Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 106
Fólk
106 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Birna Rún Gísladóttir.
„Útivist og hreyfing er
nauðsyn. Eftir góða
pásu í líkamsræktinni
er ég að ná tökum á
því að festa hana á
ákveðna morgna fyrir
vinnudaginn og verða
þeir dagar einfaldlega
betri en aðrir dagar.“
BIRNA RÚN GÍSLADÓTTIR
sérfræðingur á markaðsssviði Arion banka
Síðastliðnir mánuðir hafa meira og minna farið í að halda utan um nafnabreytingu bankans og þessa
dagana er aðallega unnið við stefnumótun,
aðgerðaráætlanir og skipulagningu á markaðs-
og kynningarefni bankans,“ segir Birna Rún
Gísladóttir, sem starfar sem sérfræðingur
á markaðssviði Arion banka. Hún stýrir
jafnframt framkvæmd markaðskannana og
hefur umsjón með styrkjamálum bankans.
„Það er gríðarlega breytt landslag í markaðs-
málum bankanna, nú er aðaláherslan á að
kynna þær lausnir sem viðskiptavinum
bjóðast. Megináherslan er á ráðgjöf fremur
en sölu, ólíkt því sem áður var. Starfsandinn
í bankanum er góður og allt starfsumhverfi
til fyrirmyndar. Það ríkir almennt kraftmikil
jákvæðni og bjartsýni meðal starfsfólksins hjá
Arion banka. Við erum staðráðin í að skara
fram úr.“
Áður en Birna Rún hóf störf hjá Arion
banka starfaði hún hjá Kaupþingi frá árinu
2003 og þar áður eða frá 1998 starfaði hún
hjá Búnaðarbanka Íslands. „Mér hefur alla tíð
fallið vel að starfa á þessum vettvangi og ég hef
kynnst hér frábæru fólki í gegnum tíðina.
Fyrir utan að sinna starfinu, fjölskyldunni
og vinum gefst takmarkaður tími til
félagsstarfa, en ég sit þó í stjórn Emblanna,
sem er félagsskapur kvenna sem hafa
útskrifast með MBA-gráðu frá Háskólanum
í Reykjavík. Markmið félagsins er að efla
tengslanet kvenna með fræðslu og vettvangi
til umræðna og með því nýtum við krafta
þeirra öflugu kvenna sem útskrifast hafa með
MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.“
Birna Rún ólst upp í Árbænum, keppti
í knattspyrnu með Fylkisstúlkum, lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands og
útskrifaðist úr viðskiptafræði með B.Sc gráðu
frá Háskóla Íslands árið 2002. Hún starfaði
við verslunarstörf, sölumennsku og ýmislegt
fleira jafnhliða náminu. Maki hennar er
Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður,
framkvæmdastjóri miðborgarinnar og for-
maður STEF. Þau luku saman MBAprófi
frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2006. Ári
síðar fæddist þeim dóttirin Jarún Júlía sem er
sannkallaður augasteinn foreldra sinna.
Fjölskyldan á athvarf við Meðalfellsvatn
í Kjós um 30 mínútur frá Reykjavík sem
er mátulegur bíltúr fyrir annasamt fólk.
„Þar er alltaf kærkomið að virða fyrir sér
náttúrufegurðina, taka göngutúr í sælunni,
fylla á orkuna og kíkja á kýrnar, kindurnar
og hestana.“
Meðal áhugamála Birnu Rúnar frá unga
aldri er skíðaíþróttin og stefnir hún að því að
halda um páskana til Borghildar mágkonu
sinnar á Akureyri og kenna dótturinni á skíði
í Hlíðarfjallinu. „Útivist og hreyfing er
nauðsyn. Eftir góða pásu í líkamsræktinni er
ég að ná tökum á því að festa hana á ákveðna
morgna fyrir vinnudaginn og verða þeir
dagar einfaldlega betri en aðrir dagar. Í
febrúar er svo ætlunin að skreppa til New
York í nokkra daga enda er hún í miklu
uppáhaldi. Ólíkt mörgum þá nærist ég á því
að heimsækja borgina sem aldrei sefur.“
Nafn: Birna Rún Gísladóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
4. maí 1973
Foreldrar: Gísli Ágústsson og
Sigurlaug Þórðardóttir
Maki: Jakob Frímann
Magnússon
Börn: Jarún Júlía Jakobsdóttir
Menntun: MBA og B.Sc í
viðskiptafræðum