Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Forsíðu grein
Helsta fréttin af Baráttunni um Ísland er sú ákvörðun Arion banka að Bónusfjölskyldan stýri áfram Högum og verði við stjórnvölinn þegar fyrirtækið verður skráð í Kauphöllina. Fáist
15 milljarðar fyrir Haga þarf bankinn að afskrifa a.m.k. 35 milljarða af
skuldum fjölskyldunnar vegna 1998 ehf. en það félag átti Haga. Það
hefur samt ekki verið upplýst. Allir furða sig á því að Jóhannes Jónsson
og fjölskylda hafi ekki valdað reitinn í kringum Bónus og Haga betur,
hvernig það hafi geta gerst að fjölskyldusilfrið hafi verið veðsett.
Arion banki er einkabanki þar sem erlendir kröfuhafar eru stærstu
eigendurnir, með 87% hlut. Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri bank-
ans, segir að stjórn hans taki endanlega ákvörðun í svona málum og
taka þurfi tillit til m.a. vilja erlendu kröfuhafanna. Innstæður í Arion
banka eru hins vegar tryggðar af íslenska ríkinu; almenningi á Íslandi
– sem hins vegar fær ekkert að vita hvað gerist á bak við tjöldin. Rík-
isstjórnin virðist áhorfandi en ekki gerandi á sölu fyrirtækja í eigu
bankanna. Ekki nema ríkisstjórnin beiti sér í málum án þess að láta
það uppi, eins og í málefnum Haga.
Arion banki mun eiga Haga þangað til fyrirtækið verður selt í
Kauphöllinni. Hagar verða að minnsta kosti í eigu bankans fram á
sumar þegar útboðið fer fram.
Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, og nokkrir
stjórnendur Haga fá forkaupsrétt að 15% hlutafé í Högum, þar af
fær Jóhannes 10% hlut. Það tryggir að Jóhannes og núverandi stjórn-
endur Haga munu stýra fyrirtækinu. Þeir munu kaupa hlut sinn eins
og aðrir.
Ef eignarhaldið á Högum verður mjög dreift tryggir 30 til 35%
hlutur yfirráð í félaginu. Bónusfjölskyldan þarf því ekki að koma með
nema 15% til viðbótar til að tryggja sér félagið. Ekkert hefur verið
rætt um að hlutabréfaeign í félaginu verði takmörkuð.
Hvar fá Jóhannes og lykilstarfsmenn Haga í kringum 2,3 millj-
arða króna (15%) miðað við að verðmatið á Högum sé í kringum
15 milljarðar króna? Það fé fellur ekki af himnum ofan. Arion banki
ætlar ekki að lána það.
jóHannesi Hampað
Fæstir trúa því að Jón ásgeir Jóhannesson
sitji hjá og komi hvergi nærri þessari fjárfest-
ingu þótt Arion banki hafi ekki nefnt hann á
nafn í fréttatilkynningu sinni.
tExtI: JÓN G. HAUKSSoN
Jóhannes er á framhliðinni, en fæstir trúa því að Jón Ásgeir sitji hjá.