Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 73
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 73
Fundir og ráðsteFnur
okkur sambönd og þegar umræðan fór af
stað um veisluþjónustu okkar var ekki að
spyrja að því að fljótt varð mikil aukning
í þessari starfsemi. Það hefur aldrei verið
meira að gera hjá okkur á þessu sviði heldur
en nú. Mest eru þetta fyrirtæki og stofnanir
sem panta en einstaklingar panta einnig fyrir
ýmsar veislur og uppákomur. Við þjónum
ekki mjög stórum samkomum en öllum
venjulegum fundum, stjórnarfundum,
litlum ráðstefnum og uppákomum í
fyrirtækjum þar sem fjöldinn er þetta frá
tíu upp í tuttugu manns. En þegar svo ber
undir getum við boðið veislur fyrir stærri
mannfagnaði.“
Jómfrúin er dagstaður og er opinn frá
kl. 11–18. Undantekning er desember
en þá er opið til 22 mörg kvöld: „Sá
mánuður er gífurlega stór hjá okkur. Mikið
er um fjölskyldur og vinahópa sem koma
í desember og hef ég heyrt fleiri en einn
segja að jólastemningin sé ekki almennilega
komin fyrr en búið er að fara út að borða á
Jómfrúnni.”
Engin ástæða til að breyta því sem virkar
Að sögn Jakobs hefur það alltaf verið mottó
staðarins að þegar byrjað er á einhverju sem
vel tekst til með þá er að halda því áfram.
Þannig er það með sumardjassinn: „Þó að
alls ekki sé um mikla tekjulind að ræða
höldum við honum áfram enda þótti okkur
takast vel til í upphafi og djassinn auglýsir
staðinn. Í dag er sumardjassinn okkar fastur
liður í bæjarlífinu á sumrin.“
Útlitslega séð hefur Jómfrúin verið eins í
fjórtán ár og Jakob er ekkert að fara að
breyta honum. „Þegar eitthvað virkar er
engin ástæða til að breyta. Við vorum mjög
ánægðir með hvernig til tókst í upphafi og
það á einnig við um gesti okkar, framundan
er að halda áfram á sömu braut, Við getum
alveg hugsað okkur að auka enn meira við
veisluþjónustuna en það kemur í ljós hvað
verður. Ég lít björtum augum til fram-
tíðarinnar þótt á móti blási nú um stundir
í þjóðfélaginu. Enn eru til fyrirtæki sem
eru að stunda viðskipti og sýna árangur og
við erum til staðar fyrir þau, sem og ein-
staklinga. Slagorð okkar er: Smurbrauð frá
Jómfrúnni á fundarborðið og árangur
næst. Glæsilegar veitingar, fallega á borð
bornar, geta gert gæfumuninn í samninga-
gerð.“
„Slagorð okkar er:
Smurbrauð frá Jómfrúnni
á fundarborðið og árangur
næst. Glæsilegar veitingar
fallega á borð bornar
geta gert gæfumuninn í
samningagerð.“
Jómfrúin er vinsæll hádegisverðarstaður og er yfirleitt setið við öll borð og málefni dagsins krufin til mergjar yfir góðum veitingum. Á þeim
fjórtán árum sem Jómfrúin hefur starfað hefur Jakobi ekki fundist ástæða til að breyta enda strax ánægður með hvernig tókst til í upphafi.