Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 85

Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 85 Fundir og ráðsteFnur Dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst og forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga, sótti í nóvember ráðstefnu fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins í Chisinau, höfuðborg Moldóvu. „Niðurstöður rannsóknar minnar á tjáningarfrelsi fjölmiðla, sem ég vann fyrir Feneyjanefndina, eru notaðar sem grunnur að leiðbeiningareglum í eftirliti með frammistöðu fjölmiðla í aðdraganda kosninga í aðildarríkjum Evrópuráðs, þá sérstaklega ríkjum austur Evrópu. Markmið Feneyjarnefndar Evrópuráðs er að aðstoða þessi ríki í að koma á lýðræðislegu stjórnarfari með lögum. Moldóva er gamalt Sovétlýðveldi og pólitískt og efnahagslegt ástand afar slæmt. Stjórnvöld sendu harðsnúinn lögfræðing á fundinn. Hann virtist þekkja til allra helstu dóma Mannréttindadómstóls Evrópu á sviði tjáningarfrelsis en ég er ekki viss um að skilningur á eðli vandans hafi verið jafnmikill enda lítil virðing borin fyrir fjölmiðlafrelsi í Moldóvu. Í aðdraganda kosninga nýverið ruddist lögreglan inn á ritstjórnarskrifstofur fjölmiðla í Chisinau án nokkurra heimilda. Margt sló mig þessa fáu daga sem ég dvaldi í Chisinau. Á sjálfu ráðstefnuhótelinu voru ungar stúlkur á barnum með tyrkneskum, skuggalegum náunga kvöld eftir kvöld að reyna að selja sig. Stúlkurnar eru bláfátækar og koma utan af landi í leit að tækifærum. Margar lenda í því að vera seldar mansali en Moldóva er miðstöð mansals til annarra landa. Það var þrúgandi og sorglegt að verða þessa áskynja. Chisinau er sögð gróðursælasta borg Evrópu en Moldóva var matarkista gömlu Sovétríkjanna. Þarna er stór matvæla- markaður, blómamarkaður og fólk að selja varning á götum. Flestir eru fátæklegir, byggingar fremur hrörlegar en inn á milli eru að rísa nýjar verslunarhallir í vestrænum stíl. Ég varð vitni að íburðarmiklu brúðkaupi en ungt fólk skuldsetur sig víst mörg ár fram í tímann vegna slíks. Það er dauft yfir unga fólk- inu þarna og margir þrá að fara langt í burtu vestur, í von um betri lífskjör. Ég hef sjaldan séð fólk biðja eins heitt og signa sig af jafnmiklum ákafa og í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni við aðaltorgið. Þegar Mannréttindasáttmáli Evrópu var saminn á rústum síðari heimsstyrjaldarinnar spurði einn höfundanna, franskur lagaprófessor, að hvaða marki tjáningarfrelsi og önnur borg- araleg réttindi kæmu fólki að notum sem ætti vart til hnífs og skeiðar. Sú hugsun var ofarlega í huga mér þegar ég yfirgaf þetta fátæka land – mér fannst ég hafa farið áratugi aftur í tímann. Það var góð tilfinning eftir langt ferðalag að komast í sund um kvöldið, horfa á stjörnur og norðurljós í tunglskini og sjá gufuna stíga upp úr heitu pottunum þar sem fólk sat og ræddi mögulegar lausnir á vanda líðandi stundar.“ Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor. Niðurstöður rannsóknar hennar á tján- ingarfrelsi fjölmiðla, sem hún vann fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins, eru notaðar sem grunnur að leiðbeiningarreglum í eftirliti með frammistöðu fjölmiðla í aðdraganda kosninga í aðildarríkjum Evrópuráðs, þá sérstaklega ríkjum Austur-Evrópu. EftirminnilEg ráðstEfna: Á vegum Evrópuráðs í Chisinau í Moldóvu R á ð s t e f n u R & f u n d a h ö l d . Fyrirmyndaraðstaða fyrir allt að 10 – 470 manna ráðstefnur. . 14 funda- og veislusalir fyrir stórar sem smáar veislur. . Frábær aðstaða fyrir stórsýningar, fjarfundi og beinar útsendingar. Við leggjum okkur fram við að bjóða bestu og tæknilega fullkomnustu ráðstefnuaðstöðu á landinu. Grand hótel Reykjavík / sigtún 38 / 105 Reykjavík sími: 514 8019 / fax: 5148030 / radstefnur@grand.is / www.grand.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.