Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 87
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 87
íslenskum sjávarútvegi. Fyrirtæki var stofn
að utan um það árið 1983.
„Stefna fyrirtækja þarf sífellt að aðlagast
breyttu umhverfi án kúvendinga. Við þurfum
að takast á við nýjar áskoranir, vaxa og
dafna, að öðrum kosti er hætta á að við
visn um og deyjum,“ sagði Árni Oddur og
vitn aði þar í Gandhi. „Ef við værum með þá
stefnu í dag að auka framleiðni í íslensk
um sjávarútvegi væri Marel agnarsmátt
fyrirtæki og sennilega í ákaflega miklum
erfiðleikum þar sem fjárfestingar í íslensk
um sjávarútvegi hafa nánast engar verið
síðustu þrjú árin.“
Árni Oddur sagði meginmarkmið Mar els
í dag að vera í fararbroddi á heimsvísu í
þróun og markaðssetningu á há tæknibúnaði
til kjöt, kjúklinga og fisk vinnslu. „Þessi
breyt ing á stefnunni hefur átt sér stað án
umbyltingar, í smáum skrefum á löngum
tíma. Fjölbreytileiki og stöðugleiki tekna er
nú mun meiri á milli iðngreina og mis mun
andi landsvæða.“
Við þurfum að takast á við
nýjar áskoranir, vaxa og
dafna, að öðrum kosti er
hætta á að við visnum og
deyjum, sagði Árni Oddur
og vitnaði þar í Gandhi.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæm-
dastjóri Parlogis:
Hvatningin er mikilvægust á
tímum stöðnunar
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri Parlogis, ræddi um það hvort forgangsröðun stjórnend a
hefði breyst eftir hrun – sagði að ekkert eitt
svar væri til við því þar sem forgangsröðun
stjórnenda væri mismunandi eftir einstakl
ingum og þeim fyrirtækjum sem þeir
stýrðu. Að hennar mati væri þó hvatning
in for gangsverkefni forstjóra á næstu
árum vegna þess hve mikil stöðnun væri í
atvinnu lífinu. Stöðnun virkar letjandi á alla
og þá þarf hvatningin að koma til sögunnar.
„Vissulega hafa ytri skilyrði áhrif á for
gangsröðun stjórnandans. Andrúmsloftið
í þjóðfélaginu einkennist frekar af varkárni
en djörfung og það eru því ólíkar áskoranir
stjórnenda við þessar aðstæður,“ sagði
Guðný.
„Við vitum að væntingar starfsmanna
hafa breyst, þrýstingur á launahækkanir er
almennt minni og bónusar sjaldgæfir. Það
þýðir hins vegar ekki að stjórnandinn geti
sleppt því að hvetja og umbuna. Í rauninni
er hvatningin það mikilvægasta núna.“
Guðný Rósa lagði áherslu á að í um hverfi
hafta og stöðnunar væri hagkvæmni í
rekstri fyrirtækja og öflugt starfsmannateymi
lykilatriði ef fyrirtæki ættu að eiga sér fram
tíð. „Starfsfólk fylgist betur með því sem
er að gerast innan fyrirtækisins og góður
stjórn andi hlýtur því að nýta sér þessa
áherslubreytingu og fá starfsfólkið í lið með
sér til að sinna grunngildum fyrirtækisins
og gera fyrirtækið öflugra. Mikilvægasta
hlutverk stjórnandans hlýtur því ávallt, óháð
efnahagsástandi, að vera að hlúa að starfs
mönnum fyrirtækisins þannig að þeir geti
sinnt viðskiptavinunum sem best og skapi
sem mest verðmæti fyrir eigendur og aðra
hagsmunahópa.“„Við verðum að skapa
umhverfi sem hvetur til verðmætasköpunar
á skynsamlegan hátt; það verður að vera
leyfilegt að taka áhættu án öfga og við
verðum að losa okkur úr því umhverfi hafta
og sjálfsvorkunnar sem við höfum komið
okkur í.“
Vegna þess hve mikil stöðn
un er í atvinnulífinu verður
hvatningin helsta forgangs
verkefni for stjóra á næstu
árum. Stöðn un virkar
letjandi á alla.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á
Íslandi og formaður Viðskiptaráðs:
Laða að og þjálfa gott fólk
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og formaður Viðskiptaráðs, fjallaði um Alcoa í fyrirlestri sínum;
þetta fyrirtæki sem „hefur valdið svo miklu
umróti í íslenskri umræðu“ eins og hann
sagði.
Hann sagði að verksmiðjan á Reyðarfirði
væri fullkomnasta álver í heimi og sagðist
telja að þar væri sömuleiðis einn besti rekst
ur í heimi í þeim bransa. Velta fyrirtækisins
hér á landi er um 100 milljarðar íslenskra
króna á ári og sagði Tómas Már að í dag
væru tækifærin mörg: Nýtt álver og góður
rekstur í góðri stórri samsteypu.
„Hlutverk stjórnenda er fyrst og fremst að
laða að gott fólk, þjálfa það, halda í það
og hjálpa því að ná árangri. Við höfum
unn ið talsvert í því að markaðssetja svæðið
og samfélagið og laða að rétta fólkið. Við
hvetjum fólk til dæmis til að taka þátt í
leikfélaginu á staðnum, skíðafélaginu og
ferðafélaginu; þetta er hluti af hvatakerfi
okkar. Við leggjum mikið upp úr þjálfun og
menntun starfsmanna, rekum Stóriðjuskóla
Fjarðaáls og reynum að halda góðri
tengingu við háskóla. Starfsumhverfið er
lykilatriði og við reynum að skapa áhuga
vert starfsumhverfi og auka færni hvers
og eins og gera fólk að sérfræðingum. Við
leggjum áherslu á þátttöku starfsfólks og
það kemur víða að ákvarðanatökum og þá
sérstaklega í gegnum nefndarstörf. Einnig
er mikil áhersla á teymisvinnu og við viljum
fjölga tækifærum til innri vaxtar í gegnum
okkar fólk.“
Tómas Már sagði að hreinskilni og raun
sæi væru lykilatriði til að ná þessu öllu. „Við
erum að innleiða frammistöðustjórnunar
kerfi þar sem við höfum þróað hvata með
því að tengja launaþróun við frammistöðu
og hæfni og að okkar mati hefur það skilað
góðum árangri.“
„Hlutverk stjórnenda er fyrst
og fremst að laða að gott fólk,
þjálfa það, halda í það og
hjálpa því að ná árangri.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórnar-
formaður Marels.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og
formaður Viðskiptaráðs.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri
Parlogis.