Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 75

Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 75
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 75 F yrir örfáum árum hefði þessi setn ­ ing verið alger rökvilla. Á tím um snjallsím anna eru símarnir hins vegar farnir að gegna svo mörg­ um mismunandi hlutverkum að þetta sem áður var grunnhlutverk græjunn ar getur verið tiltölulega illa heppnað án þess að það skipti svo miklu máli. Græjan er ein faldlega svo góð í allt annað! Ekki hægir á þróuninni í snjallsímunum þessa dagana. Þeir fá öflugri örgjörva og stærra minni, betri myndavélar, fjölhæfari stýrikerfi, flottari skjái og svo mætti lengi telja. Forritin verða fleiri og betri og nýtast við sífellt fleiri verkefni dag legs lífs. Þeir Vandlátu Velja 4s eða s ii En hvaða símar á markaðnum fyrir þessi jól eru líklegastir til að lenda í jólapökkum landsmanna? Auðvitað er vandi um slíkt að spá … en spáum samt aðeins. Þeir vand látustu munu líta til hins nýja iPhone 4S frá Apple og Android­símans Samsung Galaxy S II, sem eru í dýrasta verðflokki snjallsímanna, á yfir 100.000 kr. (reynd ar hátt í 150.000 kr. í tilviki iPhone). Þessir símar geta allt sem á annað borð er hægt að gera með snjallsímum. Ein hverjir vilja svo án efa bíða eftir Sam- sung Galaxy Nexus, sem er væntanlegur á markaðinn fyrir jól og verður fyrsti síminn með Android 4.0­stýrikerfinu. Í sama verð ­ flokki er Nokia N9 sem hefur fengið góða dóma. Spurningarmerki hefur verið sett við MeeGo­stýrikerfið sem þykir flott – en óvíst að verði notað í nokkrum öðrum síma. Góðir miðað Við Verð Þegar horft er til miðhluta markaðarins, á verð bilið 60­80 þúsund, er sennilegt að Samsung W verði vinsæll Android­megin. Það er öflugur sími með flestallt sem hægt er að óska sér í snjall símum þótt hann nái e.t.v. ekki alveg sömu hæð um og þeir sem eru í hæsta verðflokknum. Nokia­fólkið mun væntanlega horfa til Nokia 700 sem er afar léttur og nettur en gefur þó lítið eftir í vinnslugetunni. Ýmis kostakjör má finna í neðsta verðflokknum. Til að mynda þykir LG Optimus Hub vera ansi öfl ugur miðað við verð, sem er í kringum 40.000 krónur. Þetta er arftaki Optimus One, sem hefur notið talsverðra vinsælda meðal ódýrari snjall síma. Enn neðar í verðbili, og sérstaklega stílaður á ungt fólk, er Sam sung Y, sem mun vænt anlega vera í kring um 25.000 krónur fyrir jólin. snjallIr jÓlaPaKKar „Þetta er frábær farsími. En hann er ekkert sérstaklega góður fyrir símtöl.“ „Ekki hægir á þróuninni í snjallsímunum þessa dag ana. Þeir fá öflugri ör gjörva og stærra minni, betri mynd avélar, fjölhæfari stýri kerfi, flottari skjái og svo mætti lengi telja.“ iPhone 4S Samsung Galaxy S II LG Optimus HubNokia 700Samsung Galaxy Nexus Nokia N9 TexTi: krisTinn JÓn arnarson.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.