Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Vinsælustu fyrirtækin
Bankarnir voru óvinsælastir og
25,8% aðspurðra sögðust neikvæð
í þeirra garð. Aldrei hefur svo stór
hluti aðspurðra nefnt neikvæðni
í garð einstakra fyrirtækja eða
fyrirtækjategundar.
Össur og Marel eru oft nefnd
samhliða sem fyrirtæki sem hafa
staðið sig vel í útrásinni – og njóta
fyrir vikið virðingar.
Könnunin endurspeglar mjög
neikvætt viðhorf almennings til
þeirra fyrirtækja sem hafa átt í
rekstrarerfiðleikum, ekki síst þeirra
sem hafa tengst útrásinni.
Eimskip mjakast upp listann en
komst ekki á blað í fyrra. Íslensk
erfðagreining, sem vann titilinn þrjú
ár í röð fyrir um tíu árum, er nú
horfin af listanum.
Hagkaup bæta við sig í vinsældum
frá því í fyrra.
Fjarðarkaup og Össur eru
hástökkvararnir á listanum.
Bankarnir toppa í óvinsældum
Oftast eru miklu færri sem nefna fyrirtæki sem þeir hafa neikvætt
viðhorf til en jákvætt. Þetta breyttist árið 2009 og ágerist núna.
„Bankarnir“ voru óvinsælastir og 25,8% aðspurðra sögðust
neikvæð í þeirra garð. Aldrei hefur svo stór hluti aðspurðra nefnt
neikvæðni í garð einstakra fyrirtækja eða fyrirtækjategundar.
Fjarðarkaup með 9%, Marel með 7%, Icelandair með 6%
og Krónan með 4% eru önnur tiltölulega vinsæl fyrirtæki.
Bankarnir þrír hafa oftast verið í fimm efstu sætunum en á því
varð breyting árið 2009. Þeir eru enn langt fyrir neðan topp tíu
listann.
Næst eru nefnd Nettó, MS, sparisjóðirnir, Hagkaup, Iceland
Express og CCP.
Fyrirtæki, sem áður fyrr voru meðal vinsælustu fyrirtækja
landsins, eru nú mun neðar á listanum. Efstir bankanna eru
Íslandsbanki og Landsbankinn í 20.- 21. sæti en Arion er í 38.-
48. sæti.
Eimskip mjakast upp listann en komst ekki á blað í fyrra.
Íslensk erfðagreining, sem vann titilinn þrjú ár í röð fyrir um tíu
árum, er nú horfin af listanum.
Bankarnir eru efstir á listanum um óvinsæl fyrirtæki með
26%. Næst kemur Bónus, en 11% nefna það sem fyrirtæki sem
þeir hafi neikvæð viðhorf til og Landsbankinn en um 9% nefna
hann. Næst komu Arion banki, Baugur, Hagkaup, Íslandsbanki
og Samskip.
Könnunin endurspeglar mjög neikvætt viðhorf almennings
til þeirra fyrirtækja sem hafa átt í rekstrarerfiðleikum, ekki síst
þeirra sem hafa tengst útrásinni. Gjaldþrot bankanna og hrun
krónunnar hefur auðvitað valdið gremju í garð þessara fyrir-
fyrirtækja.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.