Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 78

Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 Þegar Katrín Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, er spurð hvernig best sé að undirbúa sig fyrir ráðningarviðtal segir hún að umsækjandi eigi að taka viðtalið alvarlega og undirbúa sig. Það getur hann gert með því að kynna sér starfsemi viðkomandi fyrirtækis. Þá eigi hann að gæta þess að svara spurningum með stuttum og skýrum setningum og líta á hverja spurningu sem eðlilegan hlut. Einnig á hann að geta útskýrt hverju hann hefur áorkað í sínu núverandi starfi og í hverju hann vilji bæta sig. „Viðtalið gengur betur ef umsækjandinn er afslappaður, jákvæður og eðlilegur. Best er ef klæðnaður umsækjanda samrýmist umræddu fyrirtæki; hann ætti að leggja áherslu á að vera snyrtilega til fara og ekki vera með tyggjó eða of mikið af skartgripum. Það eru oft margir um hituna fyrir hvert auglýst starf. Hvað ef nokkrir hafa sömu menntun og reynslu? „Menntun og reynsla er bara einn af fjölmörgum þáttum sem þarf að taka tillit til þegar hæfni umsækjenda er metin. Það sem flestum hættir til að vanmeta eru persónulegir eiginleikar umsækjenda eins og áreiðanleiki, samviskusemi, næmi í samskiptum, drifkraftur, metnaður, sjálfstraust og jafnlyndi. Ef finna á besta starfsmanninn úr hópi umsækjenda með tilskilda menntun og reynslu þarf að skoða þessa eiginleika því það eru þeir sem greina á milli afburðastarfsmannanna og hinna sem eru rétt í meðallagi. Auk þess að meta þessa þætti í viðtalinu leggjum við hjá Hagvangi áherslu á það í öllum okkar ráðningum að allir hæfir umsækjendur séu settir í persónuleikamat frá Hogan Assessments, sem er einn allra virtasti framleiðandi slíkra prófa í heiminum. Þessi próf eru fljótleg, ódýr og afar gagnleg við að greina á milli hæfra umsækjenda.“ eftirminnileg ráðstefna: Eins og draugaborg Helgi Jónsson, gigtarlæknir á Landspítalanum, segir að sín besta ráðstefna hafi verið stofnfundur Heimsslitgigtarsamtakanna (Osteoarthritis Research Society) í París árið 1992. Þar hittist fólk úr mörgum greinum svo sem gigtarlæknar, bæklunarlæknar, dýralæknar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, efnafræðingar og lyfjafræðingar. Allt þetta fólk er tengt slitgigt og slitgigtarrannsóknum sem hann segir vera sínar ær og kýr. Að hans sögn mæta venjulega um 800-1000 manns á ráðstefnur samtakanna. „Ein ráðstefnan er sérstaklega minnisstæð en hún var haldin í Washington í september árið 2001. Um 250 manns mættu en Washington var þá eins og draugaborg eftir árásirnar 11. september. Þetta var svolítið óhuggulegt. Segja má að við ráðstefnugestir höfum verið einir á risastóru hóteli. Þetta var samt með allra bestu ráðstefnum sem ég hef sótt enda var það harðasti kjarninn og þeir sem höfðu frá mestu að segja sem mættu. Ráðstefnur á vegum Heimsslitgigtarsamtakanna hafa breytt miklu varðandi þekkingu og meðferð á slitgigt. Engin straumbreyting hefur enn orðið í meðferð en vonandi er það í vændum. Skilningur á sjúkdómnum og ýmsir þættir sem tengjast meðferðum eru nú skýrari og betri.“ Helgi Jónsson. „Þetta var samt með allra bestu ráðstefnum sem ég hef sótt enda var það harðasti kjarninn og þeir sem höfðu frá mestu að segja sem mættu.“ Katrín Óladóttir. „Það sem flestum hættir til að vanmeta eru persónulegir eiginleikar umsækjenda eins og áreiðanleiki, samviskusemi, næmi í samskiptum, drifkraftur, metnaður, sjálfstraust og jafnlyndi.“ ráðningarViðtöl: Að vera maður sjálfur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.