum.
7. hp eprint
Prentlausn (innbyggt í ýmsa HPprentara, www.eprintcenter.
com). Símar og spjaldtölvur eru nú orðin mikilvæg vinnutól, en
það getur reynst þrautin þyngri að prenta efni frá slíkum græjum.
ePrintprentlausnin frá HP leysir þetta vandamál, því ef prentarinn
er með ePrintsamhæfður má senda skrár til hans með tölvupósti
úr hvaða fartóli sem er.
8. sony alpha slt-a77
Myndavél (u.þ.b. 270.000 kr., á www.netverslun.is). A77 frá
Sony er vel að því komin að vera fyrsti fulltrúi myndavélanna á
topplistanum í ár. Myndgæðin eru frábær og hraðinn er ótrúlegur
– 12 rammar á sekúndu með hæstu upplausn (24,3 megapixlar)
og 60 ramma vídeó á sekúndu með 1080p upplausn. Ýmsir flottir
og skemmtilegir valkostir við myndatökur gera þessa vél að enn
álitlegri kosti fyrir ljósmyndaáhugafólk.
9. samsung series 9
Fartölvur (u.þ.b. 300.000 kr., www.samsungsetrid.is). Þessar
einstaklega þunnu en harðbyggðu fartölvur eru sennilega bestu
ofurléttu Windowsfartölvur sem eru á markaðnum í dag. Þær veita
MacBook Air talsvert harða samkeppni hvað útlit og vinnslugetu
varðar, en kosta líka sitt.
10. google +
Samfélagsvefur (ókeypis, plus.google.com). Ef maður ætlar í
samkeppni við risa á borð við Facebook skemmir það auðvitað
ekki fyrir að vera risi á borð við Google. Google + vinnur vel með
öðrum Googlelausnum, snjallsímaforritið er betra en hjá Face
book og notendaskilin eru einföld. Stóra spurningin er þó auðvitað
hvort fólk muni á endanum flykkjast á Google + í sama mæli og á
Facebook.
11. Canon eos 600d
Myndavél (u.þ.b. 220.000 kr., www.netverslun.is). EOS 600D
(þekkt sem Rebel T3i vestanhafs) er frábær kostur þegar velja
skal stafræna SLRmyndavél af ýmsum ástæðum. Hún fékk eina
bestu einkunn sem sést hefur í myndgæðaprófunum PC World,
vídeótakan er fyrsta flokks og svo er hún tiltölulega ódýr miðað við
margar aðrar myndavélar á markaðnum.
12. aMd radeon hd 6990
Skjákort (u.þ.b. 130.000 kr., í ýmsum tölvuverslunum). Þeir sem
vilja fullkominn ofurkraft í grafíkvinnsluna (væntanlega til að geta
keyrt nýjustu tölvuleikina) þurfa ekki að leita lengur – AMD Radeon
HD 6990 er lausnin. Það fékk frábæra einkunn í hraðaprófunum
PC World og fór langt með að réttlæta verðið – sem er reyndar svo
hátt að jafnvel hörðustu leikjaáhugamenn hugsa sig tvisvar um
áður en ráðist er í fjárfestinguna.
iPad 2 frá Apple er flaggskip spjaldtölv
anna – enn sem komið er.
Sony Alpha SLTA77
er sú myndavél sem
nær hæst á topp 50
þetta árið.
Samsung Series 9 er
ein flottasta fartölvan
á markaðnum í dag.
Canon EOS 600D er góður
kostur og tiltölulega ódýr
miðað við ýmsa keppi
nauta í sama gæðaflokki.
5
8
9
11