Frjáls verslun - 01.10.2011, Síða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Í desember er annasamt í Ostabúðinni á skólavörðustíg. Mikið er að gera
í afgreiðslu girnilegu jólakarfanna og í veisluþjón ust unni, sem er bæði
fyrir heimahús, fyrirpartí og hvers kyns móttökur.
Ostar, bækur, kaffi og vín
í jólakörfurnar
Ostabúðin
„Mörg fyrirtæki eru
farin að gefa körf
urnar viku fyrir jól.
Þá er hugmyndin að
gefa fólki kost á að
njóta góðgætisins á
aðventunni.“
Jólakörfurnar
– mjög vinsælar um árabil
Jóhann Jónsson, framkvæmda
stjóri Ostabúðarinnar, er sann
færður um að jólakörfurnar
muni alltaf halda vinsældum
sínum. „Skýringin er líklega sú
að þetta eru bæði fallegar gjafir
og sýnilegar. Körfurnar eru flott-
ar og persónulegar gjafir sem
bjóða upp á að gefandinn gefi
hugmyndafluginu lausan taum-
inn og velji ýmislegt góðgæti.
Gjarnan er skemmtilegum
hlut um stungið með, t.d. geisla
diskum og bókum. Það er að
koma aftur eftir að hafa dregist
aðeins saman eftir 2008. Svo er
sígilt að láta góða flösku af víni,
léttu eða sterku, fylgja með.
Annars er þetta bara spurning
um hversu miklu fólk vill kosta
til og hvað það kýs að hafa í
körfunum.
Stærri körfurnar geta hæglega
nýst bæði yfir jól og áramót, þær
endast alveg nógu lengi til þess.
Franskir ostar og forréttir
Best er að panta körfurnar með
góðum fyrirvara en rétt fyrir jól
erum við með tvær til þrjár teg
undir af tilbúnum körfum fyrir
þá sem þurfa að grípa smart gjöf
á síðustu stundu.Mörg fyrirtæki
eru farin að gefa starfsmönnum
körfurnar viku fyrir jól. Þá er
hugmyndin sú að gefa fólki
kost á að njóta góð gæt isins á
aðventunni.
Persónulega myndi ég velja
franska osta og ýmsa forrétti,
sem eru í miklu uppáhaldi hjá
mér. Fólk gefur forréttunum
almennt ekki mikinn gaum.
Það hefur borið meira á því að
gefið sé kjötstykki með þessu,
til dæm is hamborgarhryg
gur eða hangikjöt, en bitarnir
kannski eitt og hálft til jafnvel
þrjú og hálft kíló og sumir vilja
hugsan lega ekki fyrirfram völdu
teg undina í aðalréttinn. Þetta
þarfn ast aðeins umhugsunar við.
Svo fæst eðalkaffi hjá Kaffi-
fél aginu hér við hliðina sem ég
mæli hiklaust með í körfurnar.
Skólavörðustígurinn hefur sann
að sig sem frábær verslunar
gata og samvinnan skiptir öllu
máli.“