Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 70

Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 70
70 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 Í desember er annasamt í Ostabúðinni á skólavörðustíg. Mikið er að gera í afgreiðslu girnilegu jólakarfanna og í veisluþjón ust unni, sem er bæði fyrir heimahús, fyrirpartí og hvers kyns móttökur. Ostar, bækur, kaffi og vín í jólakörfurnar Ostabúðin „Mörg fyrirtæki eru farin að gefa körf­ urnar viku fyrir jól. Þá er hugmyndin að gefa fólki kost á að njóta góðgætisins á aðventunni.“ Jólakörfurnar – mjög vinsælar um árabil Jóhann Jónsson, framkvæmda­ stjóri Ostabúðarinnar, er sann ­ færður um að jólakörfurnar muni alltaf halda vinsældum sínum. „Skýringin er líklega sú að þetta eru bæði fallegar gjafir og sýnilegar. Körfurnar eru flott- ar og persónulegar gjafir sem bjóða upp á að gefandinn gefi hugmyndafluginu lausan taum- inn og velji ýmislegt góðgæti. Gjarnan er skemmtilegum hlut um stungið með, t.d. geisla­ diskum og bókum. Það er að koma aftur eftir að hafa dregist aðeins saman eftir 2008. Svo er sígilt að láta góða flösku af víni, léttu eða sterku, fylgja með. Annars er þetta bara spurning um hversu miklu fólk vill kosta til og hvað það kýs að hafa í körfunum. Stærri körfurnar geta hæglega nýst bæði yfir jól og áramót, þær endast alveg nógu lengi til þess. Franskir ostar og forréttir Best er að panta körfurnar með góðum fyrirvara en rétt fyrir jól erum við með tvær til þrjár teg­ undir af tilbúnum körfum fyrir þá sem þurfa að grípa smart gjöf á síðustu stundu.Mörg fyrirtæki eru farin að gefa starfsmönnum körfurnar viku fyrir jól. Þá er hugmyndin sú að gefa fólki kost á að njóta góð gæt isins á aðventunni. Persónulega myndi ég velja franska osta og ýmsa forrétti, sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Fólk gefur forréttunum almennt ekki mikinn gaum. Það hefur borið meira á því að gefið sé kjötstykki með þessu, til dæm is hamborgarhryg­ gur eða hangikjöt, en bitarnir kannski eitt og hálft til jafnvel þrjú og hálft kíló og sumir vilja hugsan lega ekki fyrirfram völdu teg undina í aðalréttinn. Þetta þarfn ast aðeins umhugsunar við. Svo fæst eðalkaffi hjá Kaffi- fél aginu hér við hliðina sem ég mæli hiklaust með í körfurnar. Skólavörðustígurinn hefur sann­ að sig sem frábær verslunar­ gata og samvinnan skiptir öllu máli.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.