Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 104
Fólk
104 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Harpa – tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík, er hluti af umfangs-miklu þróunarverkefni á Austur-
hafnarsvæðinu. Markmiðið er að byggingin
verði eitt helsta kennileiti borgarinnar
og að verkefnið í heild sinni stækki og
endurlífgi austurhöfn Reykjavíkur með
nýju miðbæjartorgi og tengi svæðið betur
við miðbæinn. Hrönn Ingólfsdóttir er
markaðsstjóri Hörpu og hóf störf síðastliðið
haust.
„Harpa er fjölnota hús sem við viljum
fá sem mest líf í. Húsið getur tekið á móti
mörgum mismunandi viðburðum s.s.
tónlistarviðburðum af ýmsum toga, fundum,
ráðstefnum, veislum fyrir fyrirtæki og
einstaklinga og kvikmyndsýningum. Allur
tæknibúnaður verður fyrsta flokks og gott
sýningarsvæði verður í húsinu sem gefur
ýmsa möguleika.
Starf mitt felst í markaðssetningu á húsinu
og ýmsum öðrum verkefnum tengdum opnun
á húsinu. Það er í mörg horn að líta þegar
verið er að koma húsi sem þessu í rekstur,
ekki síst með tilliti þess að það styttist í opnun
hússins sem verður í maí 2011. Starfið er því
fjölbreytt og víðtækt. Áherslurnar í mínu
starfi eru á markaðssetningu ráðstefnuhlutans.
Húsið fékk nafn í desember og við erum m.a.
að vinna að uppfærslu á heimasíðu okkar og
tilfærslu á síðunni yfir á lén í samræmi við
nafnið.
Hrönn á tvo syni á ólíkum aldri. „Sá eldri
er orðinn fullorðinn, er í skóla ásamt því að
vinna á veitingastað en yngri sonurinn er hins
vegar á leikskóla. Það eru því mjög ólíkar
samræður sem ég á við þá tvo. Á árunum
á milli barna aflaði ég mér menntunar og
bjó erlendis um tíma, sem var góð reynsla.
Við eigum okkar heimili í gömlu húsi í
Gerðunum með litlum garðskika. Það er gott
að búa í þessu gróna hverfi og staðsetningin
frábær.
Það skemmtilegasta sem ég geri er að
ferðast um framandi slóðir og langar að gera
enn meira af því í framtíðinni. Það er svo
áhugavert að kynnast öðrum þjóðfélögum.
Síðasta ferð var til Kína nú í haust. Þar voru
heimsóttir einir sjö staðir á tveimur vikum.
Ferðast var með flugvélum, lestum, rútum
og bátum. Við fengum leiðsögumann til
að aðstoða okkur á hverjum stað, enda
mikið að komast yfir á stuttum tíma.
Gangan á Kínamúrnum er eftirminnilegust.
Almennt kom samt mest á óvart hvað áhrif
kapítalismanns eru sterk í þjóðfélaginu þrátt
fyrir kommúnískt stjórnarfar.
Annars er eftirminnilegasti staður sem ég
hef komið til enn sem komið er Machu
Picchu í Perú. Andrúmsloftið þar er alveg
sérstakt. Það færist yfir mann andlegur
friður uppi í hæðunum. Innanlands hef ég
aðgang að sumarbústað á Arnarstapa. Þangað
er gott að koma. Þar nær maður að aftengja
sig frá amstri dagsins og endurhlaða batteríin,
enda Snæfellsjökull svo að segja við
túnfótinn. Sumarfríinu verður varið þar
þetta árið.“
Hrönn Ingólfsdóttir.
„Það skemmtilegasta
sem ég geri er að
ferðast um framandi
slóðir og langar að
gera enn meira af því í
framtíðinni. Það er svo
áhugavert að kynnast
öðrum þjóðfélögum.“
HRÖNN INGÓLFSDÓTTIR
markaðsstjóri Hörpu – tónlistar- og ráðstefnuhúss
Nafn: Hrönn Ingólfsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
21. apríl 1968.
Foreldrar: Kolbrún
Ingimarsdóttir og Ingólfur
Arnarson (látinn)
Börn: Andri Már 20 ára og
Bjarki Freyr 3 ára.
Menntun: BA í félags-
og fjölmiðlafræði frá
Háskóla Íslands 1992,
MA í auglýsingafræði frá
Michigan State University í
Bandaríkjunum 1994, MSc
í aðferðafræði félagsvísinda
frá University of Edinburgh í
Skotlandi 1997 og MBA-gráða
frá Háskóla Íslands 2002.
TEXTI:
HILMAR
KARLSSON
MYND:
GEIR ÓLAFSSON