Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 b æ k u r Nýverið var endurútgefin í Bandaríkjunum bókin How to Win Friends and Influence People eftir Dale Carnegie (í íslenskri þýð- ingu Vinsældir og áhrif, útg. JPV). Bókin kom fyrst út árið 1936 og hefur síðan selst í milljónum eintaka um allan heim og er að jafnaði inni á metsölulistum netbókaversl- ana og viðskiptatímarita. Þegar þetta er ritað er hún í 36. sæti yfir mest seldu viðskiptabækurnar (listinn er uppfærður á klukkustundar fresti) og telst líklega til aldursforseta á listanum. Á metsölulista Businessweek er hún sögð „klassísk, besta bókin um hvernig á að stækka tengslanetið.“ Viðskipti snúast nær eingöngu um að byggja upp tengsl og því er það þess vegna sem margir þekktir aðilar úr viðskiptalífinu tala um þessa bók sem sína leið til að halda sér við efnið. Nægir þar að nefna Lee Iacocca sem lýkur lofsorði á bókina í bók sinni Where Have All the Leaders Gone og fjárfestirinn heimsþekkti Warren Buffet. Sá síðarnefndi sagði nýverið í viðtali við Fortune að það sé ekki nóg að hugsa um auð í formi peninga, það verði líka að huga að mannauðnum. Í viðtalinu talar hann um hversu mikið hann leggi sig fram við að eiga gott samband við þá sem hann vinnur með og nefnir hve hjálpleg bók Dale Carnegies hafi verið og að hann „sé enn að læra af bókinni og leiti í henni ráða næstum daglega.“ um bókina Bókin er sett upp á einfaldan hátt í kringum 30 reglur í mannlegum samskiptum sem Dale Carne- gie setti saman. Í tenglsum við hverja reglu segir hann sögur af fólki, samtímamönnum sínum og konum, þekktum sem óþekktum, sem beittu þessum reglum og náðu þannig góðum árangri í sínum viðfangsefnum. Bókin er byggð þannig upp að ekki þarf að lesa hana spjaldanna á milli heldur er hægt að grípa niður í hana nánast hvar sem er og lesa stutta sögu um einhverja af reglunum 30. Hún er því tilvalin á náttborðið. Reglurnar eru einfaldar, allt frá því að brosa meira upp í að láta fólk finnast það vera mikilvægt og gera það af einlægni. Talað er um að leyfa fólki að halda virðingu sinni, byrja vingjarnlega þegar við mætum fólki, tala um okkar eigin mistök áður en við bendum á mistök annarra o.s.frv. Margir segja þegar þeir sjá þessar einföldu reglur saman á einum stað að við vitum vel að við eigum að beita þeim en gleymum okkur kannski í amstri dagsins. Þær séu því góð áminning um þessa heilbrigðu skynsemi í samskiptum sem við höfum tilhneigingu til að gleyma með tilheyrandi vandkvæðum og árekstrum. Fyrir hverja? Þótt þessi bók sé að nálgast áttræðisaldurinn á hún síst minna við í dag en þegar hún var skrifuð, einfaldlega vegna þess að tækifærin sem nútímamaðurinn hefur til samskipta í dag eru fleiri en um miðbik síðustu aldar. Örar tækniframfarir gera það að verkum að við erum stöðugt í sambandi Bókin er sett upp á einfaldan hátt í kringum 30 reglur í mannlegum samskiptum sem Dale Carnegie setti saman fyrir áttatíu árum. Þær eiga enn fullt erindi og Warren Buffett hefur sérstakar mætur á þessari bók. tExti: unnur valBorg HilMarsDóttir Dale Carnegie skrifaði bókina How to Win Friends and Influence People árið 1936. Bókin How to Win Friends and Influence People: HAFÐU MEIRI ÁHRIF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.