Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 RITSTJÓRNARGREIN Stjórn Viðskiptaráðs! SJÖ AF NÍTJÁN í nýkjörinni stjórn Viðskiptaráðs eru frá fyrirtækjum sem komin eru í hendur banka og kröfuhafa eftir hrunið. Þetta eru tæplega fjörutíu pró- sent af ráðinu. Á sama tíma sendir ráðið frá sér könnun þar sem fram kemur að 40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja að þau séu í harðri samkeppni við opinber fyrirtæki. Þetta er Ísland í dag. Ekki set ég út á þá einstaklinga sem sitja í nýkjörinni stjórn Viðskiptaráðs. En ég staldra við hve stór hluti ráðsins starfar í fyrirtækjum sem eru í eigu banka og hins opin- bera. Ekki að þessir starfsmenn geti svo sem að því gert, hrunið leiddi til þess að bankarnir ákváðu nauðugir viljugir að yfirtaka fyrirtæki undir því yfirskini að verja hagsmuni sína. Þetta er hins vegar óþolandi ástand, krumla bankanna skekkir alla samkeppnisstöðu á markaði. Það er ótækt fyrir skilvíst einkafyrirtæki, sem baslar við að greiða reikninga og standa sig eftir bestu getu, að horfa upp á keppinautinn kom- inn í öruggt skjól bankanna með tilheyr- andi afskriftum skulda; keppinaut sem varð fallvaltur og missti baklandið eftir að hafa farið of mikinn í bólunni. Stjórn Við- skiptaráðs hefur hér hlutverki að gegna við að standa vaktina með einkafyrirtækjum sem keppa við fyrirtæki í eigu banka og ríkisins – í mjög svo ójöfnum leik. VIÐSKIPTARÁÐ FÉKK samkvæmt venju forsætisráðherra til að halda tölu á Viðskiptaþingi. Yfirskrift þingsins var: Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? Samkeppnis- hæfni og rekstrarumhverfi. Jóhanna Sigurðardóttir sagði í ræðu sinni að upphafið að bankahruninu hefði verið einkavæðing bankanna sem fór út af sporinu 2002 þegar sérvöldum aðilum voru afhent völdin í bankakerf- inu. Því fór sem fór. Þetta er afar ódýr skýring hjá forsætisráðherra um hrunið þótt örugglega megi setja út á það hvernig bankarnir voru seldir á sínum tíma. Stórbankar um allan hinn vestræna heim riðuðu til falls í bankakreppunni og hefðu ekki lifað af nema með opinberri aðstoð. Íslensku bankarnir voru orðnir tíu sinnum stærri en hagkerfið og ríkið hafði ekki bolmagn til að styðja við bakið á þeim. Það er hægt að vera vitur eftir á en eftir stendur að það fer ekki saman að stórir spilarar í atvinnulífinu séu á sama tíma stórir hluthafar í bönkunum. Og öfugt; að stórir bankar séu stórir hlut- hafar í fyrirtækjum. JÓHANNA FORSÆTISRÁÐHERRA gerði það að sérstöku umtalsefni á Viðskiptaþingi að hættulegt væri að afhenda völdin í bankakerfinu en í sömu andrá talaði hún um að eitt mikilvægasta verkefni okkar væri að endurreisa traust í íslensku samfélagi. Þar hefur ríkis- stjórn hennar ekki tekist vel upp. Traustið og gegnsæið vantar. Það héldu flestir þegar ríkið endurreisti bankana og tryggði innstæður í þeim að það hefði eitthvað um vinnubrögð þeirra að segja í framhaldinu. Það reyndist misskilningur. Ríkisstjórnin hefur einmitt afhent völdin í bankakerfinu. Það er rekin afskiptaleysisstefna. Ríkis- stjórnin er áhorfandi frekar en gerandi þegar kemur að bönkunum. Hún tryggir allt en þykist ekki geta haft nein áhrif og ber fyrir sig Bankasýslu. Tveir bankanna, Arion banki og Íslandsbanki, eru allt í einu orðnir einkabankar sem ríkisstjórnin segist ekki geta skipta sér af þótt hún tryggi þá bak og fyrir. Jóhanna skiptir sér ekki af því hvernig bankarnir selja þau fyrirtæki sem þeir hafa tekið yfir og setur engar reglur þar um. Hún skiptir sér ekki af vinnubrögðum Seðlabankans og ber við sjálf- stæði bankans sem tregðast við að húrra niður vöxtum í dýpstu kreppu sem riðið hefur yfir og viðheldur súr- efnisleysi fyrirtækja. Ríkisstjórnin segist ekkert hafa með vexti að gera vegna sjálfstæðis Seðlabankans. GYLFI MAGNÚSSON lagði nýlega fram frum- varp á Alþingi um fjármálafyrirtæki. Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir að skilja að starfsemi viðskiptabanka og fjárfestingarbanka – en það var einmitt fjárfestinga- bankasvið bankanna sem hafði mest með bankahrunið að gera. Í athugasemd með frumvarpinu segir að rík- inu sé ekki skylt að ábyrgjast Tryggingasjóð innstæðu- eigenda en gera megi ráð fyrir því að lántaka sjóðsins verði erfiðleikum bundin án bankaábyrgðar ríkissjóðs eða annarrar aðkomu hans að lántöku. Hvað er að? Hafa menn ekkert lært af Icesave? Ætlar ríkisstjórnin að ábyrgjast einkabanka, en telja okkur svo trú um að hún geti ekki skipt sér af þeim vegna þess að þetta séu einkabankar í eigu útlendinga?! STJÓRN VIÐSKIPTARÁÐS verður að standa vaktina með einkafyrirtækjunum sem keppa við fyrir- tæki í eigu bankanna þótt hluti ráðsins starfi í síðar- nefndu fyrirtækjunum. Bankarnir voru nánast allsráð- andi í höndum fyrri eigenda en völd þeirra hafa frekar vaxið en hitt – og þeim er núna allt í sjálfsvald sett undir stjórn Jóhönnu. Jón G. Hauksson Völd bankanna hafa frekar vaxið en hitt – og þeim er núna allt í sjálfsvald sett undir stjórn Jóhönnu. Bókaðu núna! með ánægju Iceland Express býður flugsæti á góðu verði til Evrópu og Ameríku. Leiðarkerfið okkar fyrir næsta sumar hefur aldrei fjölbreyttara og núna geturðu valið á milli 25 áfangastaða í Evrópu og Ameríku. Við hlökkum til að ferðast með þér í sumar! Bókaðu sumarferðina þína núna á www.icelandexpress.is – hvert sem hugurinn leitar! F í t o n / S Í A Sumarið 2010 25 áfangastaðir í sumar! Ísland Akureyri Varsjá Kraká Bergamo Bologna Barcelona Alicante Berlín Kaupmannahöfn Billund Álaborg Ósló London Gatwick Stansted Birmingham Friedrichshafen Genf Basel Frankfurt Hahn Rotterdam París Evrópa Lúxemborg Bandaríkin Kanada New York Winnipeg Gdansk Gautaborg F í t o n / S Í A www.icelandexpress.is Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.