Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Loftbrú á milli Evrópu
og Bandaríkjanna
Iceland Express hefur verið að kynna nýjar og spennandi áætlunar-
leiðir næsta sumar.
Að sögn Matthíasar Imsland, forstjóra Iceland Express, munu
áfangastaðir flugfélagsins næsta sumar verða 25 talsins: „Þar er fyrst
að nefna New York og Winnipeg meðal helstu nýmæla og svo Evr-
ópuborgirnar Lúxemborg, Mílanó, Birmingham, Ósló, Rotterdam
og Gdansk í Póllandi. Við veljum nýja áfangastaði eftir ítarlegar
skoðanir, þar sem óskir farþega okkar ráða miklu. Við lítum raunar
á New York sem fyrsta áfangastað okkar í Bandaríkjunum svo þetta
er aðeins byrjunin hjá okkur. Við erum að feta í fótspor Loftleiða
sem á sinni tíð byggðu loftbrú á milli Evrópu og Bandaríkjanna.“
Bjartsýn á stóru markaðina
„Iceland Express ætlar að hefja áætlunarflug til New York og Winni-
peg í Kanada næsta sumar. Bókanir á báða þessa staði hafa farið afar
vel af stað, svo ekki sé meira sagt. New York er náttúrlega engu lík
og það er gamall draumur hjá okkur að hefja flug þangað. Varðandi
Winnipeg, þá er Iceland Express eina flugfélagið sem verður með
beint flug þaðan til og frá Evrópu. Hvort tveggja eru þetta stórir
markaðir, svo við erum afar bjartsýn.“
Mikil stemning á árshátíðarferðum erlendis
„Við höfum mikið skipulagt árshátíðir erlendis í gegnum tíðina og
höfum gaman af því. Það er mikil stemning á slíkum ferða-
lögum. Oftast hefur verið farið í helgarferðir til einhverra þeirra
borga sem við fljúgum til. Ætli London og Kaupmannahöfn séu
ekki vinsælastar í þeim efnum, en við höfum líka skipulagt slíkar
ferðir til Varsjár og Berlínar til dæmis, ef fólk vill eitthvað öðruvísi.
Við skipuleggjum í sjálfu sér ekki allan pakkann, ef svo má segja í
slíkum ferðum, en að sjálfsögðu gefum við góð ráð, bendum á rútu-
fyrirtæki til að koma fólki til og frá flugvelli, gististaði og veitinga-
hús, sé þess óskað. Hins vegar eigum við ferðaskrifstofuna Express
ferðir sem getur skipulagt svona ferðir frá a til ö. Það er nefnilega
svo gaman, þegar heill hópur tekur sig saman og ákveður að hafa
það skemmtilegt.“
icEland ExprEss
„Við veljum nýja áfangastaði eftir
ítarlegar skoðanir, þar sem óskir
farþega okkar ráða miklu.“
Matthías Imsland er forstjóri Iceland Express.