Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 96
96 FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011
Þ
ráinn Freyr Vigfús
son er verðlaunaður
matreiðslumaður.
Hann var keppandi
Íslands fyrr á þessu
ári á Bocuse d’Or í Frakklandi,
sem er óopinber heimsmeis
tarakeppni í matreiðslu, og
endaði þar í sjöunda sæti. Frá
því hann útskrifaðist úr Hótel
og matvælaskólanum árið
2005 hefur hann verið valinn
Matreiðslumaður ársins, 2007;
varð í fyrsta sæti í One World
Culinary Competition árið 2008
og náði öðru sæti í keppninni
um matreiðslumann Norður
landa 2009.
Þráinn er yfirmatreiðslumaður
á hinum nýja og glæsilega
veit ingastað Kolabrautinni,
sem er á fjórðu hæð í Hörpu.
„Við leggjum áherslu á að nota
ís lenskt hráefni og vinna það
undir áhrifum frá löndum við
Miðj arðarhafið – notum krydd
sem er vinsælt þar til að fá réttu
stemninguna. Eldhúsið er nánast
í salnum þannig að gest urinn
sér okkur kokkana og allt sem
ver ið er að elda. Við erum með
eldofn í salnum, nokkurs konar
pítsuofn, sem við notum til að
elda kjöt og grænmeti og geta
gestir fylgst með gangi mála.
Allt frá því við opnuðum
staðinn hefur hann verið vel
sótt ur og nú þegar við erum að
fara inn í jólatraffíkina er mikið
bókað hjá okkur. Við erum með
sérstakan þriggja rétta jólamat
seðil með góðgæti sem margir
tengja við hátíðirnar. Jólamat
seðlinum fylgir hlaðborð í forrétt
og síðan er aðalréttur valinn
samkvæmt matseðli og í lokin er
jóladesert. Það er þétt bókað í
jólamatseðilinn og má geta þess
að í tengslum við Frostrósa
tón leikana er allt fullbók að hjá
okkur. Í heild njót um við góðs af
þeim tónlistaratburðum sem eru
í Hörpu og er yfirleitt fjöldi fólks í
mat hjá okkur fyrir tónleika.“
Þráinn er fæddur og uppalinn
á Sauðárkróki og fór snemma
að vinna í eldhúsi. „Ég var ekki
nema fjórtán ára þegar ég fór
að vinna á sumrin í eldhúsi
föður míns, Vigfúsar Vigfússon
ar, sem rak hótel á Sauðárkróki
og þaðan lá leiðin suður í nám.
Ég byrjaði námið í Café Óperu,
en flutti mig yfir í Grillið á Hótel
Sögu þar sem ég lauk námi og
starfaði allt þar til ég réð mig á
Kolabrautina.
Eins og gefur að skilja snúa
áhugamál Þráins að mat. „Ég
er í matreiðslulandsliðinu og
við erum með æfingar sem eru
verkefnabundnar og nú erum
við að æfa fyrir ólympíuleikana í
mat reiðslu sem verða í Þýska
landi á næsta ári. Auk matreiðsl
unnar hef ég svo áhuga á íþrótt
um; fótbolta, körfubolta, veiði,
skíðum og módelsporti. Ég
spila fótbolta með félögum mín
um okkur til gamans, veiðina
stunda ég takmarkað en fer
nokkrum sinnum á ári og reyni
að fara á skíði þegar tækifæri
gefst, sem er ekki oft hér sunn
anlands. Ég er að sjálfsögðu
Tindastólsmaður í boltanum hér
heima en Manchester United
maður í enska boltanum og er
þar á skjön við aðra fjölskyldu
meðlimi, sem eru allir Liverpool
aðdáendur.“
Eins og gefur að skilja er nóg
að gera hjá Þráni í jólamánuðin
um, hann ætlar þó að taka
smápásu áður en traffíkin hefst
fyrir alvöru. „Við erum nokkrir
félagar að fara í helgarferð til
Kaupmannahafnar og Óðins
véa, hitta vini og kunningja
og að sjálfsögðu fara í „dansk
julefrokost“.
Þráinn Freyr Vigfússon
– yfirmatreiðslumaður á Kolabrautinni
„Ég er að sjálfsögðu Tindastólsmaður í boltanum hér heima en Manchester United-maður í enska
boltanum og er þar á skjön við aðra fjölskyldumeðlimi, sem eru allir Liverpool-aðdáendur.“
Nafn: Þráinn Freyr Vigfússon.
Fæðingarstaður: Sauðárkrókur, 24.
maí 1981.
Foreldrar: Vigfús Vigfússon og Lovísa
Birna Björnsdóttir.
Maki: Einhleypur.
Börn: Engin.
Menntun: Matreiðslumaður.
fóLk