Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Friðrik Sophusson. „Sýningin í Madrid hefur síðan verið
mér áminning um það hvernig tiltölulega fámennur hópur
Vesturlandabúa getur haft mikil áhrif með frumlegum
aðferðum – stundum til góðs en í þessu tilviki vafalaust
til ills.“
Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor
í guðfræði og ritskýringu Gamla
testamentisins við Háskóla
Íslands, tók síðastliðið haust þátt
í ráðstefnu í gamlatestamentis-
fræðum í háskólabænum Göttingen
í Þýskalandi. „Ráðstefnan var á
vegum OtSEM sem er samstarfsnet
gamlatestamentisfræðinga við
flestar guðfræðideildir á Norður-
löndum og Göttingen í Þýskalandi.
Og að þessu sinni bættist ekki
ónýtur liðsauki við, þ.e. gamlatesta-
mentisfræðingar frá einum þekkt-
asta háskóla heimsins: Oxford. Það
var heillandi að koma í þennan forn-
fræga háskólabæ, hitta starfssyst-
kin frá Norðurlöndum og í sumum
tilfellum fólk sem maður var með í
doktorsnámi í Svíþjóð fyrir rúmum
tveimur áratugum. Ráðstefnur sem
þessar eru einstaklega gefandi,
EftirminnilEg ráðstEfna:
Klappað fyrir Íslandi
í fornfrægum háskólabæ
Gunnlaugur A. Jónsson í samkunduhúsi Gyðinga í Jerúsalem.
„Ráðstefnur sem þessar eru einstaklega gefandi, ekki síst
fyrir okkur Íslendinga sem erum jafnan fáir í hverri fræðigrein
og landfræðilega einangraðri en flestar Evrópuþjóðir.“
„Snemma á tíunda áratug síðustu
aldar sótti ég sem fjármálaráðherra
ársfund Alþjóðabankans sem
haldinn var í Madrid,“ segir Friðrik
Sophusson, formaður stjórnar
Íslandsbanka. „Eftir að hafa
farið í gegnum öryggiseftirlit með
tilheyrandi biðröðum biðu þúsund
fundargestir þess að fundurinn
hæfist. Ný ráðstefnubyggingin var
reist úr stálgrindum og skyndilega
birtust nokkrir grænklæddir menn
sem með hjálp klifurtækja sinna
sveifluðu sér milli stálgrindanna í lofti
hússins. Fundargestum þótti þetta
að vonum tilkomumikil sýning og það
var ekki fyrr en klifrararnir dreifðu
miðum yfir mannfjöldann sem mér
varð ljóst að þetta var ekki hluti af
setningarathöfninni heldur mótmæli
umhverfissinna gegn lánum bankans
til vatnsaflsvirkjana – einkum
Þriggja gljúfra virkjananna í Kína. Allt
öryggistilstandið kom ekki í veg fyrir
þátttöku óboðnu gestanna með tæki
sín og tól.
tæpum áratug síðar, þegar ég var
í starfi hjá Landsvirkjun, sá ég að
Alþjóðabankinn hafði í kjölfar Madrid-
fundarins nánast hætt lánveitingum
til vatnsaflsvirkjana. tafir urðu því á
virkjun vatnsfalla í heiminum en
vatnsaflið er ein mikilvægasta
sjálfbæra orkan sem mannkynið
getur virkjað. Sýningin í Madrid hefur
síðan verið mér áminning um það
hvernig tiltölulega fámennur hópur
Vesturlandabúa getur haft mikil áhrif
með frumlegum aðferðum – stundum
til góðs en í þessu tilviki vafalaust til
ills.“
EftirminnilEgur fundur:
Mótmæli umhverfissinna