Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 29
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 29
Hvaða áhuga hafa almenningur og fagfjárfestar á hlutafé í Högum
með Jóhannes og Jón Ásgeir við stýrið? Það er stóra spurningin. Þetta
er í raun ekki í fyrsta sinn sem Hagar eru í Kauphöllinni. Baugur, sem
rak sömu verslanir, var almenningshlutafélag og allir þekkja þá sögu
eftir Baugsmálið. Bónusfjölskyldan tók Baug í skyndi út af markaði.
Núna vill hún vera á markaði með Haga. Það sem situr eftir í hugum
margra fjárfesta eftir Baugsmálið er að Jón Ásgeir hafi farið með
almenningshlutafélagið Baug sem sitt eigið.
Þekktir stjórnarmenn í Baugi, eins og Þorgeir Baldursson og
Guðfinna Bjarnadóttir, sögðu af sér. Spurningin er: Treysta fjárfestar
og fyrrum hluthafar í Baugi Jóni Ásgeir aftur? Sumir þeirra telja sig
örugglega hafa verið plataða. Jóhannes er á framhliðinni, en fæstir
trúa því að Jón Ásgeir sitji hjá.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segir að það sé
hag bankans fyrir bestu að Jóhannes og núverandi stjórnendur Haga
stýri því áfram. Þannig fái bankinn mest fyrir fyrirtækið í Kauphöll-
inni, það verði eftirsóknarverðast. Á meðal lykilstjórnenda Haga eru
Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss.
Vilhjálmur Bjarnason, lektor við HÍ og framkvæmdastjóri Sam-
taka fjárfesta, hefur gagnrýnt þessa ákvörðun Arion banka og sagt að
hún misbjóði íslensku samfélagi.
Vilhjálmur segir að bankinn sé að semja við aðila sem hafi valdið
gjaldþrotum annarra félaga upp á 500 til 700 milljarða króna,
kannski meira, og þurfi hugsanlega að afskrifa 50 milljarða vegna
skulda fjölskyldunnar í tengslum við Haga.
Ekki fer á milli mála að Samtök fjárfesta munu láta til sín taka
þegar nær dregur skráningu félagsins í Kauphöllinni og gera kröfu um
nákvæma skráningarlýsingu.
Hvernig tekst til með skráningu Haga? Jóhannes Jónsson nýtur
vinsælda en Jón Ásgeir er óvinsæll. Jóns Ásgeirs er hvergi getið í frétta-
tilkynningunni og Finnur Sveinbjörnsson hefur haft sérstakt orð á því
við fjölmiðla. Hann virðist trúa því að Jón Ásgeir ætli ekki að kaupa í
Högum. Enginn trúir því hins vegar að hann sitji hjá.
Mikil leynd er í þessu máli. Finnur Sveinbjörnsson hefur ekki
viljað upplýsa hversu miklar skuldir bankinn afskrifar hjá Bónusfjöl-
skyldunni vegna eignarhaldsins á 1998 ehf. sem átti Haga.
Skuldir 1998 ehf., fyrirtækis Bónusfjölskyldunnar, eru um 50
milljarðar króna, samkvæmt fréttum um málið. Það ræðst af verð-
inu sem fæst fyrir Haga í Kauphöllinni hversu mikið bankinn þarf
að afskrifa.
Frjáls verslun hefur haldið því fram að verðmiðinn á Högum sé
í kringum 15 til 20 milljarðar króna miðað við afkomu Haga og
yfirburðastöðu á markaði matvæla; 60% markaðshlutdeild. Verði sú
raunin þarf bankinn að afskrifa 35 milljarða. Finnur Sveinbjörnsson
hefur verið ófáanlegur til að gefa upp hvort Bónusfjölskyldan sé í
persónulegri ábyrgð.
„Það er fyrir öllu að nú hefur óvissu um framtíð Haga verið eytt,“
sagði Jóhannes í sérstakri fréttatilkynningu. Ýmsir spurðu á móti
hvort óvissan yrði ekki meiri því ekki liggur fyrir hverjir munu koma
inn í fyrirtækið þegar það fer á markað. Það er auðvelt að kaupa upp
kennitölur. Flestir telja að Bónusfjölskyldan sleppi ekki takinu úr
þessu.
„Nú sitja allir við sama borð og söluferlið er eins opið og gegnsætt
og hægt er,“ sagði Jóhannes ennfremur í tilkynningunni.
jóHannesi Hampað