Frjáls verslun - 01.01.2010, Síða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 45
n æ r m y n d
Ó
lafur Ragnar Grímsson er utanflokka en rammpólitískur
nú eins og alltaf. Og hann er fyrsti forsetinn sem verður
verulega umdeildur.
Vinsældakannanir voru honum óhagstæðar allra
síðustu ár og alveg þar til í janúar á þessu ári. Að
þessu leyti skar hann sig mjög úr meðal fyrri forseta landsins og
meðal þjóðhöfðingja í ríkjum með líku stjórnskipulagi – það er
með þingbundnum ríkisstjórnum. Þetta eru þjóðhöfðingjar, sem
eru hafnir yfir dægurþras, hvort sem þeir eru kjörnir eða hafa erft
embættið. Íslensku þjóðinni virtist ekki líka við þjóðhöfðingja
sinn.
Svokallaðir bloggarar skrifuðu ýmislegt miður fallegt um Ólaf
Ragnar Grímsson og fæst af því er hafandi eftir á prenti. Hann var
kallaður ýmsum ljótum nöfnum og háðið náði hámarki og vinsæld-
irnar lágmarki í áramótaskaupi sjónvarps á gamlárskvöld 2009.
Nú er hins vegar ekki óalgengt að 60-70 prósent aðspurðra í
könnunum lýsi ánægju með forsetann en 30 prósent óánægju. Þessu
var öfugt farið áður en Ólafur Ragnar synjaði Icesave-lögunum
alræmdu undirskriftar 5. janúar. Hann sneri við blaðinu með einu
pennastriki.
ný valdastofnun
Og þetta er staðan heima. Á það er einnig bent að einmitt í upphafi
þessa árs hefur forsetinn birst í erlendum fjölmiðlum sem hinn
raunverulegi valdamaður, leiðtogi og málsvari fólks á hinni hrjáðu
Sögueyju í norðri.
„Enginn forseti Íslands hefur fyrr komið fram með þessum hætti
og orðið miðdepill athygli erlendis sem stjórnmálaleiðtogi á Íslandi,“
segir Óli Björn Kárason viðskiptablaðamaður og rithöfundur, um
nýja stöðu forsetans.
Hann minnir á að þótt Vigdís Finnbogadóttir hafi hlotið mikla
athygli erlendis þá var það á allt öðrum forsendum.
„Hún var vinsæl og eftirsótt af fjölmiðlum þar sem hún kom vegna
persónu sinnar en ekki sem stjórnmálamaður,“ segir Óli Björn. „Hún
hélt sig fjarri stjórnmálum og talaði um menningu, tungu og sögu.“
valdið og þingið
Þetta er sem sagt ný staða. En er hún viðunandi til lengdar? Jón
Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra, telur svo ekki vera.
Hann er gamall samherji og vinur Ólafs Ragnars og segir að það sé
núverandi stjórnmálaforystu að kenna að ekki er búið að taka af öll
tvímæli um hvar valdið liggur.
„Ólafur Ragnar hefur endurtúlkað stjórnarskrána og hrakið kenn-
ingu júrista íhaldsins um að völd forseta séu aðeins formleg og ekki
virk,“ segir Jón Baldvin. „Það átti að vera fyrir löngu búið að end-
urskoða stjórnarskrána og síðasta tilefni til þess var eftir að forsetinn
hafnaði fjölmiðlalögunum 2004. Þá tók Ólafur Ragnar sér pólitísk
Jón Baldvin
Hannibalsson.
Ögmundur
Jónasson.
Óli Björn
Kárason.
viðmæleNduR:
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, á blaðamannafundi
á Bessastöðum 5. janúar þar sem
hann tilkynnti að hann synjaði Icesave
lögunum staðfestingar og vísaði
málinu þar með í þjóðaratkvæði, eins
og stjórnarskráin gerir ráð fyrir.