Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
n æ r m y n d a f Ó l a f i r a g n a r i g r í m s s y n i
völd sem Alþingi hafði annars. Stjórnmálaforystan á Alþingi hefur
ekki haft dug til að endurheimta völd sín.“
bara til bóta
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, hefur minni
áhyggjur af breyttum áherslum á Bessastöðum.
Gerðir forsetans geta að sjálfsögðu orkað tvímælis hverju sinni en:
„Aðalatriðið er ekki hver áhrifin af innkomu hans eru til skamms
tíma, heldur hver þau eru til lengri tíma litið,“ segir Ögmundur.
„Ég held að þetta verði okkur til framdráttar einfaldlega vegna
þess að opnun á þjóðaratkvæðagreiðslu hefur skapað Íslendingum
sóknarfæri í gríðarlegu hagsmunamáli sem er miklu stærra en
skammtímahagsmunir í stjórnmálum.“
alltaf í hringiðunni
En hvernig stendur á því að einn maður nær aftur og aftur á meira en
fjögurra áratuga ferli að komast í hringiðuna miðja; verða sá maður
sem skammir og hrós hverfast um í daglegri umræðu?
Samherjar hafna honum og andstæðingar faðma hann að sér. Það
er sagt að hann hafi átt sér dyggan hóp aðdáenda, sem nú er horfinn,
en hugsanlega er nýr kominn í staðinn.
Einn þeirra sem fullyrt er að sé nýkominn í aðdáendahóp Ólafs
Ragnars er Ögmundur Jónasson. Svo hefur ekki alltaf verið og það
viðurkennir Ögmundur fúslega. En af hverju hefur þjóðin öll aldrei
orðið sátt við þennan forseta sinn?
„Ólafur Ragnar er um margt afburðamaður,“ segir Ögmundur
til skýringar á hæfileika forsetans til að endurnýja samband sitt og
þjóðarinnar.
„En hann burðast hins vegar með þunga og umdeilda sögulega
arfleifð frá pólitískum slagsmálum fyrri tíða,“ heldur Ögmundur
áfram. „Fyrir bragðið hefur hann ekki alltaf fengið að njóta
sannmælis fyrir það sem hann gerir vel.“
brilljant
Óli Björn er í aðalatriðum á sömu skoðun og Ögmundur hvað
hæfileika Ólafs Ragnars varðar. Hann segir að forsetinn sé „brilljant
kall og ofboðslega vel gefinn“ og þó segist Óli Björn aldrei hafa verið
í aðdáendaklúbbi Ólafs Ragnars en telur að hann hafi gert rétt 5.
janúar.
Ólafur ragnar grímsson
Fæddur á Ísafirði 14. maí 1943.
Foreldrar: Grímur Kristgeirsson og Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar.
Kjörinn forseti árið 1996. endurkjörinn árin 2000, 2004 og
2008.
Stúdent frá menntaskólanum í Reykjavík árið 1962.
BA-próf í hagfræði og stjórnmálafræði frá university of
manchester árið 1965. doktorspróf í stjórnmálafræði frá sama
skóla árið 1970.
lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1970.
Skipaður fyrsti prófessor við Háskóla Íslands í stjórnmálafræði
1973.
Í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna 1966-1973.
Í framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins 1971-1973.
Í framboði til Alþingis fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna
1974.
Sat á Alþingi sem varaþingmaður 1974 og 1975.
Þingmaður Reykvíkinga fyrir Alþýðubandalagið 1978-1983.
Þingmaður Reyknesinga 1991-1995.
varaþingmaður 1983-1991.
Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1980-1983.
Formaður framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins 1983-1987.
Ritstjóri Þjóðviljans 1983-1985.
Formaður Alþýðubandalagsins 1987-1995.
Fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1988-
1991.
Kvæntist 14. nóvember 1974 Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur
framkvæmdastjóra. Hún var fædd 14. ágúst 1934 og lést 12.
október 1998. Foreldrar: Þorbergur Friðriksson skipstjóri og
Guðrún Bech. tvíburadætur Ólafs og Guðrúnar eru Guðrún tinna
viðskiptafræðingur og Svanhildur dalla stjórnmálafræðingur og
lögfræðingur, fæddar 1975.
Kvæntist 14. maí 2003 dorrit moussaieff skartgripahönnuði.
Hún er fædd 12. janúar 1950. Foreldrar hennar eru Shlomo
moussaieff og Alisa moussaieff.
„mér finnst hann
reyndar betri á
ensku en íslensku.
setningarnar verða
eins og markvissari á
enskunni.“
Óli Björn Kárason.
„Ég er ekki viss um
að þjóðin hafi gert sér
grein fyrir hvaða mann
hún var að kjósa þegar
hún kaus Ólaf ragnar,“
Jón Baldvin Hannibalsson.