Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 65
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 65
21. asus eee pad slider
Spjaldtölva (u.þ.b. 130.000 kr., bit.ly/njEGHh). Hér gæti verið
komin lausnin fyrir þá sem eiga í vandræðum með að velja hvort
þeir kaupa fartölvu eða spjaldtölvu. Þessi spjaldtölva er þykkari
en flestar slíkar, en er líka með QWERTYlyklaborði sem rennt er
út og innbyggt USB 2.0tengi, sem þýðir að hún hentar betur við
vinnuna en flestar aðrar spjaldtölvur.
22. panasonic lumix dMC-gh2
Myndavél (u.þ.b. 90.000 kr., t.d. hjá www.ht.is og www.sm.is).
GH2 er frábært dæmi um hvernig myndavélar með snertiskjá eiga
að vera. Vídeótaka er svo vel heppnuð, þökk sé myndgæðum,
góðri fókusstýringu og fjölbreyttum stillingareiginleikum, að engin
myndavél með útskiptanlegri linsu stóðst henni snúning að þessu
leyti í prófunum PC World á árinu.
23. samsung galaxy tab 10.1 Wi-Fi 16gb
Spjaldtölva (u.þ.b. 125.000, t.d. hjá www.elko.is). Framleiðandi
hlýtur að vera kominn ansi vel áleiðis ef Apple reynir að stöðva
sölu spjaldtölvunnar hans, eða hvað? Galaxy 10.1 frá Samsung
var fyrsta spjaldtölvan sem virkilega náði að sýna getu Android
stýrikerfisins á „stóra“ skjánum.
24. sony handycam neX-vg20
Vídeótökuvél (u.þ.b. 360.000 kr., www.netverslun.is). Þessi nýja
vídeótökuvél frá Sony með útskiptanlegri linsu er bæting frá VG10
útgáfu síðasta árs. Vídeótakan er 1080p/60fps „Progressive“, en að
auki getur hún skilað RAWkyrrmyndum og ytri hönnun vélarinn ar er
betri en fyrrirennarans.
25. seagate Freeagent goFlex desk 4tb
Harður diskur (u.þ.b. 50.000 kr., bit.ly/dmo7nk). Hér er utanáliggj
andi harður diskur sem ætti að duga ansi lengi til að halda utan um
gagnasafnið – fjögur terabæti, hvorki meira né minna! Og USB 3.0
tryggir gagnaflutningshraða við hæfi.
26. sony alpha neX-7
Myndavél (u.þ.b. 260.000 kr., www.netverslun.is). NEX7 frá
Sony er frábær 24,3 megapixla myndavél með útskiptanlegum
linsum. Stjórnkerfið er vel heppnað og vídeótakan góð. Fínasta
viðbót við NEXlínuna frá Sony.
27. seagate goFlex satellite Mobile Wireless storage 500gb
Harður diskur (u.þ.b. 40.000 kr., bit.ly/kZufq4). Þessi 500 GB
þráðlausi harði diskur gæti orðið besti vinur spjaldtölvunnar. Það
er nefnilega hægt að skella ansi stóru tónlistar og bíómyndasafni
á hann og spila svo þráðlaust á spjaldtölvunni með WiFitengingu.
28. lenovo thinkpad X1
Fartölva (frá u.þ.b. 200.000 kr., www.netverslun.is). Thinkpad
X1fartölvurnar falla í flokk ofurléttra fartölva, en þær eru þó ekki
alveg eins rennilegar og Macbook Air og Samsung Series 9. Engu
að síður urðu þær efstar á blaði PC World fyrir viðskiptaferða
langa, því afkastageta og ending gerast varla betri.
29. sony vaio sb series
Fartölva (u.þ.b. 250.000 kr., www.netverslun.is). Hér er frábær
valkostur fyrir þá sem vilja skipta upp úr ofurlétta flokkinum. Tölva
úr þessari línu stóð sig frábærlega í prófunum PC World á árinu,
skilaði frábærri vinnslugetu og samt entist rafhlaðan von úr viti.
30. Webroot secureanywhere antivirus
Veiruvarnarforrit (u.þ.b. 5.000 kr./ári, www.webroot.com). Þessi
veiruvarnarbúnaður notar tölvuský til að búa til hraðvirkari og öflugri
veiruvörn en áður hefur þekkst. Með því að kaupa „Complete“pakk
ann (ca. 10.000 kr./ári) fæst líka veiruvörn fyrir iOS og Androidtæki.
Panasonic Lumix DMCGH2.
GH2 er frábært dæmi um
hvernig myndavélar með
snertiskjá eiga að vera.
Samsung Galaxy
Tab 10.1 WiFi 16GB.
Samsung var fyrsta
spjald tölvan sem virki-
lega náði að sýna getu
Androidstýrikerfisins á
„stóra“ skjánum.
Handycam NEXVG20 er vel hönn
uð vídeótökuvél frá Sony.
Lenovo ThinkPad X1 er góður
kostur fyrir viðskiptaferðalangana.
22
23
24
28