Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 33
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 33
Bankarnir:
Hvers vegna eru
ekki samræmdar
reglur?
Óánægja fólks í viðskiptalífinu með að ekki séu samræmdar reglur
um afskriftir lána hjá bönkunum er að stigmagnast. Hvers vegna
eru ekki samræmdar reglur hjá bönkunum? Eftir hrunið finnst
fólki að það eigi ekki að skipta máli hvaða banka það eigi viðskipti
við þegar kemur að afskriftum.
Þá hefur líka borið á óánægju forráðamanna fyrirtækja hvað
varðar mismunun þegar kemur að aðgangshörku fyrirtækja.
Margar sögur ganga um skuldug fyrirtæki, sem sögð eru hafa
meiri framlegð en önnur í sama banka, og skulda jafnvel minna
en þau, fái samt harðari meðferð af hálfu bankans. Þá heyrast
sögur um að mismunandi aðferðum sé beitt innan banka eftir því
hvort viðkomandi fyrirtæki sé inni á lánasviði eða fyrirtækjasviði,
svo dæmi sé tekið.
Loks ber á orðrómi um miklar afskriftir á skuldum illa staddra
einstaklinga á meðan aðrir, sem skulda frekar lítið og eru skilvísir,
fá engar afskriftir og finna fyrir harðara viðmóti í sinn garð en
áður.
Sögurnar eru margar en fæstir vita hvort þær eigi við rök að
styðjast. Ástæðan; Pukur og leynd um aðgerðir bankanna umfram
það sem þeir auglýsa að þeir geri gagnvart skuldugum fyrirtækjum
og einstaklingum.
En hvers vegna eru ekki samræmdar reglur í bönkunum þegar
ríkið rétti alla bankana við eftir hrun og tryggði innstæður í þeim
öllum? Þegar fólk situr ekki við sama borð skapast óréttlæti og
óréttlæti leiðir til reiði.
er búið að afskrifa
lán bankamanna?
Miklar sögur gengu um það í aðdraganda hrunsins að
starfsmenn banka og sparisjóða hefðu fengið lán hjá
vinnuveitendum sínum til að kaupa hlutabréf í viðkom-
andi banka eða sparisjóði. Oftar en ekki voru það bank-
arnir og sparisjóðirnir sjálfir sem áttu frumkvæði að því
að starfsmenn keyptu hlutabréf eða stofnfjárbréf.
Það pirrar marga, sem eru að ræða við starfsmenn
banka og sparisjóða og finnst lítið að gerast í sínum
málum og harkan vera mikil, að vita ekki hvort bank-
arnir og sparisjóðirnir séu búnir að afskrifa öll lán vegna
hlutabréfakaupa til bankamannanna sjálfra.
Eru bankar og sparisjóðir búnir að afskrifa lán til
starfsfólks vegna hlutabréfakaupa í viðkomandi banka og
sparisjóði? Litlar upplýsingar búa til vangaveltur og reiðin
magnast.